19. júní - 19.06.2010, Síða 44
45
- frá Kvennasögusafni Íslands
u Kvennasögusafni Íslands hafa borist upplýsingar um
541 íslenska konu sem lokið hafa doktorsprófi. Nöfn þeirra
eru skráð þar ásamt þeim upplýsingum sem til eru um heiti
ritgerðar, dagsetningu doktorsvarnar og nafni háskóla þar
sem vörn fór fram. Nöfnum verður bætt við þessa skrá
jafnharðan og upplýsingar berast. Landsbókasafn Íslands
á eintak af nær öllum ritgerðunum.
u Hlutfall kvenna í framboði til sveitarstjórna í maí 2010 var
hærra en nokkru sinni áður, eða 1.331 kona á móti 1.515 körlum.
Konur eru því 46,8% frambjóðenda. Ef eingöngu eru skoðuð
hlutföll kvenna og karla í efstu sætum framboðslista breytist
myndin þó umtalsvert.
Hlutfall kvenna í fyrsta sæti framboðslista sem buðu fram er
24,9% á móti 75,1% karla. Konur í öðru sæti framboðslista voru
hins vegar 62,2% en karlar 37,8%. Ef skoðað er hlutfall kvenna
og karla í fjórum efstu sætum allra framboðslista kemur í ljós að
karlar skipa 55% þessara sæta en hlutfall kvenna er 45%.
u Í lok apríl 1970 kom saman hópur ungra kvenna
í kjallara Norræna hússins til að ræða stöðu kvenna
á Íslandi og aðgerðir til að vekja almenning. Fyrr í apríl
hafði danskur kvennahópur er kallaði sig Rødstrømperne
þrammað eftir Strikinu í Kaupmannahöfn, skrýddur
risabrjóstum, gríðarlegum höttum, gerviaugnahárum
og rauðum sokkum. Þessi aðgerð vakti gífurlega athygli
fjölmiðla, einnig hinna íslensku. Fréttir höfðu einnig borist
af aðgerðum kvenna prýddum rauðum sokkum í New York,
en sá hópur kallaði sig New York Redstockings og tók til
starfa 1968. Hinn óhefðbundni hollenski hópur Dolle Mina
sem kom fram á sjónarsviðið í byrjun árs 1970 vakti einnig
mikla athygli.
u Frá árinu 1922 hafa 73 konur setið á Alþingi. Fyrsta konan
sem sat á Alþingi var Ingibjörg H. Bjarnason, 1922-1930. Aldrei
hafa fleiri konur setið á Alþingi og nú. Eftir síðustu kosningar í apríl
2009 var hlutfall kvenna á þingi 42,9% en þá voru þær 27. a
Áhugaverðar
upplýsingar
M
yn
d
Ó
lö
f J
ón
a
G
uð
m
un
ds
dó
tti
r m
yn
dl
ist
am
að
ur
.
44-45 PossuðukonurnarÞoranna.i2 2 6/1/10 2:20:58 PM