19. júní


19. júní - 19.06.2010, Síða 16

19. júní - 19.06.2010, Síða 16
„Öðlingurinn 2010 er átak sem ég hugsa til að brúa þetta kynbundna bil og hleypa karlmönnum meira inn í umræðuna. Ég er með bókina til sölu á þessum vef og allur ágóðinn af henni fer óskiptur í baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi. Næst á dagskrá hjá mér er svo kvennafrídagurinn mikli 25. október. Þegar haldinn er stór útifundur þá fylgir því mikill kostnaður, t.d. við að flytja inn ræðuskörunga frá útlöndum og leiga á ýmiss konar búnaði. Þeir sem kaupa bókina mína geta með beinum hætti styrkt útifundinn í haust en kjarni hans verður samstaða gegn kynbundnu ofbeldi. Ég er í undirbúningsnefnd fyrir þennan stóra dag og fer fyrir hópi sem sér um listræn atriði. Það verður ýmislegt um að vera víðsvegar um bæinn.“ Þórdís Elva verður þrítug á þessu ári og var því ekki fædd á fyrsta kvennafrídeginum. Hún segist þó sjá stjörnur í augum móður sinnar og ömmu þegar rætt er um daginn. „Móðir mín áttaði sig ekki á hversu víðtæk samstaða kvenna yrði þennan dag og sat því heima með lítið barn. Hún hefur aldrei fyrirgefið sér það.“  Bók og barn Sjálf varð Þórdís Elva móðir í fyrsta sinn um sama leyti og bókin hennar kom út. „Það liðu aðeins 36 tímar á milli útkomu bókar minnar og fæðingar sonar míns. Þetta var því viðburðaríkasta vika ævi minnar og fæðingarorlofið hefur verið litað af því að fylgja bókinni eftir. Sonur minn var til dæmis bara þrettán daga gamall þegar ég var beðin um að ávarpa Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á landsþingi Ungra jafnaðarmanna. Síðan þá hef ég verið út og suður. Það hefur þó ekki komið niður á sambandi okkar mæðgina,“ segir hún. Baráttumál á svið Þórdís Elva var ung þegar hún vakti fyrst athygli sem leikskáld. Hún segir að lífið sé sífellt að koma sér á óvart. Hún hafi aldrei verið með neina meðvitaða stefnu heldur æxlast hlutirnir frekar á óvenjulegan hátt. Eftir menntaskóla þar sem hún dúxaði í námi hélt hún til Bandaríkjanna í leiklistarnám og fékk fullan námsstyrk. Ástæða þess að hún fór þangað var sú að engin inntökupróf voru í Leiklistarskóla Íslands þetta árið. Þórdís Elva dúxaði einnig í leiklistarnáminu og útskrifaðist þaðan 23 ára. Þegar hún kom heim var ekki hlaupið að því að kynna sig fyrir leiklistarheiminum og hún fór að vinna á bílasölu. „Sumir dagar voru rólegir og ég fór í gamni að skrifa leikritið Brotið sem Hafnarfjarðarleikhúsið keypti síðan og setti upp. Það fjallaði um geðræn vandamál. Þar með var boltinn farinn að rúlla og ég var beðin að skrifa fleiri leikrit,“ segir Þórdís Elva. Í framhaldinu var sett upp leikverkið Hungur eftir hana í Borgarleikhúsinu. Það fjallar um átröskun. Þá vann hún leikritasamkeppni á vegum Leikfélags Reykjavíkur og fór þriðja verkið hennar á svið en það heitir Fýsn og fjallar um mann sem haldinn er barnagirnd. Á sama tíma var Þórdís að skrifa bókina Á mannamáli. Þórdís Elva hefur ríka réttlætiskennd. Öll hennar verk hafa snúist um ákveðin baráttumál og hvernig á þeim er tekið í samfélaginu. Skrifin hafa setið á hakanum undanfarið en hún er með nýtt leikverk á teikniborðinu sem verður byggt á norrænu samstarfi. „Hugmyndin er að safna raunverulegum sögum, taka púlsinn á tíðarandanum í hverju landi fyrir sig og skoða muninn.“ Fyrir utan allt þetta hefur Þórdís Elva verið að leika. Margir muna kannski eftir henni úr glæpaseríunni Svörtum englum þar sem hún lék barnshafandi konu. Klámvæðing Þegar hún er spurð hvort hún gæti hugsað sér að fara út í pólitík neitar hún því ekki, þótt stefnan sé ekki sett í þá áttina. „Ef boltinn minn rúllar þangað er samt aldrei að vita. Ég hef sterkar skoðanir á stjórnmálum en þau baráttumál sem eru mér hugleikin eru þverpólitísk. Ég er líka mikil kvenréttindakona og femínisti en það orð er því miður oft misskilið. Sumir framhaldsskólanemar sem ég hef haldið fyrirlestra fyrir telja femínista vera konur sem séu á móti karlmönnum. Ég útskýri við svona tækifæri að femínisti sé manneskja sem er hlynnt jafnrétti kynjanna. Síðan spyr ég: Og erum við þá ekki öll femínistar?“ Margir eru á því að bakslag hafi komið í kvennabaráttuna með aukinni klámvæðingu á undanförnum árum. Þórdís er sammála því og fjallar um það í bókinni Á mannamáli. „Ég held að foreldrar hafi því miður verið sofandi á verðinum gagnvart klámi á netinu. Samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn skoða drengir á framhaldsskólaaldri klám að staðaldri og þeir eru með brenglaða mynd af kynlífi. Við erum auk þess afar slök við kynfræðslu í skólum og ég tel það mikið áhyggjuefni,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem er afar spennt yfir þessu merkilega afmælisári kvennabaráttunnar. „Mér finnst frábært að vera þátttakandi í þessu. Ég vil hvetja alla til að gerast öðlingar á www.odlingurinn.is og mæta með baráttugleðina meðferðis á útifundinn í haust.“ a Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Bók hennar Á mannamáli hefur vakið mikla athygli og nú vill hún hvetja alla til þess að vera öðlingar. 16 14-17 BarattukonaÞodis3efni.4 4 6/1/10 10:52:41 PM

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.