Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 68
66 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Sigurbjörn Örn
Hreiðarsson
Það er ekki á hverjum degi sem félagið kveður leik-
mann sem náð hefur þeim einstaka áfanga að leika 20
ár í meistaraflokki með Val, tíma sem spannar fimmt-
ung af 100 ára sögu félagsins. Sigurbjörn Hreiðarsson
er langleikjahæsti leikmaður meistaraflokks karla frá
upphafi og hefur hann leikið fleiri leiki en tölu verður á
komið. Hann fagnaði m.a. Reykjavíkurmeistaratitli á af-
mælisárinu en í lok tímabils gekk Sigurbjörn til liðs við
Hauka, systurfélag Vals, og verður þar spilandi þjálfari
með liðinu á næsta tímabili í 1. deild. Valsblaðið óskar
honum góðs gengis á nýjum vettvangi og verður honum
seint þakkað ómetanlegt framlag til félagsins.
Flugvallarvegur • 101 Reykjavík • Pósthólf: 8500 • 128 Reykjavík
Sími: 511 5300 • Fax: 511 5301 • www.keiluhollin.is • www.bowling.is • www.golfhermir.isValsblaðið 2011 79
Starfið er margt
Flugið heim gekk prýðilega og við
vorum á undan áætlun. Íslenska sumar-
nóttin tók á móti okkur með bros á vör
og allir kvöddust, sælir og brúnir eftir
ógleymanlega viku.
Mig langar að þakka Kalla, Hröbbu og
foreldrunum kærlega fyrir að hugsa
svona vel um okkur. Einnig vil ég þakka
Herði hjá IT-ferðum fyrir frábæra ferð og
stuðningsmannafélaginu Fálkunum fyrir
styrkinn.
Interamnia World Cup-mótið og ferðin
í heild var æðisleg og ég vona að við för-
um aftur á næsta ári.
Marta Kristín Friðrkisdóttir skráði
inn á leigu – að sjálfsögðu með það ein-
göngu í huga að styrkja lærin. Ekki mátti
gleyma pizzunni sem við ætluðum að fá
okkur, hvernig var hægt að kveðja Ítalíu
betur en með pizzuáti? Hvergi var veit-
ingastaður sem seldi pizzur um miðjan
dag svo að við fengum okkur ljúffengt
„carbonada pasta“. Að því loknu tóku við
þrif og lokahönd var lögð á að pakka nið-
ur í töskur og okkar beið 4 tíma rútuferð.
Þegar upp á flugvöll var komið, við
sælar með bikarinn, ætluðum aldeilis að
monta okkur fyrir framan Njarðvíkur-
strákana sem höfðu verið að keppa þessa
sömu viku í körfubolta. Það gekk nú ekki
alveg samkvæmt áætlun því þeir höfðu
líka unnið bikar.
Skemmtiferð í Aquapark í steikjandi
hita
Eftir þónokkuð vesen við það að finna
leigubíl eða strætó upp í Aquapark daginn
eftir, sem reyndi mjög mikið á litlu ítölsku-
kunnáttu okkar fundum við eina leigubíl-
inn á svæðinu, hann var reyndar mjög dýr
en hvað með það. Í Aquapark var allt að
45° hiti. Við eyddum deginum þar og á
heimleiðinni vorum við allar sólbrunnar
og sætar en sérstaklega hún Harpa sem
alltaf passaði sig á því að bera sólarvörn
vel og vandlega á sig gleymdi annarri
höndinni og var eldrauð þar. Um kvöldið
var feguðarsamkeppni. Hún Lea, með sína
gífurlegu ítölskukunnáttu hafði af ein-
hverjum ástæðum fengið að vera dómari í
keppninni og hann Kalli okkar líka. Okkur
grunaði að það hafi verið einhver misskiln-
ingur og að Lea hafi verið kynnt sem ein
besta handboltakona okkar Íslendinga –
Hrafnhildur Skúladóttir. En þar sem það
var eingöngu töluð ítalska og enginn talaði
ensku þá skildum við ekki orð.
Tap og bikar
Við töpuðum daginn eftir, en þar sem
mótherjarnir voru með ólöglegt lið þá,
samkvæmt pappírunum, unnum við. Fór-
um síðan í mollferð númer tvö og strand-
blak um kvöldið en miðað við frammi-
stöðu okkar þar held ég að við ættum
bara að halda okkur við handbolta.
Síðasti heili dagurinn okkar á Ítalíu
rann upp, æfingaleikur sem endaði með
sigri og strandferð. Þar var annaðhvort
verið að reyna við strákana eða byggja
klikkaða sandkastala. Því næst var haldið
á lokahátíðina, þar kvöddum við Leu sem
fór aftur til Slóveníu og missti af því að
við unnum bikar. Enginn okkar vissi í
fyrstu af hverju við hefðum fengið bikar-
inn. Eftir miklar vangaveltur um bikarinn
var stórt útiball sem við misstum reyndar
mestmegnis af vegna pizzu-áts. Að ball-
inu loknu færði hópurinn sig að litla
barnum á svæðinu þar sem tónlistin
glumdi enn. Skemmtum okkur konung-
lega og þrátt fyrir einhver leiðindi frá út-
lendingum þá duttu nokkrar Valsstúlkur í
kossaflens þetta kvöld. Haldið var heim á
leið og allir kláruðu að pakka.
Frábær ferð í alla staði
Það var alveg ótrúlegt hvað þessi vika
leið hratt, heimferðardagur rann upp – ís
í morgunmat og ströndin, hjólabátur tek-
5B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur