Són - 01.01.2006, Page 147

Són - 01.01.2006, Page 147
147LJÓÐ 2005 íburðar. Þess í stað leikur hann sér með orð, hugtök, hugmyndir og smellnar samlíkingar, líkt og í ljóðinu „Undir súð“ (bls. 13–14) þar sem regndropum sem lenda á bárujárni er líkt við ritvélaslátt, uns rigningin hefur náð að vélrita heilan rímnaflokk. Í ljóðinu leiðir Þór- arinn lesandann aftur í tímann og leikur sér þannig að því að tengja saman nútíð og fortíð. Það gerir hann og í öðru snjöllu ljóði, „Askur“ (bls. 25), þar sem lesanda er boðið inn í hinn forna goðheim, þar sem íkorni á þönum upp og niður stofn asktrés verður að sögufrægum íkorna, Ratatoski. Þegar lesandinn hefur gengist inn á blekkinguna, að asktréð í ljóðinu tengi virkilega saman tvo heima og að hann sé í raun staddur við heimstréð sjálft, ask Yggdrasils, er honum kippt niður á jörðina aftur, þegar höfundur tekur upp á því að fóðra Ratatosk með salthnetum og kartöfluflögum. Þetta verða að teljast snjöll tímaskipti. Að lokum langar mig til að nefna sniðuga ferskeytlu sem ber heitið „Sumardagurinn fyrsti“ og fjallar um íslenska vorið, sem er blautt eins og vatnslitamynd (bls. 16). Þarna er á ferðinni sam- líking sem allir Íslendingar ættu að kannast við. Edda markaðssetti bók Þórarins sem fimm stjörnu ljóðabók, eftir ritdómi Páls Baldvins Baldvinssonar, gagnrýnanda DV. Ég er viss um að ýmsum ljóðaun- nendum hefur brugðið í brún og þótt sem ljóðabækur væru nú dreg- nar í dilka að hætti amerískra bíómynda. Einhvern veginn finnst manni stjörnugjöf eiga betur við flest annað en ljóðabækur. Í ljóðabók Þorsteins frá Hamri, Dyr að draumi, kveður við nokkuð annan tón en hjá Þórarni enda ólík skáld á ferðinni. Þótt yfirbragð bókar Þorsteins sé – svo sem vænta mátti – svolítið í þyngri kantin- um verður ekki sagt að þar ríki beinlínis svartsýnisandi heldur er miklu fremur verið að leita svara og í því felst alltaf ákveðin bjart- sýni. En á sama tíma og bornar eru upp knýjandi spurningar kemur þó einnig fram ákveðin tortryggni gegn svörum – að minnsta kosti tekst höfundi að sannfæra lesandann um að það séu ef til vill ekki endilega alltaf til svo afdráttarlaus svör við spurningum okkar. Þess- ar vangaveltur gefa bókinni svolítið heimspekilegan undirtón þar sem myndir eru dregnar upp á draumkenndan máta, jafnvel með tilvísunum í annan heim. Mig langar rétt að nefna tvö ljóð. Í ljóðinu „Mynd“ (bls. 13) dregur ljóðmælandi að sér huglæga mynd (ímynd) annarrar manneskju svo að hún geti lýst upp annars ósýnilega betri hlið hans. Myndmálið er bæði frumlegt og orkar sterkt. Einnig lang- ar mig að nefna ljóðið „Maðurinn“ (bls. 16) sem er gott dæmi um heimspekilegar vangaveltur höfundar. Maður er kannski gjarn á að líta þannig á hlutina ómeðvitað að maður sé sífellt að bæta við sig á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.