19. júní - 19.06.2010, Síða 3
Jafnréttisstofa fagnar 10 ára afmæli sínu
í Ketilhúsinu á Akureyri þann 10. september 2010.
Jafnréttisstofa
Jafnréttisstofa 10 ára
Litið yfir farinn veg og horft til framtíðar
AR
G
H
0
5/
20
10
Tónlist I Fróðleg erindi I Umræðutorg
Nánar á www.jafnretti.is
jafnréttiá 21. öldinni
Tímaritið 19. júní 59. árgangur 2010
Útgefandi: Kvenréttindafélag Íslands
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Elín Albertsdóttir
Höfundur efnis: Elín Albertsdóttir
Ljósmyndari: Íris Ann Sigurðardóttir
Hönnun og umbrot: Ólöf Jóna Guðmundsdóttir
Prentun: Oddi
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Tími
kvenna
er runninn
upp
„Konan er að vakna.
Hún veit að karlmenn
hafa ráðið heiminum frá
því sögur hófust. Og
hvernig hefur sá heimur
verið? Hann hefur löðrað í blóði og logað af kvöl. Ég trúi því
að þessi heimur breytist þegar konur fara að stjórna honum
til jafns við karla. Ég vil og ég trúi því að þið viljið það allar,
að heimurinn afvopnist. Allt annað eru stjórnmálaklækir
og hræsni,“ sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona
í ávarpi sem hún flutti á Lækjartorgi á kvennafrídeginum
24. október 1975. Síðan eru liðin 35 ár og enn eru orð
Aðalheiðar að mörgu leyti í fullu gildi. Margt hefur þó sem
betur fer áunnist. Íslenskar konur hafa verið í öndvegi
varðandi kvennabaráttu í heiminum. Þær eru víkingar í eðli
sínu og berjast ekki síður en karlar.
Kvennafrídagurinn hafði þau áhrif á ungar konur að þær
efldust í baráttu sinni fyrir því að ná jöfnum árangri á við
karla. Við áttum fyrsta kvenforsetann í heiminum og í dag
eru konur í mörgum áhrifamestu embættum landsins.
Kona er forsætisráðherra, kona er rektor Háskóla Íslands
og undanfarin ár hefur kona gegnt starfi borgarstjóra.
Víða í samfélaginu eru konur í áhrifastöðum, stöðum sem
engum hefði dottið í hug árið 1975 að þær ættu eftir að
sinna.
Við minnumst þess að 35 ár eru liðin frá kvenna-
frídeginum. Deginum þegar meira en 25 þúsund íslenskar
konur lögðu niður störf og lömuðu með því þjóðfélagið.
Deginum sem vakti heimsathygli á samstöðu íslenskra
kvenna. Við minnumst þess líka að 90 ár eru frá því að
allar konur á landinu fengu kosningarétt og 30 ár eru liðin
frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta Íslands.
Í 19. júní að þessu sinni er rætt við fjölmargar konur
sem hafa náð langt í störfum sínum, konur sem hafa fellt
karlavígi. Þetta er konur sem þjóðin er stolt af og þær eru
fyrirmyndir þeirra kvenna sem nú eru að vaxa úr grasi. Tími
kvenna er runninn upp. Konur eru fjölmennari í háskólum
landsins en karlar. Þær vita um gildi menntunar. Strákarnir
mega þó ekki sitja eftir, eins og Vigdís Finnbogadóttir og
Kristín Ingólfsdóttir benda á í blaðinu. Synir okkar eiga líka
skilið góða menntun og framtíðarmöguleika.
Konur kjósa jafnrétti á öllum sviðum. Eitt baráttumálið
á kvennafrídeginum var krafa um sömu laun fyrir karla og
konur. Minnstur árangur hefur náðst í þeim efnum. Konur
þurfa að standa saman til afnema kynbundinn launamun
sem fyrst. Það verður einungis gert með því að aflétta
launaleynd. Konur eiga að standa saman til að þetta
baráttumál nái fram að ganga sem önnur.
Til hamingju með afmælisárið
Elín Albertsdóttir
ritstjóri
5 Formannsspjall – Margrét K. Sverrisdóttir
6 Tímamótaár Vigdísar Finnbogadóttur
10 Ráðherra með veiðidellu - Ragna Árnadóttir
14 Baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
18 Menntun hefur áhrif - Kristín Ingólfsdóttir rektor
22 Afnemum launaleynd - Ingrid Kuhlman
24 Konur, stöndum saman - Gerður Kristný
27 P-pillan fimmtug
29 Kvennafrídagurinn 1975 - Guðrún Erlendsdóttir
31 Hetjan Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
32 Konur í áhrifastöðum – Hrefna Sætran
34 Ásta R. Jóhannesdóttir
36 Jóna Hrönn Bolladóttir
38 Sigríður Björk Guðjónsdóttir
41 Birna Einarsdóttir
42 Pabbaraunir Björns Þorlákssonar
44 Konur og viðskipti – Þóranna Jónsdóttir
46 Kvennabókaútgáfa 10 ára
48 Skýrsla Kvenréttindafélags Íslands
Efnisyfirlit
Ólöf Jóna Guðmundsdóttir
Grafískur hönnuður
Íris Ann Sigurðardóttir
Ljósmyndari
3
3 Efnisyfirlit.indd 3 6/2/10 1:22:54 PM