Gerðir kirkjuþings - 1987, Síða 81
78
3
5. gr.
Engan skal skipa kennara við grunnskóla nema hann hafi gegnt kennslustarfi sem settur
kennari við sama skóla eða hliðstæðan í a.m.k. eitt ár samtals með góðum árangri að mati
hlutaðeigandi skólastjóra og skólanefndar.
6. gr.
Til þess að vera skipaður, settur eða ráðinn til kennslustarfa við forskóla skal
umsækjandi uppfylla skilyrði 4. gr. og jafnframt skilyrði 5. gr. ef um skipun er að ræða.
7. gr.
Til þess að vera skipaður, settur eða ráðinn kennari við framhaldsskóla skal
umsækjandi hafa öðlast leyfi til þess að nota starfsheitið framhaldsskólakennari skv. 1. gr.
Til skipunar, setningar eða ráðningar í eftirtalin kennslustörf við framhaldsskóla gilda
auk þess eftirtalin skilyrði:
a. Kennari í íþróttum skal hafa lokið námi við íþróttakennaraskóla íslands eða öðru
jafngildu námi.
b. Kennari í hst- og verkmenntagreinum skal hafa lokið námi við listaháskóla eða aðra
sérskóla sem jafngildir a.m.k. 90 einingum ásamt fullgildum prófum. Þar af skulu eigi
færri en 60 einingar vera nám í sérgrein.
c. Kennari í sérgreinum eða faggreinum iðnfræðsluskóla skal hafa lokið prófi í tæknifræði
eða öðru hliðstæðu námi með kennslugrein sína sem aðalgrein eða hafa meistararéttindi
í þeirri iðngrein sem um er að ræða og hafa starfað í tvö ár sem tæknifræðingur eða
meistari á sérsviði sínu.
d. Kennari í sérgreinum stýrimannanáms skal hafa lokið 4. stigs prófi frá stýrimannaskóla
og siglt eigi skemur en eitt ár sem fullgildur stýrimaður á farskipi eða varðskipi eða sem
skipstjóri á fiskiskipi yfir 120 rúmlestir.
e. Kennari í sérgreinum vélstjóranáms skal hafa iokið tæknifræði- eða verkfræðinámi sem
tekur til þeirrar kennslugreinar sem viðkomandi á að annast kennslu í eða hafa lokapróf
4. stigs frá Vélskóla íslands og hafa hlotið þá menntun sem krafist er til að öðlast
ótakmörkuð vélstjómarréttindi auk starfsreynslu og meistararéttinda.
f. Kennari í sérgreinum heilbrigðisnáms skal hafa lokið námi hjúkrunarkennara ásamt
fullgildum prófum frá skóla, sem menntamálaráðuneytið viðurkennir, eða öðru
jafngildu námi.
g. Kennari við hússtjórnarskóla eða í heimilisfræðum skal hafa lokið hússtjómarkennara-
prófi, handavinnukennaraprófi eða vefnaðarkennaraprófi í viðkomandi kennslugrein
eða öðm jafngildu námi.
h. Kennari við íþróttakennaraskóla íslands skal hafa lokið prófi frá viðurkenndum
íþróttakennaraskóla að viðbættu framhaldsnámi í sérgrein sem menntamálaráðuneytið
metur gilt.
i. Kennari í myndlistar- og listiðnaðargreinum við Myndlista- og handíðaskóla íslands eða
aðra hliðstæða skóla skal hafa lokið námi sem menntamálaráðuneytið viðurkennir við
listaskóla eða æðri sérskóla eða hafa með listferli sínum, starfsárangri og viðurkenningu
sýnt að hann hafí hlotið jafngilda listræna menntun.
j. Kennari í tónlistargreinum við tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík
skal hafa
1. tekið lokapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík eða öðrum hliðstæðum skóla og
stundað a.m.k. tveggja til þriggja ára framhaldsnám í sérgrein, t.d. hljóðfæraleik,
söng eða tónfræðum, eða sérhæft sig á einhverju sviði tónlistarkennslu;
2. lokið fullgildu prófi frá viðurkenndum erlendum tónlistarskóla (conservatoire) eða
tónlistarháskóla;
3. sannað með listferli sínum, starfsárangri og viðurkenningu að hann hafí hlotið
jafngilda listræna menntun.
k. Kennari í sérgreinum við Hótel- og veitingaskóla íslands skal hafa lokið framhaldsnámi
við hótelskóla, sem menntamálaráðuneytið viðurkennir, og hafa tveggja ára starfs-
reynslu við hótelstörf eða skyldan rekstur.