19. júní - 19.06.2010, Side 49
Kaaber, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., og Sóley Tómasdóttir
borgarfulltrúi. Fyrir fundinn hafði framkvæmdastjóri KRFÍ, Halldóra
Traustadóttir, gert lauslega könnun á kynjahlutfalli viðmælenda
tveggja umræðuþátta í Ríkisútvarpinu og Sjónvarpinu sem leiddi í
ljós að einungis um 20-25% viðmælenda voru konur í þáttunum
sem um ræddi (Vikulokin á Rás 1 og Silfur Egils í Sjónvarpinu). Álíka
könnun gerði Sóley Tómasdóttir, en hún skoðaði viðmælendur
í viðræðuþáttum í sjónvarpi á sjónvarpsstöðvunum þremur:
Ríkissjónvarpinu, Stöð 2 og Skjá einum. Niðurstöður Sóleyjar sýndu
álíka hlutfall kvenna sem viðmælendur í sjónvarpsþáttunum með
þeirri undantekningu að í spjallþætti Sölva Tryggvasonar: Spjallið með
Sölva, var kynjahlutfallið jafnt. Af því tilefni færðu formaður og ritari
KRFÍ Sölva viðurkenningarskjal. Það er einn liður í starfi KRFÍ að veita
viðurkenningu til þeirra eða þess sem er jákvætt í jafnréttisbaráttunni
og hafa nokkur fyrirtæki hlotið slík viðurkenningarskjöl, t.d. fyrir
eftirtektarverðar auglýsingar sem brjóta upp kynjamynstrin og/
eða eru til fyrirmyndar í jafnréttisbaráttu kynjanna að öðru leyti.
Aðrar viðurkenningar ársins hlutu Elín Björg Jónsdóttir sem var
kjörin fyrsta konan til að gegna starfi formanns BSRB og síðan var
Sveinbjörg Hermannsdóttir, félagi í KRFÍ um áratuga skeið, gerð
að heiðursfélaga á aðalstjórnarfundi í september 2009. Einnig var
það sönn ánægja stjórnar að heiðra eigin stjórnarkonu, Ragnhildi G.
Guðmundsdóttur, sem hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu,
1. janúar 2010 fyrir starf sitt að félagsmálum. Hún er nú fulltrúi KRFÍ
í Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og hefur gegnt þar formennsku frá
árinu 2004.
Kvennasögusafn Íslands og KRFÍ héldu sameiginlegan jólafund
10. desember og áttu stjórnir félaganna, starfsmenn, félagar og aðrir
gestir notalega kvöldstund saman í hæfilegri blöndu af menningu,
skemmtun og ljúfum veitingum. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm,
ung og efnileg söngkona úr Mosfellsdal, söng nokkur jólalög og lesið
var úr tveimur bókum: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir las upp úr bók sinni
Ofbeldi á Íslandi - Á mannamáli, sem m.a. var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og Elín Albertsdóttir blaðamaður las úr bók
sinni Íslenska undrabarnið – Saga Þórunnar Ashkenazy. Kvöldinu
lauk með hinu vinsæla jólahappdrætti KRFÍ þar sem vinningarnir eru
margir hverjir glæsilegir; margir bókaútgefendur gefa nýútkomnar
bækur til happdrættisins, auk eldri titla, stéttarfélög hafa gefið helgi
í sumarbústöðum félaganna og snyrtistofur hafa gefið vinninga, svo
fátt eitt sé talið.
Á nýja árinu var haldið upp á 103ja ára afmæli KRFÍ. Að þessu
sinni var boðið til hádegissúpufundar og umfjöllunarefnið var staða
eldri kvenna í samfélaginu. Þrjár heldri konur fluttu forvitnileg erindi
um eigin reynslu, þær Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, yfirmaður
félagsstarfs aldraðra í Kópavogi og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona.
Met þátttaka varð á fundinum, um 80 konur, sem er fjölmennasti
súpufundur sem KRFÍ hefur staðið fyrir til þessa.
Auk afmælisdags KRFÍ er annar viðburður á þorra fastur liður í
starfinu. Félagið hefur haft þann háttinn á að bjóða alþingismönnum
til þorrablóts á Hallveigarstöðum, sem hefur tvíþættan tilgang:
Annarsvegar að þakka þann góða stuðning sem félagið hefur notið
undanfarin ár í formi styrks af fjárlögum og hinsvegar að kynna
félagið og starfsemi þess og verkefni hverju sinni. Líkt og í fyrra varð
nokkur afgangur af þorramatnum, sem KRFÍ færði Samhjálp.
Á konudaginn, 21. febrúar, héldu félögin á Hallveigarstöðum
opið hús með dagskrá og kaffiveitingum. Dagskráin var fljölbreytt
og afar vel sótt. Kynning var á átakinu Öðlingurinn sem Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir hrinti í framkvæmd á bóndadaginn. Helga Guðrún
Jónasdóttir, varaformaður KRFÍ, kynnti viðburði í tengslum við 35
49
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands frá vinstri: Margrét K. Sverrisdóttir, Halldóra Traustadóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir,
Sólborg A. Pétursdóttir, Ragnheiður Bóasdóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Margrét Steinarsdóttir og
Hildur Helga Gísladóttir.
46-49 Skyrsla stjornar.indd 3 6/2/10 1:15:56 PM