Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Síða 43
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER2007 43
Falsaðarflöskur
á uppboði
Mn er gríðarlega verðmæt
^ M söfnunarvara og fölsunarmál
% m hafa hrannast upp síðustu
\f misseri. Margmilljarðamaer-
W ingurinn William Koch hefur
gert alvöru úr hótun sinni. Hann hefur
stefnt Þjóðverjanum Hardy Rodenstock
fyrir að falsa og selja fjórar Bordeaux
flöskur sem áttu að hafa verið í eigu
Thomas Jefferson, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna. Koch hefur einnig stefnt
kaliforniska vínsafnaranum Eric Green-
berg og bandaríska uppboðshúsinu Za-
chys fyrir að selja falsað vín. Koch segist
hafa keypt 19 flöskur á 20 milljónir króna
afZachys.
toppurinn á ísjakanum og hefur ráðið
sérfræðinga í að rannsaka allar þær 35
þúsund flöskur sem eru í einstökum vín-
kjallara hans. Koch er hvergi nærri hætt-
ur. Hann ætlar að koma fjölda manns
bak við lás og slá, endurheimta sitt fé og
þvinga uppboðshús til að gjörbreyta
öllum sínum reglum.
Meðal þeirra vína sem
Koch keypti hjá upp-
boðshúsinu Zachys voru
Chateau Petrus 1921,
magnum flaska af Chat-
eau Lafite Rothschild 1870 og Lafite
1811. Hver flaska kostaði um 30 þúsund
dollara eða tvær milljónir stykkið. Á
þessu uppboði keypti Koch vín fyrir 3,7
milljónir dala eða 220 milljónir króna.
Það er Ijóst að skemmd epli hafa verið í
umferð að undanförnu en upp-
boðshúsið bendir á að það sé
aðeins litið brot. Á uppboð-
inu hafi verið seldar 17 þús-
und flöskur úr safni Green-
bergs. Koch geri einungis
athugasemdir við 11 flöskur
Rodenstock hinn þýski f
er frægasti vínfalsari '• f-
veraldar um þessar «3
mundir og virðist hafa j
platað uppboðs- jg/K
hús og virtustu vínsmakk- tmS
ara veraldar upp úr skón- SfM
um. Koch segir að mj
Rodenstock sé aðeins Mm
PALMI JÓNASSON
vlnsérfræðingur DV
d 'Arenberg The Hermit Crab
Viognier-Marsanne 2005
Bindindismaðurinn Joseph Osborn keypti fyrirækið
1912 en hann var framkvæmdastjóri vínfyrirtækis-
ins Thomas Hardy & Sons. Sonur hans tók við
rekstrinum 1943 og sonarsonurinn, Francis
d'Arenberg hætti í skóla 16 ára til að hjálpa sjúkum
föður sínum. Hann tók við rekstrinum 1957 og
innleiddi rauða strikið sem hefur einkennt flöskurn-
ar æ síðan. Sonur hans, Chester d'Arenberg Osborn
varð aðalvingerðarmaður 1984 og þeir feðgar stýra
enn rekstrinum. Skemmtileg þrúgublanda.
Blómaangan, ferskjur, apríkósur, eikarvanilla og
mildur sítrus. Hunang í munni, apríkósur, ananas,
blæjuber, melóna og örlar á kryddi. Milt og Ijúft vín
á mörkum 3 og 4 glasa en væntan-
legur árgangureá að vera svo góður
111 1 aðfjórðaglasiðergefið. 1690krónur.
Yellow tail Shiraz 2006
Alan Kennett er aðal víngerðarmaður Casella
Wines í Suðaustur Ástralíu og það státar sig af því
að þetta sé mest selda rauðvínið í Bandaríkjunum.
Mikil eikarvanilla i nefi og krydd, negull og kanill
sem minnir á jólaglögg. Einnig dökk ber, kirsuber
og þlómur. Bragð af sólberjum, súkkulaði, tóbaki
og karamellu. Jarðartónar einnig
áberandi. Ágætt vín á góðu verði.
1290krónur.
Trivento Reserva
JU
■■
\T I-
Cabernet Malbec 2005
Trivento var stofnað í Mendoza í Argentínu en er í
eigu vínrisans frá Chile, Concha y Toro. Þetta er
stærsta víngerð Argentínu, getur framleitt 28
milljón lítra af vini sem hægt er að setja á 1800
franskar og amerískar eikartunnur. Tvivento dregur
nafn sitt frá þremur ríkjandi vindum, Polar, Zonda
og Sudesda sem blása um Mendoza og skapa
skilyrði til vínræktar á þessum þurra stað sem fær
vökvann úr Andesfjöllum. Ég hitti víngerðarmann-
inn Rafael Miranda og markaðsmanninn Alejandro
Cavallo þegar þeir voru hér síðsumars. Vínið er til
helminga úr Malbec og Cabernet og er 8 mánuði á
frönskum eikartunnum. Dökk rúbínrautt. Mikil
vanillulykt, súkkulaði, lakkrís, marens og jafnvel
sultaður laukur. Krækiber áberandi í munni, lakkrís,
sólber, krydd og jarðartónar. Þrjú
glös fyrir þetta verð. 1190 krónur.
„Maður hefur svo sem fengið ágæt-
is dóma fyrirþað sem maðurhefurver-
ið að gera. Og ég er duglegur að kíkja í
uppskriftabækur og breyta þeim jafri-
vel pínulítið eftír smekk," segir Stein-
dór Elíson, matgæðingur vikunnar,
þegar hann er spurður út í hæfileika
sína í eldhúsinu. Steindór ákvað að
láta lesendum í té uppskrift að kjúkl-
ingaréttí sem kallaður er Stússakjúll-
inn. „Ég er kaUaður Stússi af félögun-
um og þetta er uppskrift sem ég bjó tíl
eitt kvöldið þegar við ætluðum að fara
að horfa á box. Mér datt þetta þá í hug
en uppskriftín samanstendur af hrá-
efnum sem voru til heima."
Fjögur til fimm ár eru liðin ffá
kvöldinu örlagaríka að sögn Stein-
dórs. „Þetta er orðið hversdagsmat-
ur á mínu heimili. Og uppskriftín er
komin ansi víða, félagarnir og syst-
ur mínar eru til dæmis farin að elda
þetta. Þetta er líka mjög bragðgott og
fljótíegt."
Síðasti matgæðingur og vin-
ur Steindórs, Eiríkur Þorvarðarson,
kallaði Steindór „beikon-bangsann".
„Ég er kannski ekki kallaður þetta
allajafna en hann notar þetta stund-
um á mig hann Eiríkur. Og það er
náttúrlega beikon í þessari uppskrift.
Ég varð að finna eitthvað með beik-
oni til að gleðja Eika."
Stússakjúllinn
Uppskrift fyrir fjóra
• Fjórar kjúklingabringur skinnlausar
• Eittbréfafbeikonsneiðum
• Tíu til fimmtán millistórir sveppir
• 'A I rjómi / matreiðslurjómi
• Einn poki gratínostur
Steikið sveppina upp úr smjöri og
leggið til hliðar.
Beikonið er skorið í bita og steikt
á pönnu, fitan svo látin renna af því.
Kjúklingabringurnar skornar í
teninga og kryddaðar með Eðal-
kjúklingakryddi frá Pottagöldrum.
(Verður að vera þetta krydd.)
Kjúklingateningarnir eru svo
snöggsteiktir á pönnu.
Allt sett saman í eldfast mót með
rjómanum og ostinum stráð yfir.
Eldað í ofni í um það bil 20 mínút-
urvið 200°C.
Meðiæti
• Basmati-hrísgrjón
• Spínatsalat með rauðlauk, papriku,
furuhnetum og fetaosti með
hvítlauk og kóríander.
„Ég skora á eiginmann vin-
konu konu minnar, Jón Gest
Sörtveit, aö vera nœsti mat-
gæðingur. Hann er mjög hrif-
inn af ítölskum mat. Auk þess
er hann góöur trommari."