19. júní - 19.06.2010, Page 23
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, er ráðgjafi
í starfsþróun og starfsmannamálum. Hún segir að konur verði að
snúa þessari þróun við með öllum tiltækum ráðum. „Þegar VR fór
af stað með auglýsingaherferð um launaviðtalið árið 2000 kom vel
í ljós, m.a. í raunverulegum auglýsingum, sem vöktu mikla athygli,
að konur nefndu mun lægri tölu en karlar. Einnig kom í ljós eftir
að markaðslaunin voru tekin upp að ýmsir hópar sátu eftir. Helst
voru þetta konur sem voru aðeins eldri og höfðu aldrei þurft að
fara í launaviðtal og fannst það jafnvel óþægilegt. Þessi mikli
launamunur er í raun óútskýrður en maður spyr sig hvort þetta
geti verið okkur sjálfum að kenna,“ segir Ingrid.
Það er kúnst að verðleggja sig áður en farið er í launaviðtal.
Ingrid segir að mikilvægt sé að nefna ekki of lága tölu en heldur
ekki of háa.
„Mjög gott er að undirbúa sig vel með því að skoða m.a.
launakannanir sem gerðar hafa verið, hvað starfsmenn í
sambærilegum störfum eru að fá í laun, hvert er markaðsvirði
þekkingar þinnar o.s.frv. Það er vissulega erfiðara en áður að
gera launakröfur núna þegar margir eru að taka á sig minna
starfshlutfall og launalækkanir. Engu að síður þurfa konur að
vera með ákveðnar hugmyndir um laun þegar sótt er um starf.
Það er einnig afar mikilvægt að aflétta launaleynd,“ segir hún.
Konum fækkar í stjórnum
„Fyrirtækið Skýrr hefur tekið ákveðna forystu en þar eru gerðar
árlegar launakannanir innanhúss og launarammi fyrir hvert starf
hjá fyrirtækinu er ákveðinn
óháð kyni. Launaleynd hefur
verið afnumin hjá fyrirtækinu,
þannig að starfsmenn geta rætt
opinskátt um laun sín. Þetta
skapar gott fordæmi og góðan
vinnuanda. Hjá Reykjavíkurborg
var tekið upp starfsmat sem
notað er til þess að leggja með
kerfisbundnum hætti mat á
starfslýsingu og kröfur til starfs.
Með starfsmati skapast þannig
hlutlæg viðmið til grunnröðunar
á störfum. Forsendur
launaákvarðana byggðar
á starfsmati eru skýrar, sýnilegar
og aðgengilegar starfsmönnum.
Vissulega er menntun fólks þó
fjölbreytt og erfitt getur verið að verðleggja reynslu.“
Það er staðreynd að fáar konur eru í stjórnum fyrirtækja og
stjórnunarstöðum í stórum fyrirtækjum. „Margir vilja kenna
konunum sjálfum um,“ segir Ingrid. „Að þær hafi ekki nægilegt
sjálfstraust til að sækjast eftir betur launuðum stjórnarstörfum.
Konum hefur því miður fækkað í slíkum stöðum eftir hrunið. Ég
trúi því hins vegar varla að þær séu ekki tilbúnar til að taka að
sér ábyrgð. Maður hefur oft heyrt það viðhorf að konur þurfi
að sjá um heimilið og geti því ekki eða vilji vinna jafnlangan
vinnudag og karlar. Einnig eru fordómar í gangi, sumir karlmenn
telja konur lakari kost en karla.
Það er staðreynd að konur sækja fremur í stoðdeildir fyrirtækja,
markaðs- eða starfsmannadeildir,“ bætir Ingrid við. „Í rannsókn
sem ég vitnaði í í fyrirlestri sem ég hélt fyrir nokkru kom fram að
konur taka sjaldnar til máls á fundum en karlar. Þær eru líklegri
til að taka mistök persónulega og þær eru einnig líklegri til að líta á
árangur sem afleiðingu ytri aðstæðna fremur en að hann sé þeim að
þakka. Einnig eru þær margar haldnar fullkomnunaráráttu.“
Sjálfsskoðun
„Það er algengt þegar konur fara í sjálfsskoðun, t.d. á
námskeiðum, að þær dragi úr styrkleikum sínum. Þær eiga auðvelt
með að draga fram galla en hika þegar þær eru spurðar hvað þær
geri vel. Mjög mikilvægt er að hafa trú á sjálfri sér, sýna frumkvæði og
stefna að ákveðnum markmiðum. Ef við gerum ekki neitt þá gerist
ekki neitt. Sveltur sitjandi kráka, fljúgandi fær,“ segir Ingrid sem hefur
mikla trú á því að konur séu vel til þess færar að ná árangri á þessu
sviði. „Mér finnst mjög mikilvægt að konur standi vörð um réttindi
sín.“
Ingrid tók þátt í verkefninu Konur til forystu sem sett var í gang
árið 2001. Háskóli Íslands var meðal þeirra sem komu að því.
„Verkefnið var sett í gang vegna þess hversu fáar konur leituðu í
raunvísindagreinar og fáir karlar í hefðbundnar kvennagreinar. Gefinn
var út bæklingur sem nefnist Lykillinn að velgengni á vinnumarkaði.
Í honum voru fólki kennd fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Við ættum
þó ekki að vera of upptekin af því hvort störf séu dæmigerð kvenna-
eða karlastörf vegna þess að það getur aukið á fordóma gagnvart
ýmsum störfum.
Félag kvenna í atvinnurekstri hefur verið duglegt við að ýta á konur
að taka að sér setu í stjórnum fyrirtækja. Þar hefur verið gerður
listi yfir hæfar konur sem eru tilbúnar að taka að sér stjórnarsetu í
fyrirtækjum eða stjórn þeirra.“
Stundum heyrast þær raddir að konur séu verri stjórnendur en
karlar. Þær séu ráðríkar og erfiðar að eiga við. Ingrid kannast ekki
við það.
„Nei, þetta er klisja.
Bandarísk kona, Judy Rosener,
rannsakaði af hverju karlar þola
illa konur í stjórnunarstörfum.
Þar kom í ljós að karlar hafa
tilhneigingu til að líta á konur
fyrst og fremst sem mæður
eða kyntákn en ekki sem
stjórnendur,“ segir Ingrid og
bætir því við að konur verði
að vera tilbúnar til að taka
áhættu.
„Ég var á konukvöldi fyrir
stuttu þar sem nokkrar konur
sögðu frá því hvernig þær
komust til áhrifa. Kona ein
sem þar kom fram hafði fyrir
nokkru stofnað sprotafyrirtæki í
hugbúnaðargerð og leitaði að meðeiganda. Hún leitaði fyrst til kvenna
og talaði við tíu konur. Allar sögðu nei en fyrsti karlinn sem hún spurði
sagði já. Kannski er þetta stundum spurning um að þora.“
Treysta ekki karlinum
-Telur þú kynjakvóta rétta leið?
„Það er viðkvæmt mál. Úr því að það gengur svona illa að ná fram
jafnrétti í launum þá veltir maður kynjakvóta fyrir sér. Það hefur virkað
ágætlega í Noregi en það getur líka haft í för með sér neikvæðar
hliðar því markmiðið ætti alltaf að vera að ráða hæfasta einstaklinginn
burtséð frá því hvort hann sé karl eða kona.
Konur eiga stundum erfitt með að sleppa. Hvort þær eigi að treysta
karlmönnum að annast um börnin eða til að sjá um heimilið. Ég var
einu sinni með námskeið fyrir konur þar sem þetta vantraust var til
umræðu. Ein konan var að byrja að vinna aftur eftir fæðingarorlof.
Hún sagði frá því að á kvöldin tæki hún til allt það sem barnið ætti
að fara í morguninn eftir. Fötin voru í þeirri röð sem barnið átti að
klæðast flíkunum. Einn daginn hringdi karlinn í hana og spurði hvort
barnið ætti ekki að fara í skó? Hún hafði þá gleymt að taka til skóna
með hinum fötunum.“ a
Nýlegar kannanir sýna töluverðan launamun kvenna og karla og hann jókst frekar en hitt
í góðærinu. Þessi kynbundni launamunur er enn mikill þrátt fyrir áratuga baráttu kvenna.
Því hefur oft verið haldið fram að konur biðji um 30% lægri laun en karlar þegar þær fara
í launaviðtal eða sækja um vinnu.
Úr bæklingnum
Lykillinn að velgengni á vinnumarkaði
• Bíðið ekki eftir tækifærunum, heldur leitið þau uppi. Frumkvæði
er algert skilyrði til að komast í þau störf sem sóst er eftir. Sérstaklega
á þetta við í hinum hefðbundnu karlagreinum þar sem áralöng venja er
að karlar vermi sætin, þar er mun ólíklegra að verið sé að svipast um
eftir konu.
• Munið að það er ekki endilega heppilegt að gera allt í einu og
forgangsraðið því þeim þáttum sem þið hafið stjórn á í lífi ykkar.
Ábyrgðarmikil störf taka sinn toll af einkalífinu og það borgar sig að gera
sér grein fyrir því fyrirfram.
• Vertu óhrædd við að vera kona og vera þú sjálf. Reyndu ekki að
verða eins og strákarnir. Það er styrkur þinn að sjá mál frá öðrum hliðum
og nálgast þau öðruvísi en þeir. Vertu ekki of háð hópnum.
Aflétta þarf
LAUNALEYND
23
22-23 LaunaleinIngrid.indd 3 6/2/10 11:12:07 AM