Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 150
148 Valsblaðið 2011
Jón Freyr hefur æft knattspyrnu með Val
í 4 ár og hann segir að Valur hafi orðið
fyrir valinu vegna nálægðar við heimilið
sitt og einnig vegna að þeir séu bestir.
Jón hlaut á uppskeruhátíð yngri flokka í
knattspyrnu viðurkenningu sem mark-
maður yngri flokka en þessi viðurkenn-
ing var veitt í fyrsta sinn á afmælisárinu.
Jón segir að þessi viðurkenning hafi veitt
sér mikla ánægju og finnst honum ótrú-
legt að hafa fengið þessa viðurkenningu,
hún hafi komið honum mjög á óvart.
Hvernig er flokkkurinn þinn? „Sumar-
ið í 5. flokki gekk ekki sem skyldi, og
margir hlutir sem við hefðum mátt gera
betur sem lið. En núna skiptir það engu
máli vegna það er búið og gert. Sjálfur
ber ég alltaf mikla virðingu fyrir þjálfur-
um mínum og hópnum, mér líst frábær-
lega á hópinn núna og þjálfarana.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Þegar við vorum á Shell-
mótinu í Vestmannaeyjum 2008. Vorum
að spila í ústlitum á móti FH. Leikurinn
fór 2-2 og þegar dómarinn blés í flautuna
sagði hann að FH hafi unnið leikinn
vegna þess að þeir skoruðu á undan okk-
ur í seinni hálfleik, en við skoruðum
fyrsta markið í leiknum. Þetta var bæði
það fyndnasta, sorglegasta og skrýtnasta
sem ég hef séð.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Wojciech Tomasz Szczęsny
og Haraldur Björnsson hafa alltaf verið í
miklu uppáhaldi ásamt Jack Wilshere.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Til að ná langt í fótbolta eða bara öllu
þarftu að setja þér markmið, sjálfur hef
ég langtímamarkmið og markmið fyrir
styttri tíma, hafa viljann, þú getur ekki
krafist mikils af þér ef þú hefur ekki vilj-
ann, maður þarf að sjálfsögðu að vera
harður við sjálfan sig ekki hætta þó að
móti blási.“
Hvers vegna fótbolti? „Fyrst byrjaði ég
í knattspyrnu vegna þess að vinir mínir
voru allir að spila og drógu mig svo með
á æfingu, ég sé ekki eftir því. Einnig
spila ég handknattleik. Ég á eftir að gera
upp hug minn í hverju ég ætla að halda
áfram en helst væri ég til að vera á báð-
um greinunum.“
Stuðningur foreldra, skiptir hann
máli? „Stuðningur er ómetanlegur, fyrst
þegar ég fór að spila knattspyrnu var ein-
ungis stuðningur frá vinum mínum,
seinna þegar ég ákvað að ég skyldi æfa
knattspyrnu kom stuðningur frá fleirum.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val? „Mér
finnst allt vera hér til staðar til að verða
góður knattspyrnumaður, topp þjálfarar
og aðstæðurnar frábærar. En alltaf er
hægt að gera betur.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Draumurinn er að komst í Arsenal, en
það væri auðvitað frábært að spila bara
hérna heima.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Knatt-
spyrnufélagið Valur var stofnað 11. maí
1911 af séra Friðriki Friðrikssyni.“
Ungir Valsarar
Það kom mér mjög á
ávart að vera valinn
markmaður ársins
Jón Freyr Eyþórsson er 12 ára og
leikur fótbolta með 4. flokki
Valsmenn hf. óska öllum
Valsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári með þökk
fyrir samstarfið á árinu sem er að líða
Valsblaðið 2011 157
Starfið er margt
Nýársfagnaður Vals var haldinn í byrjun
janúar sl. og mættu fjölmargir á svæðið og
skemmtu sér konunglega. Að þessu sinni
sá meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu
um skipulag og framkvæmd en samkoman
var liður í fjáröflun flokksins. Í boði voru
vegleg skemtiatriði, pinnamatur, snittur og
sushi. Hemmi Gunn var heiðursgestur, Ingó
Veðurguð tók lagið við góðar undirtektir,
Jóhann Kristinsson úr Mið-Ísland var með
skemmtilegt uppistand, Berglind Magnús-
dóttir stórsöngkona tók lagið og Ásmundur
Haraldsson fyrrum handboltahetja í Val fór
með gamanmál. Ýmsir fleiri snillingar
mættu á svæðið og héldu uppi stuðinu og
margir góðir gestir mættu, m.a. nýkrýndur
íþróttamaður ársins 2010, Alexander Pet-
terson. Myndir segja meira en 1000 orð og
sýna vel stemninguna. Svo er bara að mæta
á næsta nýjársfagnað. Myndir tók Guðni Ol-
geirsson.
10
A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
10
11
12
27
6
V
al
ur