Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Umræða DV
W"
/ulffmorgenthaler.com
By Mikael Wulíf & Anders Morgenthaler
HVAÐ BAR HÆST í VIKUNNI?
a ’&mii
Skelfileg nauðgun
Helst bera að nefna þessa skelfilegu
nauðgun á Laugaveginum. Það er hörmu-
legt að heyra fregnir af þessu. Næturlífið
í miðbænum virðist sífellt vera að versna.
Lögreglan er sannarlega búin að gera mikið
átak þar og ég dáist að því. Ég er viss um að
aðgerðir þeirra skila árangri.
Ég á annars fullt í fangi með að fylgjast
með þessari sífelldu umræðu um þjóðmál-
in. Mér finnst þetta verða síbylja sem dynur
á fólki.
Hjá sjálfri mér bar hæst sú mikla vin-
semd sem Grafarvogssöfnuðurinn sýndi
mér á sunnudaginn með því að útbúa dag-
skrá um störf mín og verk. Þessu íylgdu síð-
an höfðinglegar veitingar. Ég er þeim mjög
þakklát.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
prestur Kvennakirkjunnar
Nauðganir og flótti
„Fregnir af fjölda hrottalegra nauðgana
slógu mig. Óheft flæði útlendinga hing-
að til lands hefur því miður orðið til þess
að samfélagsþegnar geta ekki lengur um
frjálst höfuð strokið. Því miður virðist það
vera svo að allskonar lýður hefúr kom-
ið hingað og fréttum að slæmri hegðun
Qölgar sífellt. Síðast var ákveðið að loka
heilu skemmtistöðunum fyrir aðgengi út-
lendinga sökum hegðunar í garð íslenskra
kvenna. Nú er að koma á daginn að mál-
flutningur Jóns Magnússon, þingmanns
Frjálslynda, var ekki svo fráleitur eftir allt
saman og fráleitt að vera iðulega að tala
um þá umræðu sem rasisma. Jón virð-
ist hafa hitt naglann á höfuðið með þá
staðreynd að við þurfum að spá virkilega
vel í því hverjum sé hleypt inn í landið og
kanna feril þeirra sem hingað koma.
Það sem stendur einnig uppúr hjá mér
að horfa upp á hinn gífurlega fiótta úr
kennararstéttinni. Ég hef aldrei upplifað
annan eins flótta og ég hef orðið var við
síðustu daga. Það eru nánast allir í kring-
um mig að íhuga að hætta og því miður
vofir yfir að menntaðir kennarar séu á leið
frá starfinu."
Sigurbjörn Hreiðarsson,
fyrirliði meistaraflokks Vals í knattspyrnu:
Húsnæðisverð og
stefnuleysi
„Að húsnæðisverð haldi áfram að
hækka, nú um eitt og hálft prósent á einum
mánuði, þvert ofan í allar spár. f nærri tvö
ár hafa spámenn spáð fýrir lækkun hús-
næðisverðs án þess að úr hafi ræst. Van-
mat spámanna hefur komið mér á óvart og
gífurlega hátt húsnæðisverð er stór liður í
verðbólgunni.
Blessuð orkumálin koma mér sífellt á
óvart. Mér fannst merkilegt að sjá nýj-
an meirihluta í borgarstjórn viðurkenna
stefnuleysi sitt og að þannig verði hlutun-
um háttað hjá meirihlutanum. Um leið
og það vekur furðu mína er þessi viður-
kenning merki um ákveðinn heiðarleika.
Þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart því
það hefur margsinnis sannast að samstarf
margra flokka með þessum hætti getur ekki
virkað vel og verður til þess að málum sé
slegið á frest. f staðinn fyrir stefnu fram í
tímann hefur nýr borgarstjóri viðurkennt
að hann taki bara hvern dag fyrir í einu.
Það má segja að hér sé dagur um dag frá
degi til dags."
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks í Arborg
Jólabækurog Alþingi
„Það stendur mér nálægt það sem hefur
verið að gerast á Alþingi í vikimni. Það er
búið að vera heilmikið að gera á þinginu.
Það er verið að kynna skýrslu umboðs-
manns Alþingis um störf þingsins. Þar er
verið að fara yfir að Alþingi þurfi að vanda
sínar lagasetningar betur. Mér finnst það
líka sem nýjum þingmanni að það mætti
vanda betur til verka. Það er ekki af því að
fólk er ekki að vinna sína vinnu vel heldur
frekar vegna þess að það vantar fleira fólk.
Það vekur samt athygli að þetta sé til um-
ræðu um sjálfan löggjafann. Við viljum að
hann standi sig vel.
Svo finnst mér skemmtilegt hversu
margar góðar bækur hafa verið að koma út
að undanförnu. Mér finnst þessi tími ársins
vera mjög skemmtilegur og ég bíð mjög
spennt eftir nýju bókinni hennar Yrsu Sig-
urðardóttur. Eg er nýbúin að lesa nýju bók-
ina hans Arnalds sem ég var mjög ánægð
með. Það skortir ekki úrvalið þessi jólin
frekar en svo oft áður."
Katrín Jakobsdóttir,
Alþingiskona
Hefurðu nýtt þár FrfetundakortiðP
Frístundakortið
er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir
6-18ára börn og unglinga í Reykjavík.
Nánar á www.itr.is
Styrknum fyrir árið 2007 þarf að
ráðstafa fyrir 10. desember nk.
ý • 110 Reykjavík • Sími 411-5000