19. júní - 19.06.2010, Side 45
Vissulega má segja að margt hafi áunnist síðustu 100 árin eða
svo. Staða kvenna, hvort sem litið er til tækifæra til menntunar,
atvinnuþátttöku eða áhrifa er margfalt meiri nú en fyrir 50 árum,
framfarirnar eru merkjanlegar. Hins vegar er enn afar langt í að jafnvægi
sé náð. Kynbundinn launamunur er því miður ennþá staðreynd og
þrátt fyrir stöðuga framför síðustu 25 árin eru konur í stjórnmálum
enn talsvert færri en karlar. Þegar kemur að stjórnunar-, valda- og
áhrifastöðum í viðskipta- og fjármálalífi er staðan afar döpur, en það
er einmitt sú staðreynd sem veldur því að það er rík ástæða til að
hafa áhyggjur.
Fjármagni fylgja völd og ábyrgð
Viðskiptalífið er mikilvæg stoð í samfélaginu. Þar skapast
atvinnutækifæri, þar er lífæð vöru- og þjónustuframboðs og farvegur
fjármagns. Fjármagni fylgir mikið vald, en eins og dæmin sanna
er því miður hægt að misnota vald. Það er því afar mikilvægt að
forystusveit viðskiptalífs og fjármálageira sé skipuð hæfum og
reyndum einstaklingum með góða siðferðiskennd. Þá er einnig afar
mikilvægt að þennan hóp skipi fjölbreyttir og víðsýnir einstaklingar, þar
séu skoðanaskipti virk og gagnrýninni hugsun beitt.
Of mikil einsleitni í forystusveitinni dregur úr gagnrýninni hugsun og
afleiðingin verður hjarðhegðun. Það má með sanni segja að einsleitni
og hjarðhegðun hafi einkennt íslenskt viðskiptalíf á síðustu árum. Þeir
sem ekki fylgdu forystusauðunum að málum eða leyfðu sér að spyrja
gagnrýninna spurninga áttu ekki upp á pallborðið. Fæð kvenna í
þessum geira má því hugsanlega skýra með því að þær hafi ekki
„passað í hópinn“. Á hinn bóginn má svo spyrja sig að því hvort aukin
fjölbreytni, m.a. með tilkomu fleiri kvenna, hefði getað komið í veg fyrir
að viðskiptalífið var sett á hliðina.
Aukin aðkoma kvenna bætir verklag og ákvarðanatöku
Niðurstöður doktorsrannsóknar sem ég hef unnið að síðustu ár gefa
sterklega til kynna að aukin aðkoma kvenna að stjórnum fyrirtækja
getur bætt verklag og ákvörðunarferli til muna. Rannsóknin leiddi í ljós
að verklag stjórna þar sem karlar voru í miklum meirihluta einkenndist
af frekar almennu innleggi stjórnarmanna og lítilli gagnrýni. Stjórnirnar
voru almennt lítið virkar á formlegum vettvangi, en óformleg tengsl
og samskipti milli stjórnarfunda voru talin skipta miklu máli. Þær fáu
konur sem skipuðu þessar stjórnir voru mun virkari en karlarnir við að
spyrja gagnrýninna spurninga og knýja stjórnendur til ábyrgðar, en
þar sem þær tilheyrðu ekki hinu óformlega tengslaneti hafði innlegg
þeirra lítil áhrif.
Verklag stjórna þar sem hlutfall karla og kvenna var jafnt eða konur
í meirihluta var gjörólíkt. Stjórnirnar voru mjög virkar og bæði konur
og karlar lögðu áherslu á að spyrja gagnrýninna spurninga og knýja
stjórnendur til ábyrgðar. Umræðan var bæði virk og opinská sem
leiddi til betur ígrundaðra ákvarðana og umræður og ákvarðanir fóru
fram á stjórnarfundunum en ekki á óformlegum vettvangi.
Hversu hægar breytingar eigum við að sætta okkur við?
Það er ljóst að það verklag sem hefur viðgengist í viðskipta- og
fjármálalífi hefur leitt til hörmunga. Það er löngu tímabært að brjóta
upp vana þess og ósiði. Aukin aðkoma kvenna að valda- og
áhrifastöðum í viðskiptalífinu er ein fljótlegasta og skilvirkasta leiðin
til að auka fjölbreytni sem aftur hvetur til gagnrýninnar hugsunar og
vandvirkari vinnubragða. Okkur er ekki stætt á því lengur að bíða þess
að í fyllingu tímans muni breytingarnar gerast af sjálfu sér. Gleymum
því ekki að þær breytingar sem hafa unnist til þessa komu til vegna
kjarks, áræðni og þrautseigju þeirra sem á undan okkur gengu. Við
megum því til með að taka við kyndlinum og knýja framfarir með
öllum dugandi ráðum. Látum ekki segja okkur að við eigum ekki að
sækjast eftir völdum. Það er afar brýnt samfélagslegt málefni að valdi
og áhrifum í viðskipta- og fjármálalífi sé dreift meðal bæði karla og
kvenna. Látum ekki segja okkur að það skipti ekki máli. Aukin völd til
kvenna eru forsenda umbóta og heilbrigðara samfélags. a
Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital
Pössuðu
konurnar ekki
í hópinn?
Ég hef á síðustu árum orðið vör við vaxandi áhyggjur og óþolinmæði kvenna yfir því
hversu hægt gengur að auka hlutdeild kvenna í valda- og áhrifastöðum. Hreyfumst við
of hægt? Eða skortir okkur þolinmæði til að meðtaka þá staðreynd að allar breytingar
taka tíma?
Fleiri konur í valda- og áhrifastöðum í viðskiptalífinu
– heilbrigðara samfélag
45
44-45 PossuðukonurnarÞoranna.i3 3 6/1/10 2:21:05 PM