19. júní - 19.06.2010, Page 31
31
Stórhuga kona
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir var verkakona af lífi og sál og stórhuga baráttukona. Hún setti
svip á þjóðmálaumræðuna á sínum tíma og vakti mikla athygli á kvennafrídeginum 1975
þar sem hún flutti kröftuga ræðu. Hún varð einskonar samnefnari tug þúsunda kvenna
sem vildu berjast fyrir jafnrétti og réttlæti. Aðalheiður sat á Alþingi fyrir Borgaraflokkinn á
árunum 1987-1991 en hún lést í apríl árið 1994.
„Hvernig get ég lýst tilfinningum mínum á því augnabliki sem
ég kom upp á pallinn og þúsundir andlita störðu á mig með
eftirvæntingu?
Það er kannski háfleygt að segja að ég hafi fundið andblæ
frelsis og réttlætis strjúkast við andlitið á mér. En þannig fannst
mér það vera. Líkt og ég heyrði í svip tvær ljóðlínur eftir Jóhannes
úr Kötlum, að vísu ortar um karla:
… þá koma þeir úr öllum áttum með óskir þær, sem flugu
hæst …
Seinna var sagt í blöðum að ég hefði lyft kvennadeginum. Það
er ekki satt. Kvennafjöldinn lyfti mér. Það var eins og ég rynni
saman við þessar tuttugu og fimm þúsund konur á torginu, við
yrðum allar systur, með eina sál. Mér var innanbrjósts eins og
ég hefði fjöreggið okkar í höndunum og ég tók á öllu sem ég
átti til.
Mér fannst ég tala röddu allra kvenna á Íslandi, röddu sem
hafði verið kæfð í ellefu hundruð ár.“
Úr bókinni Lífssaga baráttukonu, saga Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur, sem
Inga Huld Hákonardóttir skráði. .a
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
Systur með eina sál
29-31 AhrifinGuðrunAðalh.indd 5 6/1/10 2:11:54 PM