Gerðir kirkjuþings - 1987, Page 54
51
Meðal þeirra sem snérust gegn báðum þessum hugmyndum voru
guðfræðingarnir dialektisku guðfræðinnar, einkum Gogarten
og á sinn hátt Bonhoeffer. Hins vegar hefur guðfræði
Bonhoeffers haft veruleg áhrif á hugmyndir um
safnaðaruppbyggingu á siðari árum.
Guðfræði Dietrichs Bonhoeffers hefur haft mikil áhrif á
kirkjuskilning mótmælenda á fyrra hluta aldarinnar og fram
á okkar tima. í örstuttu máli væri hægt að draga
áhrifamestu hugmyndir Bonhoeffers um söfnuðinn þannig:
Hann hugsar sér, að setja megi upp likan af söfnuðinum i
þrem hringum. í innsta hring er kvöldmáltíðarhópurinn,
þeir sem eru af lifi og sál þátttakendur i lífi og starfi
kirkjunnar. í öðrum hring eru mun fleiri, það er
predikunarhópurinn, þeir sem sækja messur gjarna en eru
ekki gripnir af boðskapnum á sama hátt og
kvöldmáltiðarhópurinn. Þriðji hringurinn er lang
stærstur: skírnarhópurinn, þeir sem tilheyra kirkjunni en
fylgjast með henni i fjarlægð. Gildi þjóðkirkjufyrirkomu-
lagsins sér Bonhoeffer sérstaklega i þvi að innan þess
bjóðast miklir möguleikar. Áhrif Bonhoeffers koma þó enn
skýrar fram i orðunum sem hann notaði oft, að kirkjan sé
til "annarra vegna". Hlutverk hennar er með öðrum orðum
það að vera til þjónustu. Bonhoeffer sýndi það raunar
best með lifi sinu og dauða hvað það getur merkt.
Karl-Wilheim Dahm hefur gert athuganir i tengslum við
einstaklinga við söfnuðinn i greininni "Verbundenheit mit
der Volkskirche" (i bókinni Erneruerunq der Kirche.
Stabilitát als Chance? Ritstj.: J. Mattes). Þar flokkar
hann tengslin i þessa sex flokka, sem bera eftirfarandi
heiti:
1. Þörfin fyrir andlegt lif (að nokkru leyti uppfyllt i
guðsþjónustunni sem og i fermingarbarnaundirbúningi).
2. Kirkjan stendur vörð um kristin lifsviðhorf og
gundvallargildi i mannlegu lífi.
3. Ráðlegging og sálusorgun.
4. Þörfin fyrir helgisiði við áfanga á lifsferli mannsins
(fæðing, unglingsár, gifting og dauði).
5. ósk um liknarþjónustu af öðrum toga en þeim sem
rikisvaldið lætur i té.
6. Krafa um áhrif á félags-pólitiska sviðinu.
± bókinn Pfarrer hefur Dahm lagt sérstaka áherslu á punkta
2 og 4.
Mikil áhrif hafði á sínum tima hópur sem kenndur er við
Berneuchen i Þýskalandi og margir guðfræðingar og leikmenn
sem siðar urðu þekktir kirkjumenn tóku þátt i. Þessi
hópur var hluti af hinni svonefndu litúrgisku hreyfingu
þar sem áherslan liggur á guðsþjónustunni. En hópurinn
lagði áherslu á guðsþjónustuna i öðrum skilningi en vant