Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Síða 25
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 25
ar stofnuðu þeir saman hljómsveitina
Ðe Lónlí Blú Bojs. Árið 1976 gaf Rún-
ar svo út fyrstu plötu hljómsveitarinn-
ar Brimkló þar sem Björgvin var lykii-
maðurinn.
Með brilljantín í hárinu
Árið 1979 var HLH flokkurinn
stofnaður. Meðlimir flokksins voru
þeir Halli, Laddi og Björgvin Helgi
Halldórsson. Það kom mörgum
spánskt fyrir sjónir þegar uppgötvað-
ist að átrúnaðargoðið Bjöggi Halldórs,
einnig þekktur sem Bó, hét í raun réttri
Björgvin Helgi. HLH flokkurinn dreg-
ur því eiginlega nafn sitt af upphafs-
stöfum þessara þriggja einstaklinga.
Við höfðum mikinn áhuga á tónlist ffá
árunum nítján hundruð og fimmtíu og
nítján hundruð og sextíu og ákváðum
þar af leiðandi að stofna hljómsveit
sem myndi flytja slíka tónlist," segir,
Laddi. Á þessum árum var pönktíma-
bilið að ganga í garð og öll sú tíska sem
því fylgdi og þóttí því mörgum hljóm-
sveitín hálfgerð tímaskekkja. Flokkur-
inn lét þær raddir sem vind um eyru
þjóta, skellti brilljantíni í hárið og söng
hástöfum sína tuttugu ára gömlu tón-
list í leðurbuxum, hvítum bolum og
þotuskóm. Hljómsveitin starfaði sam-
an í fjögur ár og gaf á þessum stutta
tíma út fjórar plötur. „Það var rosa-
lega gaman að vinna þessar plötur
og var oft vakað heilu næturnar við
að semja texta." HLH flokkurinn ferð-
aðist víða um landið og fluttí tónlist
sína við góðar undirtektír. „Stund-
um komum við fram á skemmtunum
þar sem Brimkló með Björgvini Hall-
dórs byrjaði að flytja sín lög, þar á eftir
skemmtum við bræður Halli og Laddi
fólki og svo endaði HLH flokkurinn á
því að slá upp balli, það er því óhætt
að segja að fólk hafi fengið mikið fyrir
peninginn," segir Laddi.
Eldað fyrir Sigga Hall
Þegar Björgvin Halldórsson var
barn var hann mjög matvandur en
Helga systir hans segir það held-
ur betur hafa breyst í dag. „Björgvin
hefur unun af því að elda góðan mat
Björgvin Halldórsson
Fyrsta poppstjarna (slands.
og njóta hans." Einn þeirra sem hafa
sest að snæðingi hjá Björgvini er mat-
reiðslumeistarinn Siggi Hall. Hann
gefur Björgvini bestu einkunn fyrir
matseldina og segir hann frábær-
an kokk. Þeir félagar hafa verið góðir
vinir frá táningsaldri en einnig unnu
þeir saman til margra ára á Bylgjunni.
Björgvin aðstoðaði Sigga Hall við gerð
fyrstu matreiðslubókar hans og er því
óhætt að segja að þeir deili þessum
áhuga sínum á góðum mat og mat-
seld. Siggi Hall segir Björgvin hafa ver-
ið hálfgerðan skelfi margra veitínga-
manna og þjóna oft á tíðum þó með
gamansömum tóni. „Hann áttí það tíl
að vera mjög kröfuharður og gerði oft í
því að biðja um eitthvað sem að hann
vissi að væri ekki tíl. Ég kenndi sam-
starfsmönnum mínum það að aðalat-
riðið væri að toppa hans svar og bjóða
honum eitthvað enn flottara, dýrara
og sjaldgæfara. Þá var Bó skemmt."
Vinir hans lýsa honum sem miklum
lífsnaumamanni og eru allir sam-
mála um að hann hafi dýran smekk.
„Björgvin hefur mjög háan lífsstand-
ard. Hann er mikill matmaður og hef-
ur gaman af því að elda sjálfur. Svo
elskar hann að drekka fín rauðvín og
Krummi og Svala Björgvinsböm
Hafa bæði gert það gott í tónlistinni.
reykja rándýra vindla," segir Rúnar
Júlíusson.
„Því dýrara því betra," segir Jón Axel
Ólafsson, rekstrarhagfræðingur og
vinur Björgvins til margra ára. „Hann
er mikiíl fagurkeri á dýra og vandaða
hluti. Hann hefur alltafverið græjuóð-
ur en í dag á hann ekki alltaf flottustu
græjurnar lengur þótt hann reyni."
Börnin hans, þau Krummi og Svala,
minnast einnig á tækjadellu pabba
síns. „Hann á örugglega 10 gemsa, 8
i-poda og nokkrar fartölvur, bara svo
hann eigi örugglega allar græjur sem
eru til á markaðnum," segir Svala.
Hengir upp Bó-gallann
Flestir þekkja Björgvin eins og
hann kemur fýrir sjónir í fjölmiðlum,
á skemmtunum, böllum og í gegnum
tónlistína. En hvaða mann ætli hann
hafi að geyma þegar heim er komið?
„Hann hengir Bó-gallann upp þegar
hann kemur heim og er eins og hver
annar pabbi," segir Krummi, son-
ur hans. „Hann knúsar kettina sína,
býður fjölskyldunni í mat og hlust-
ar á kántrítónlist. Einnig nýtur hann
þess að horfa á góðar kvikmyndir og
heimildarmyndir," segir Krummi.
Glæsileg hjón Björgvin og eiginkona
hans, Ragnheiður Björk Reynisdóttir.
Þeir sem þekkja Björgvin segja hann
mikinn dýravin. „Hann myndi ekld
drepa kónguló," segir systir hans,
Helga. „Hann elskar öll dýr og sér þau
fyrir sér sem teiknimyndafígúrur úr
Disney-mynd sem tala. Jafnvel flugan
í eldhúsinu heitir einhverju nafni og á
sér sögu að baki," segir Svala sem gerir
létt grín að dýrakærleik pabba síns.
Björgvin hugsar vel um sína og má
ekkert aumt sjá að sögn vina hans.
Hann hugar vel að fjölskyldu sinni og
vinum. Helga, systir Björgvins, rifjar
upp góðar stundir í Bandaríkjunum
en þar hefur hún búið síðustu þijá-
tíu árin. „Fyrir jólin var kassi fyrir utan
dyrnar, fullur af hangikjöti og góðgæti
frá Björgvini án þess að ég hefði beð-
ið um nokkuð." Hann er duglegur að
heimsælga Helgu til Bandaríkjanna
og hefur ósjaldan skemmt íslending-
um á þorrablótum á heimaslóðum
Helgu. „Hann er rosalega gjafmild-
ur og elskar að redda hlutum fyrir
mann. Hann fær mikið út úr því að
gleðja," segir Svala. Systkinin eru sam-
mála um að Björgvin sé afar góður
pabbi sem gott sé að tala við. „Hann
veit mikið um margt og er vel upp-
lýstur," segir Krummi. Þau segja hann
fyndasta mann sem til er og alltaf stutt
í góða brandara og skemmtileg tilsvör.
„Þegar við Krummi vorum krakkar
fannst honum ekkert skemmtilegra
en að gera sig að fi'fli þegar við fór-
um til útlanda í frí því þá þekkti hann
enginn. Þá gat hann látið einsog hálf-
viti og hann gerði það lflca vegna þess
hvað okkur Krumma fannst það fynd-
ið," rifjar Svala upp.
Eins og mörgum er kunnugt um
hafa systkinin Svala og Krummi bæði
starfað við tónlist til margra ára og
átt góðu gengni að fagna. Feðgarn-
ir Krummi og Björgvin eru þó ekki
þekktir fyrir svipaðan tónlistarstfl
og vakti því mikla athygli þegar þeir
komu í fyrsta sinn opinberlega fiam
með Sinfóníuhljómsveit íslands á síð-
asta ári. „Það var algjör draumur að
taka lagið með pabba, án efa eitt það
skemmtilegasta sem ég hef gert á ferl-
inum," segirKrummi. Hann segir jafn-
framt pabba sinn alltaf hafa veitt hon-
um andlegan stuðning í tónlistínni
og leyft honum að reka sig á og læra
af mistökunum og það sé hann afar
þakklátur fyrir.
Jólabarn
Björgvin Halldórsson var fyrsta
poppstjarna íslands. Hann hefur hald-
ið vinsældum sínum alla tíð og ekki er
útlit fyrir að þær fari dvínandi. Björg-
vin fagnar fjörtíu ára starfsafmæli sínu
nú í ár og af því tflefni ætlar Björgvin
að halda jólastórtónleika í Laugar-
dagshöll 8. og 9. desember næstkom-
andi. Björgvin hefur sungið ófáar jóla-
perlurnar og því ættu þessir tónleikar
að hringja inn jólin hjá áhorfendum.
Samhliða tónleflcunum gefur Björg-
vin út sína fjórðu Jólagesta plötu þar
sem hann sjálfur ásamt góðum gest-
um flytur valinkunnar jólalög. Á tón-
leikunum í Laugardagshöfl verða góð-
ir gestír Björgvini til halds og traust;
Bjarni Arason, Eyjólfur Kristjánsson,
Friðrik Ómar, Helgi Björnsson, Ragn-
ar Bjarnason, Stefán Hilmarsson,
Svala Björgvinsdóttir og Sigga Bein-
teins. Búast má við að þessi listí leng-
ist áður en yflr lýkur. kolbwn@dv.is
Almennar bóklegar greinar eru hluti af námi
á öllum brautum skólans. Allt almenna námið
er matshæft á milli skóla eftir þvi sem við á.
Einnig er hægt að stunda nám í almennum
greinum í eina til fjórar annir. Þeir nemendur sem
lokið hafa eða stunda nám á starfsmenntabrautum
geta bætt við sig námi sem leiðir til stúdentsprófs af
starfsmenntabrautum/ tæknistúdentspróf.
fjölbreytt.
nam
við allra hæfi
>návn
Fjarnám er áhugaverður kostur fyrir þá sem ekki
geta nýtt sér staðbundið nám, t.d. vegna vinnu
eða búsetu. í fjarnáminu er boðið upp á
námsúrval í bóklegum og fagbóklegum
greinui ásamt ýmsum greinum meistaranámsins.
A sérdeildarsviði eru tvær brautir:
Auk þess er
endurhæfingarnám Janusar (rekið í tengslum
við skólann).
Á hönnunarsviði em fjórar brautir: Ustnámsbraut
(almenn hönnun og keramik) • Hársnyrting
Ekki er tekið inn á Fatalðnabraut og Cull- og
silfursmlði á vorönn. Stúdentspróf af list- og
starfsnámsbraut.
•5 4^ Á upplýsinga- og margmiðlunarsviði eru
v>, 0) þrjár brautir: Upplýsinga- og fjölmiðla-
■©. S braut • Tækniteiknun • Margmiðlunar-
skófinn - en ekki er tekið inn í hann á 1. önn.
^ðnaS^
O
Á rafiðnasviði eru eftirtaldar brautir:
Grunnnám rafiðna • Rafvirkjun • Rafeinda-
virkjun Rafvélavirkjun • Rafveituvirkjun
Símsmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
o
Á byggingasviði eru fimm iðnbrautir í framhaldi
af grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina:
Húsasmíði • Húsgagnasmíði • Múrsmíði
• Málun • Veggfóðrun og dúklagningar.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á tölvusviði er ein braut: Tölvubraut sem býður
upp á sérhæfingu íforritun og netkerfum.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
uUSV/(J
Innritun stenduryfir og lýkur
25. nóvember nk.
Innritun er rafræn og eru
allar upplýsingar á vef skólans
www.ir.is og á skólavef
menntamálararáðuneytisins
www.menntagatt.is
Aðstoð við innritun verður í skólanum
20. og 21. nóvemberfrá kl. 12:30-16:00.
Rafræn innritun í fjarnám og kvöldskólann
hefst 20. nóvember og eru allar nánari
upplýsingar á vef skólans www.lr.is
og á skrifstofu í síma 522 6500.
★
IÐNSKÓLINN ( REYKJAVfK
Skólavörðuholti I 101 Reykjavík
Sími 522 6500 I Fax 522 6501
www.ir.is I ir@ir.is