Gerðir kirkjuþings - 1987, Side 10
7
þeim dögum. Við, sem þeWctum og störfuðum með dr. Sigurði
Pálssyni erum þakklát að hafa fengið að þekkja hann og
reyna hann i starfi. Hann vildi veg kirkju íslands sem
mestan.
Við minmomst þessara bræðra með þökk og vottum þeim
virðingu okkar með því að risa úr sætum i hljóðri bæn.
Þetta er 18. Kirkjuþing frá upphafi, þvi að lengi var
Kirkjuþing aðeins annað hvert ár. Mörg mál hafa verið
rædd á Kirkjuþingum frá þvi að þau hófust og þó að okkur
finnist á stundum sem litt gangi með afgreiðslu sumra
þeirra á Alþingi, skulum við muna að margt hefur verið
gerst þar, sem er jákvætt fyrir kirkjuna og ekki sist hin
síðustu ár. Vil ég þar þakka fyrrverandi
kirkjumálaráðherra, Jóni Helgasyni, góð störf fyrir
kirkjuna. Um leið býð ég nýjan kirkjumálaráðherra
velkominn til starfs og vænti góðs af starfi hans fyrir
kirkju íslands. Bið ég honum og fjölskyldu hans
blessunar.
í Efesus-bréfinu segir Páll postuli: Honum sem i oss
verkar með krafti sinum og megnar að gjöra langt fram yfir
allt það sem vér biðjum eða skynjum, honum sé dýrð í
kirkjunni og i Kristi Jesú um öll æviskeið öld eftir öld.
Ég lýsi þvi yfir að Kirkjuþing hinnar islensku þjóðkirkju
1987 er sett.
Ávaro kirkiumálaráðherra, Jóns Siourðssonar
Settur biskup íslands, dr. Sigurbjörn Einarsson biskup og
frú, vigslubiskup, Kirkjuþingsfulltrúar og aðrir góðir
áheyrendur.
Mér er það ánægja að ávarpa Kirkjuþing við setningu þess.
Ég vil þakka þeim sem messuna gjörðu, sungu og léku á
hljóðfæri og predikaranum, sem snart okkur með orðum
sinum. Við þetta tækifæri vil ég rifja upp nokkur
málefni, sem hafa verið efst á baugi i ráðuneytinu að
undanförnu og snerta kirkju landsins.
Á liðnu sumri var skipuð nefnd á vegum ráðuneytisins til
þess að gera tillögur vim breytingar á núgildandi reglum um
álagningu og innheimtu sóknargjalda og kirkjugarðsgjalda i
kjölfar staðgreiðslu opinberra gjalda, sem hefjast skal um
næstu áramót. Mikilvægt er að vel takist til um þessar
breytingar á tekjustofnum kirkjunnar. Nefndin er nú i
þann veginn að ljúka störfum og hefur samið tvö frumvörp,
frumvarp til laga um sóknargjöld og frumvarp til laga um
breytingu á lögum um kirkjugarða. Kirkjuþing mun að
sjálfsögðu fjalla um þessi frumvörp áður en þau verða lögð
fram á Alþingi.