Són - 01.01.2012, Side 17
„Yggjar bjór hver eiga myni, ósýnt þykir lýða kyni“ 17
vildi allar ástir hennar og hylli […].“31 Sá hinn sami á að reyna að
heimta Baldur úr Helju. Hermóður hinn hvati32 verður til þess að ríða
á helveg – hann reynir því að auka Baldri aldur. „Éljúðnir heitir salur
hennar [Heljar]“, segir Snorri fyrr í Eddu.33 Salurinn er hins vegar
ekki nefndur í sjálfri sögunni um dauða Baldurs. Samkvæmt LP kemur
orðið eingöngu fyrir í M. Hin lýsandi orð, sem Snorri notar til þess að
draga upp áhrifamiklar myndir af Hel og sal hennar og öllu húshaldi,
eiga sér hliðstæður í tiltölulega ungum heimildum.34 Spyrja má því
hvort orðin séu ef til vill ættuð úr smiðju Snorra.
Hin nána samsvörun á milli M og Snorra-Eddu hlýtur að vekja spurn-
ingar enda eru heimildir fáar um dauða Baldurs þegar Snorra sleppir.
Eddukvæðin láta að vísu nokkra vitneskju í té ásamt dróttkvæðunum.
Saxi hinn málspaki segir líka frá Baldri og dauða hans en frásögn Saxa
er talsvert frábrugðin sögu Snorra eins og kunnugt er.35 Skáldið segir
enn fremur í lokahendingunum tveimur að óþarft sé að staglast mikið
á þessari sögu – hún sé heyrinkunn. Það má auðvitað til sanns vegar
færa þar sem M er varðveitt í handriti sem geymir SnorraEddu. Ekki
verður vitað með vissu hversu kunn sagan um Baldur hefur almennt
verið. Það er samt óneitanlega undarlegt til þess að hugsa að sagan
sé kölluð heyrinkunn eða alþekkt þar sem við myndum naumast þekkja
hana á okkar dögum ef ekki væri fyrir Snorra og Eddu hans. Sögnin
að jaga kemur ekki annars staðar fyrir í bundnu máli. Ekki verður neitt
sérstakt af því ráðið.36
31 Edda Snorra Sturlusonar (1931:65).
32 Simek (1993:118–119) segir að Snorri sé einn um að telja Hermóð til ása, son Óðins
og bróður Baldurs. Hermóður kemur óvíða fyrir í heimildum og stundum er talið að
um söguhetju sé að ræða, t.d. í Hyndluljóðum, v. nr. 2. Sjá nánar Honegger (1999:414–
416).
33 Edda Snorra Sturlusonar (1931:35). Nafnið á sal Heljar kemur aðeins einu sinni fyrir í
SnorraEddu – það er hér þar sem lýst er bólstöðum Heljar.
34 Beck (1999:258–259): „Die sprechenden Namen, die Snorri Hels Dienerschaft und
nächsten Umgebung zuschreibt, finden nur teilweise und in jungen Quellen Paralle-
len: Éljúðnir im Málsháttakvæði (Skj. A II,132), Hungr in Kenningar, belegt in Dicht-
ungen des 13. Jh.s (Heljar diskr, Heljar askr, Skjd. A II, 46, 146), […].“ Þess má geta hér
að kenningarnar Heljar diskr og Heljar askr koma báðar fyrir í vísum sem kveðnar eru
fyrir Örlygsstaðafund 1238. Aðra þeirra kveður Sighvatur Sturluson, bróðir Snorra.
35 Fá má t.d. gott yfirlit og samanburð á vesturnorrænum heimildum og Saxa hjá Tur-
ville-Petre (1964:106–125, kafli 4 – um Baldur).
36 Finnur Jónsson (1923:47) ræðir um mál kvæðisins og segir: „Sproget er iøvrigt, som
allerede antydet, let og flydende og svarende til det humoristiske indhold. Særlig
bemærkes, at digteren ikke er gået af vejen for ord, som kun synes at være bleven
brugt i det daglige lette omgangssprog og som i reglen ikke ansås for fine nok til digt-
ersproget. Til sådanne ord hører f. ex. jaga (9,8), omtrent = ‘at snakke’.“