Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Umræða DV
SANDKORN
DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR
HVAÐ ÆTLAR EYÐIR ÞÚ MIIvLU í JÓLAGJAFIR í ÁR?
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vlsir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm.
FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7CXX), RITSTJÓRN 512 7010,
ASKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
■ Björn Ingi Hrafnsson, leið-
togi Framsóknarflokksins í
Reykjavík, má vel við una eftir
að miðstjórn
flokksins
lýsti einróma
stuðningi við
hann og Ósk-
ar Bcrgsson.
Líkur aukast
því á að hann
verði íyrir-
hafnarlítið
næsti formaður þótt Valgerður
Sverrisdóttir varaformaður hafi
sýnt formannstakta í þinginu
að undanförnu með stjórnar-
andstöðu sem er reyndar fáséð
á tímum ofurmeirihluta Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks.
■ Óhamingjunni innan borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins virðist seint æda að linna.
Uppreisnarmennimir Gísli
Marteinn
Baldursson
og Hanna
Birna Kristj-
ánsdóttir
eru nú undir
ströngu eftír-
liti Vilhjálms
Þ. Vilhjálms-
sonar, fyrr-
verandi borgarstjóra, sem hermt
er að sé ekkert á förum sem
leiðtogi þrátt fyrir áföll. Nýjasta
útspil Vilhjálms er sú hugmynd
að setjast í stýrihóp vegna Orku-
veitunnar en þar er Hanna Birna
fyrir. Þetta fór mjög fyrir brjóst
andstæðinga Vilhjálms innan
borgarstjómar sem telja það
út úr öllu korti að hann setjist í
stýrihópinn eftír það sem á und-
an er gengið.
■ Menningar- og ferðmálanefnd
Reykjavíkurborgar er á leiðinni
tíl Boston þann 26. nóvember
þar sem dvalið verður í þrjá
daga. Meðal þeirra sem fara eru
Vilhjálmur Þ.
Vilhjáhnsson
og Kjartan
Magnússon
frá Sjálfstæð-
isflokkn-
um, Margrét
Sverrisdóttir,
formaðurfrá
frjálslyndum
og Sóley Tómasdóttir frá VG.
Ferðin er farin á kosmað Reykja-
víkurborgar en hvert svið hefur
kvóta fyrir einni slíkri slíkri ferð
á kjörtímabilinu. Óljóst er með
tilgang fararinnar.
■ Útvarpsréttarnefnd er ekki
sátt við frammistöðu frétta-
stjóranna Elinar Hirst hjá
Sjónvarpinu og Steingríms S.
Ólafssonar hjá Stöð 2 vegna
óhugnanlegra myndbirtinga
án viðvörunar í fréttatímum
stöðvanna.
Fréttastjór-
arnir voru
kallaðir á
teppið og
áminntir
vegna þessa.
Annars
hefur vak-
ið athygli
að Steingrímur, sem býr yfir
nokkurri útgeislun, er ekki
sýnilegur hjá Stöð 2 þrátt fýrir
að vera aðalfréttastjóri þar.
rt@dv.is
FJÖLSKYLDAN ER H0RNSTEINN
vísu. Bill Clinton, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, varð
að láta af embætti langt
fyrir aldur fram vegna
þess að reglur eru um
að forseti megi ekki
sitja lengur en í átta
ár. Hillary, eiginkona
hans, sýndi frábæra
takta í Hvíta húsinu og
lét sig ýmis mál varða. Hún
beindi kröftum sínum þó mest
og best í heilbrigðismálum. Nú
er hún komin með annan fótinn
í Hvíta húsið aftur en Bill verður
forsetafrú. Bandaríkjamenn skilja
að hæfileikar eiga það til að leita
í hnapp.
„Ég hugsa að það fari nærri 100
þúsundum króna (ár.Við gefum mjög
margar gjafir á hverju ári og eyðum
svipað árlega."
Hans Albert Hansen,
44 ára bankastarfsmaður
„Ég hef ekki hugmynd. Gjafirnar eru að
minnsta kosti margar og ég gæti trúað
þv( að ég eyði mjög svipað á hverju ári.
Ég þori ekki að segja frá þv( hvað ég
eyði miklu, það er svo mikið."
Karl Júlíusson, 58 ára sjómaður
„Ég gef mjög margargjafir, ætli þetta
séu ekki einhverjar 50 gjafir allt í allt.
Ég bý út í Hollandi og þarf því að senda
allar gjafirnar heim. Ég gæti ímyndað
mér að þetta sé á bilinu 50 til 60
þúsund á hverju ári."
Melissa Katrín Bjarnadóttir,
31 árs bankastarfsmaður
„Ég gef ekki margar gjafir, það er
aðallega til fjölskyldunnar minnar. Ég
giska á að ég eyði svona 10 þúsund
krónum (gjafir."
Ragnheiður Magnúsdóttir,
12áranemi
Inga Jóna er á sömu braut. Hún
hefur sannað sig sem leiðtogi
borgarstjórnarflokks Sjálfstæð-
isflokksins þótt Björn Bjarnason
hafi brugðið fæti fyrir hana og
síðan tapað kosningabarátt-
unni. Hluti af því sem er
kallað fjölskylduvæð-
ing flokksins er að Inga
Jóna brá fæti fyrir Alfreð
Þorsteinsson og varð
formaður nefndar um
hátæknisjúkrahús. Þar
með er hún komin í heil-
brigðismálin eins og Hillary og
eftir nokkur ár getur hún haft hlut-
verkaskipti við Geir sem þá yrði
forsætisráðherrafrú.
Og það er fullkomlega eðlilegt
að sonur Ingu Jónu sé kall-
aður til ábyrgðar í flokknum
rétt eins og tengdadóttir hennar
sem annast nú framkvæmdastjórn
í lemstruðum borgarstjórnar-
flokknum. Þarna er á ferð
góð ogvönduð fjölskylda
sem er líkleg til að bjarga
Sjálfstæðisflokknum út
úr ólgusjó klofnings og
deilna. Það hefur stundum
verið sagt á tímum einingar
að Sjálfstæðisflokkurinn sé
eins og ein stór fjölskylda. Nú
þegar óeining ríður húsum í Val-
höll er áríðandi að fjölskyldan sé til
staðar. Hún er hornsteinn flokksins.
Hvað sem það kostar
LEIÐARI
SIGURJÓN M. EGILSS0N RITSTJÓRISKRIFAR.
Ilúii var ekki þeirra tap. Hikiö borgar, Iwat) sem þat) kostar.
Ríkið á stundum meira en nóg af peningum. Ráðamenn
hafa ekki hikað við að kosta til peningum í gæluverk-
efni. Davíð Oddsson gekk einna iengst fram, en í stjórn-
artíð hans varð ríkissjóður nokkuð áberandi í bókaút-
gáfu. Hæst bar kannski bókina um forsætisráðherra í eina öld.
Þar var lokakaflinn einmitt um Davíð sjálfan, skrifaður af Styrmi
Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins. Ekki var hugsað um að
bókin stæði undir sér. Heildarkostnaður við bókina nam átta
milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk frá for-
laginu Hólum var bókin prentuð í tvö þúsund eintökum. Þau
scldust öll. Samt borgaði ríkið fjögur þúsund krónur með hverju
eintaki. Mögulega hefðu einhverjir af kaupendunum keypt aðr-
ar bækur í stað þessarar. Ríkið þrengdi að annarri bókaútgáfu
með útgáfunni. Það þykir ekki öllum.
„Þetta getur verið ansi erflð barátta, sérstaklega ef forlög
ráðastíút- gáfu á stærri og dýrari verkum. Það
þarf tvímælalaust að hækka þess-
\ ar styrkveitingar." Þetta er mat
Bjarna Þorsteinssonar, út-
gáfustjóra bóka almenns
efnis og kennslubóka
_ hjá bókaforlaginu
^ \ Bjarti-Veröld. „Þetta
eru oft á tíðum mjög dýr og stór verk og þess vegna þarf ansi
myndarlega styrki til að útgáfan borgi sig. Þeir hafa því miður
verið af skornum skammti. Ef svona stór og metnaðarfull verk
eru ekki styrkt, er alls óvíst að menn leggi út í að gefa þau út eða
þá að verkin verði það dýr að fólk ráði ekki við að kaupa þau."
Þessi sjónarmið eru fráleit. Einkum þegar einstaka ráðherra not-
ar ríkissjóð til að láta skrifa um sig lofgjörðir. Jafnvel af engu til-
efni eða litlu. Stundum virðist hugsunin vera sú, að verkið verði
unnið hvað sem það kostar.
„Við teljum að það væri hagkvæmara fyrir samfélag fræðimanna
sem skrifa þessar bækur og skattgreiðendur að þessi verkefni
væru boðin út, í stað þess að ráðuneytin setjist bara niður og
byrji. Þá gætu bókaútgefendur sest niður og komið með tillögur
þar sem hægt er að meta verkin og þá fjármuni sem eru í boði
hverju sinni." Þetta er sjónarmið Krisrtjáns B. Jónassonar, for-
manns Félags íslenskra bókaútgefenda. Þessi sjónarmið eru
skiljanleg. Það getur ekki verið rétt að ráðherra álcveði að láta
ríkið gefa út bók, ráði ritstjóra, ákveði fjárveitingar og hverjir
aðrir skrifl í ritið.
Verst fór ríkissjóður út úr útgáfu á sögu Stjórnarráðs íslands.
Styrkurinn hljóðaði upp á 62,6 milljónir króna. Útgefendurn-
ir höfðu eðlilega engar áhyggjur af sölunni. Hún var ekki þeirra
tap. Ríkið borgar, hvað sem það kostar.
SVARTHÖFÐI
Afturhaldssamt fólk hefur
gagnrýnt það að fjölskylda
forsætisráðherrans sé orðin
svo fyrirferðarmikil á valdastólum
samfélagsins að nýtt hugtak, fjöl-
skylduvæðing, sé komið tif að vera.
Þetta er áróður af sama toga og þeg-
ar talað er um einkavinavæðingu í
tengslum við Sjálfstæðisflokkinn og
Framsóknarflokkinn þegar nokkrir
kunningjar valdhafanna slysuðust
í feit embætti. En fjölskylduvæðing
forsætisráðherra er hreinn áróður.
Steingrímur Hermannsson, fýrrver-
andi forsætisráðherra, átti það gull-
korn þegar samherji hans var skip-
aður flugmálastjóri að menn ættu
ekki að gjalda fyrir það eitt að vera
framsóknarmenn. Hið sama gildir
nú um fjölskyldu forsætisráðherra.
Fólk má ekki gjalda fyrir það eitt að
vera staðsett þar í litrófi lífsins.
Hæfileikafólk á það til að
leita í hnapp. Þannig
þarf enginn að
undrast það að Inga Jóna
Þórðardóttir sé
eiginkona
formanns
Sjálfstæð-
isflokksins.
I hjónaband-
inu samein-
ast tveir öflugir
einstaklingar sem
báðir þurfa að hafa
svigrúm til góðra starfa í þágu
samfélagsins alls. Og það er ekkert
nýtt að hjón séu bæði á heims-