19. júní


19. júní - 19.06.2010, Síða 34

19. júní - 19.06.2010, Síða 34
Finnur þú fyrir því að vera kona í því sem einu sinni var kallað karlastarf? Ég finn ekki fyrir því sem forseti Alþingis að ég er kona. Það hafa orðið miklar breytingar á þinginu á undanförnum árum. Konum hefur fjölgað mjög og eru nú 43% þingmanna og því er nokkurt jafnræði með kynjunum. Við erum með einna jafnasta kynjahlutfallið í heiminum. Eftir síðustu kosningar var til dæmis öll forsætisnefnd Alþingis, þ.e. forseti og varaforsetar þess, skipuð konum. Einnig er ástæða til að vekja athygli á því að í ár eru allir þrír handhafar forsetavalds konur; forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar. Það er sögulegt því það hefur ekki gerst áður. Ertu meðvituð um það að eitt sinn datt engum í hug að kona gæti gegnt þessu starfi? Ó já, ég er vel meðvituð um það. Konur höfðu ekki kjörgengi og atkvæðisrétt fyrr en með breytingu á stjórnarskránni sem tók gildi þann 19. júní 1915. Það leið svo tæp hálf öld þar til Ragnhildur Helgadóttir var fyrst kvenna kosin forseti neðri deildar Alþingis, eina konan sem gegndi því embætti. Sautján árum eftir það, 1988, varð Guðrún Helgadóttir fyrsti forseti sameinaðs Alþingis og einn af handhöfum forsetavalds. Eftir að Alþingi varð ein málstofa árið 1991 og embætti forseta þingsins varð til í þeirri mynd sem nú er hafa fjórir karlar og þrjár konur gegnt því, að mér meðtalinni. Telur þú að komið sé öðruvísi fram við þig í starfinu af því að þú ert kona en ef þú værir karlmaður? Almennt tel ég svo ekki vera. Það hefur stundum verið erfitt fyrir suma karla þegar konur stjórna og hafa ráðin. En það heyrir til liðnum tíma sem betur fer. Hvað telur þú að helst hafi orðið til þess að breyta ríkjandi hugsunarhætti um að sumar stöður væru ekki kvennastörf? Jafnréttisbaráttan og breytt viðhorf í samfélaginu til kynjanna. Fyrirmyndir eru líka mjög mikilvægar. Ef börn alast upp við að sjá konu í hefðbundnu karlastarfi, eins og var reyndin þegar Vigdís Finnbogadóttir var forseti Íslands, þá verður það í huga barnsins eðlilegt og sjálfsagt. Jafnvel vakti það furðu barna að heyra að sums staðar væri karl forseti. Konur sem voru frumkvöðlar í karlastörfum ruddu brautina fyrir þær sem á eftir komu og breyttu viðhorfinu í samfélaginu smátt og smátt. Jóhanna Sigurðardóttir er fyrsta konan til að gegna starfi forsætisráðherra og er því mikilvæg fyrirmynd ungra kvenna sem hyggjast hasla sér völl í pólitík. Hverja telur þú vera ástæðuna fyrir því að konur sækjast minna eftir stjórnunarstöðum en karlar? Það er vitað að fjölskylduábyrgðin hefur hvílt meira á herðum kvenna og stjórnunarstöður eru oft á tíðum mjög krefjandi, það hefur án efa fælt konur frá því að taka á sig þá ábyrgð sem stjórnunarstöðum fylgir. Konur eru einnig mjög oft samviskusamar og varkárar og vilja ekki taka neitt að sér sem þær eru ekki vissar um að geta sinnt hundrað prósent eða fullkomlega. Þetta hafa rannsóknir sýnt. Hvað telur þú geta aukið áhuga kvenna á setu í stjórnum fyrirtækja? Í vetur voru samþykkt lög á Alþingi um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Lögin hafa það að markmiði að tryggja aukið jafnrétti kynjanna í stjórnum fyrirtækja og við ráðningu stjórnenda. Ákvæðin um kynjakvóta taka gildi í september 2013, svo fyrirtæki hafa aðlögunartíma til stefnu. Því miður var frumkvæði markaðarins ekki til staðar svo lögfesta þurfti kynjakvóta, þótt vissulega hafi staða kvenna í atvinnulífi batnað frá því sem áður var. Vonandi mun þessi aðlögunartími vekja áhuga kvenna á setu í stjórnum fyrirtækja, en ekki síður stjórnenda og hluthafa fyrirtækja á að velja konur í stjórnir. Það er allra hagur að hlutföll kynjanna í stjórnum fyrirtækja séu sem jöfnust. Ég trúi því staðfastlega að það sé hagur karla og kvenna, en síðast en ekki síst hagur fyrirtækjanna sjálfra. Hvað getum við gert til að hvetja konur til að sækja um valdastörf? Frumkvöðlarnir eru mikilvæg fyrirmynd, bæði þeir sem veljast til pólitískra starfa sem og í atvinnulífinu. Þeir hafa því mikilvægu hlutverki að gegna við að sýna konum fram á að þær geta fengist við öll störf og eiga jafnan rétt til þess. Það er ekki síst mikilvægt að koma þessum skilaboðum skýrt til ungra kvenna. Hvers vegna er enn til kynbundið launamisrétti á Íslandi? Kynbundið launamisrétti er því miður enn þá til staðar en breytingar á lögum um fæðingarorlof áttu þátt í að jafna launamun kynjanna frá því sem áður var. Slíkar breytingar taka tíma og ég held að aukið jafnrétti í atvinnulífinu og stjórn þess, ásamt hærra hlutfalli kvenna á þingi, muni hafa áhrif. Dropinn holar steininn og við verðum að vera vakandi í baráttunni við að jafna þennan mun, bæði við sem sitjum á þingi, verkalýðsforystan, vinnuveitendur, menntastofnanir og í raun samfélagið í heild sinni. Það má aldrei slá slöku við í jafnréttisbaráttunni. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Ég er kona ... og er Forseti Alþingis 34 32-41 Eg er kona5styrk.indd 4 6/1/10 2:13:27 PM

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.