Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Side 41
DV Ættfræði
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 41 **
MAÐUR VIKUIVIVAR
Frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti íslands, er
verndari íslenskuverðlauna
Menntaráðs Reykjavíkurborg-
ar sem nú verða afhent í fyrsta
sinn um bundrað reykvískum
grunnskólanemum. Verðlaun-
in verða afbent í Borgarleik-
húsinu í dag á tvö hundruð ára
fæðingarafniæli Jónasar Hall-
grímssonar og verða framveg-
is veitt árlega á Degi íslenskrar
tungu.
Frú Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti íslands
Starfsferill
Vigdís fæddist í Reykjavik 15.4.
1930 og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1949,
stundaði nám í frönsku og frönskum
bókmenntum við háskólann í Gren-
oble og Sorbonne í París, með leik-
bókmenntír sem sérsvið 1949-53, og
nám í leiklistarsögu við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1957-58. Auk þess tók
hún BA-próf í ensku og frönsku við
Hl og lauk þaðan prófi í uppeldis- og
kennslufræði.
Vigdís var blaðafulltrúi Þjóðleik-
hússins og ritstjóri leikskrár 1954-57
og 1961-64. Hún var um skeið leið-
sögumaður og kynningarfulltrúi
Ferðaskrifstofu ríkisins gagnvart er-
lendum rithöfundum, blaðamönn-
um og kvikmyndatökumönnum hér á
landi. Auk þess skipulagði hún nám-
skeið fyrir leiðsögumenn á vegum
Ferðaslúifstofu ríkisins um árabil.
Vigdís var frönskukennari við MR
1962-67, kenndi frönsku við MH1967-
72 og skipulagði jafnffamt frönsku-
nám skólans, sá um frönskukennslu í
sjónvarpi 1970-71 og kenndi franskar
leikbókmenntir við HÍ1972-80. Þá var
hún leikhússtjóri Leikfélags Reylqavík-
ur1972-80.
Vigdís var einn af stofnendum tíl-
raunaleikhússins Grímu 1962, var for-
setí Alliance Francaise 1975-76, sat í
ráðgefandii nefnd um menningarmál
Norðurlanda 1976-80 ogvarformaður
hennar 1978-80.
Vigdís var kjörin forsetí Islenska
lýðveldisins 1980 og varð þar með
fyrsta konan í heiminum sem kjörinn
er þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosn-
ingum. Hún var endurkjörin 1984,
1988 og 1992 en gaf ekki kost á sér tíl
endurkjörs 1996.
Frá því Vigdís lét af embættí forseta
fslands hafa henni verið falin margvís-
leg trúnaðarstörf á alþjóðavettvangi.
Hún er velgjörðarsendiherra Samein-
uðu þjóðanna (UNESCO) fyrir tungu-
mál mannkyns, var formaður Heims-
ráðs um siðferði í vísindum og tækni
hjá UNESCO, sem meðal annars fjallar
um tölvutækar upplýsingar. Þá var hún
skipuð velgjörðarsendiherra Samein-
uðu þjóðanna í baráttu gegn kynþátta-
fordómum og útlendingaandúð. Loks
átti hún sem formaður stóran þátt í
undirbúningi að Den Nord Atlantíske
Brygge, menningasetri fslands, Norð-
urbryggju í Kaupmannahöfn fyrir
Norðvestur-Atlantshafsþjóðirnar.
Árið 2001 var komið á fót Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum á vegum Háskóla Is-
lands. Stofnunin hefur innan sinna vé-
banda kennslu og rannsóknir í öllum
mngumálum sem kennd eru við skól-
ann sem og þýðingarfræði. Þá má geta
þess að Vigdís er virkur meðlimur og
situr í stjórn Club de Madrid sem eru.
samtök fyrrverandi forseta og forsæt-
isráðherra með það markmið að efla
lýðræðið í heiminum.
Vigdís hefúr hlotíð heiðursdokt-
orsnafnbæmr frá átján háskólum víðs
vegar um heim. Hún fékk sérstaka við-
urkenrtíngu Málræktarsjóðs 1997 fyr-
ir alúð við íslenska tungu í forsetatíð
sinni.
Fjölskylda
Kjördóttír Vigdísar er Ástríður
Magnúsdóttír, f. 18.10. 1972, snyrtí-
sérfræðingur og nemi við Listaháskóla
Islands, en maður hennar er Eggert
Elmar Þórarinsson tæknifræðingur og
eru dæmr þeirra Aþena Vigdís, f. 21.3.
2000, og Eva María, £3.1.2004.
Bróðir Vigdísar var Þorvaldur, f.
21.12. 1931, d. 3.8. 1952, verkfræði-
stúdent.
Foreldrar Vigdísar voru Finnbogi
Rúmr Þorvaldsson, f. 22.1. 1891, d.
6.1. 1973, prófessor í verkfræði við
Hl, og k.h., Sigríður Eiríksdóttir, f.
16.6. 1894, d. 23.3. 1986, hjúkrunar-
kona og formaður Hjúkrunarfélags
íslands til fjölda ára (nú Félag ís-
lenskra hjúkrunarffæðinga).
Ætt
Bróðir Finnboga var Búi mjólkur-
fræðingur, faðir Kristjáns guðfræði-
prófessors, Þorvaldar eðlisfræðings,
Þórðar verkfræðings og Magdalenu
Jórunnar hjúkrunarfræðings. Finn-
bogi var sonur Þorvalds, pr. í Sauð-
lauksdal, bróður Jóns, langafa Hans
G. Andersen sendiherra. Annar bróð-
ir Þorvaldar var Ingimundur, lang-
afi Ragnars Tómassonar lögffæðings.
Hálfsystír Þorvaldar, sammæðra, var
Sigríður, langamma Friðriks Pálsson
forstjóra.Þorvaldur var sonur Jakobs,
pr. í Steinnesi, bróður Ásgeirs, dbrm.
á Lambastöðum, langafa Ónnu, móð-
ur Matthíasar Johannessen skálds. Ás-
geir var einnig langafi Lárusar Blöndal
bókavarðar, föður Benedikts heitíns
hæstaréttardómara, Halldórs, fyrrv.
ráðherra, og Haraldar heitíns hrl. Móð-
ir Þorvaldar var Þuríður, systír Sigríðar,
konu Ásgeirs á Lambastöðum. Þur-
íður var einnig systír Guðrúnar, lang-
ömmu Þorsteins Ö. Stephensen leik-
ara og Guðrúnar, móður Ögmundar
Jónassonar alþm. Bróðir Þuríðar var
Ólafur, pr. í Viðvík, langafi Þorvalds í
Arnarbæli, föður Ásdísar Kvaran lög-
ffæðings. Hálfsystír Þuríðar var Rann-
veig, langamma Þórunnar, móður
Gylfa Þ. Gíslasonar menntamálaráð-
herra, föður Þorsteins heitíns heim-
spekings, Vilmundar heitíns ráðherra
og Þorvalds hagfræðiprófessors. Þur-
íður var dóttír Þorvaldar, pr. og skálds
í Holtí Böðvarssonar, pr. í Holtaþing-
um, bróður Ögmundar, afa Tómasar
Sæmundssonar Fjölnismanns. Böðvar
var sonur Högna Sigurðssonar, presta-
föður á Breiðabólstað.
Móðir Finnboga Rúts var Magd-
alena Jónasardóttír, b. á Hallbjarnar-
eyri í Eyrarsveit Jónssonar, og Kristínar
Bergsdóttur, b. á Hvalgröfum á Skarðs-
strönd Búasonar, og Kristínar Stur-
laugsdóttur.
Sigríður var dóttír Eiríks, trésmiðs
í Reykjavík, bróður Einars, b. í Miðdal,
föður Guðmundar ffá Miðdal mynd-
listarmanns, föður Erró, Ara Trausta
jarðfræðings og Egils arkitekts. Dóttír
Einars var Sigríður, móðir Jónínu Mar-
grétar Guðnadóttur sagnffæðings og
Bergs Guðnasonar lögffæðings, foður
Guðna, fyrrv. knattspymukappa. Önn-
ur dóttír Einars var Karólína, móð-
ir Hlédísar Guðmundsdóttur læknis.
Þriðja dóttír Einars er Inga, móðir Þur-
íðar Sigurðardóttur söngkonu. Syst-
ir Eiríks var Guðbjörg, móðir Gríms
Norðdahls á Úlfarsfelli, og Haraldar
Norðdahl, föður Skúla Norðdahl arki-
tekts. Eiríkur var sonur Guðmundar, b.
í Miðdal, bróður Margrétar, langömmu
Ólafs F. Magnússonar ljósmyndara, og
Gunnars, föður Magnúsar forstjóra.
Margrét var einnig langamma Vilborg-
ar Kristjánsdóttur sem lengi var fulltrúi
á skrifstofu forseta Islands. Guðmund-
ur var sonur Einars, b. á Álfsstöðum
á Skeiðum Gíslasonar, bróður Jóns,
ættföður Setbergsættar, langafa Ólafs
Guðjóns tannlæknis, föður Jóns Karls,
forstjóra Icelandair. Jón á Setbergi var
einnig langafi Árnu Steinunnar, móð-
ur Mörtu Guðjónsdóttur, varaborg-
arfullttúa og formanns nefndar um
íslenskuverðlaun Menntaráðs. Móð-
ir Guðmundar í Miðdal var Margrét
Hafliðadóttir. Móðir Eiríks í Miðdal
var Vigdís, systir Helgu, langömmu
Jóns Eiríkssonar, oddvita í Vorsabæ
á Skeiðum. Vigdís var dóttír Eiríks, b.
í Vorsabæ Hafliðasonar, bróður Eh'n-
ar, langömmu Sigurgeirs Guðmanns- ”
sonar, lengi ffamkvæmdastjóra ÍBR,
og Kristbjargar, móður Sigurðar Sigur-
jónssonar leikara. Eh'n var einnig lang-
amma Gunnlaugs, föður Jóns Steinars
hæstaréttardómara. Þá var Eh'n amma
Ólafar, ömmu Guðrúnar Helgadótt-
ur rithöfundar. Önnur systír Eiríks í
Vorsabæ var Ingveldur, amma Gísla
Gunnarssonar, fyrrv. pr. í Glaumbæ,
og langamma Vilhjálms, föður Man-
freðs arkitekts. Bróðir Eiríks var Þor-
steinn, langafi Þorgerðar Ingólfsdóttur
söngstjóra.
Móðir Sigríðar Eiríksdóttur var
Vilborg, systir Guðna á Keldum, **■
langafa Björns Vignis Sigurpálsson-
ar. Vilborg var dóttir Guðna, b. á
Keldum í Mosfellssveit Guðnason-
ar, b. í Saurbæ í Ölfusi, bróður Sig-
ríðar, langömmu Halldórs Laxness
og Guðna Jónssonar prófessors, föð-
ur prófessoranna Bjarna og Jóns.
Guðni var sonur Gísla, b. í Reykja-
koti í Ölfusi, bróður Guðmundar, afa
Ólafs, afa Þórhalls Vilmundarsonar
prófessors og langafa Ólafs Ólafs-
sonar, fyrrv. landlæknis, og listfræð-
inganna Ólafs og Gunnars Kvaran.
Systir Gísla var Ingveldur, langamma
Valgerðar, ömmu Guðmundar H.
Garðarssonar, fyrrv. alþm.. Gísli var
sonur Guðna, ættföður Reykjakots-
ættar Jónssonar. Móðir Vilborgar var
Ásttíður Finnsdóttír. »
ORG semur við Landsbókasafn Islands Háskólabókasafn og ReykjavíkurAkademíuna:
Samstarfssamninqar um ættfræði
I gær voru undirritaðir sam-
starfssamningar ORG Ættfræði-
þjónustu við Landsbókasafn ís-
lands Háskólabókasafn, annars
vegar og við ReykjavíkurAkademí-
una, hins vegar. Forstöðumaður
ORG Ættfræðiþjónustu er Oddur
Helgason en stofnunin býr yfir ein-
um umfangsmesta og fjölmenn-
asta ættfræðigrunni landsins. Þar
má einnig finna eitt stærsta bóka-
og skjalasafn um ættfræði og þjóð-
fræði hér á landi.
Báðir samningarnir miða að því
að efla ættfræðirannsóknir á Is-
landi og bæta þjónustu við þá sem
stunda slíkar rannsóknir. Reykja-
víkurAkademían mun t.d. halda
málþing um ættfræði og þjóðfræði
næsta vor og Landsbókasafnið
hyggst halda sérstaka sýningu á
ættfræðilegum frumgögnum á
næstunni.
ORG hefur verið í samstarfi
við ýmis héraðsskjalasöfn á und-
anförnum árum og hyggjast sum
þeirra gera sambærilega samn-
inga við stofnunina. Þess má svo
geta að ættfræðiskrif DV hafa á
ýmsan hátt notið góðs af aðstöðu
ORG Ættfræðiþjónustu í gegnum
tíðina.
Samstarfssamningur um ættfræði
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir,
forstöðumaður Landsbókasafns
Háskólabókasafns, Oddur Helgason,
forstöðumaður ORG, og Viðar Hreinsson,
framkvæmdastjóri Reykjavíkur-
Akademíunnar. Að baki þeim standa
Rögnvaldur Guðmundsson, formaður
Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu,
og Örn Hrafnkelsson, forstöðumaður
handritadeildar Landsbókasafns
Háskólabókasafns.
•>