Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Side 51
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 51
i
Kristín Svava Tómasdóttir fagnar tuttugu og tveggja ára afmæli
sínu næsta þriðjudag en hún var að senda frá sér sína fyrstu
ljóðabók á dögunum sem ber heitið Blótgælur.
ÆTLAÐIAÐ VERÐA STEINASAFNARI
Nafn:
„Kristín SvavaTómasdóttir."
Menntun:
„Bara þessi venjulega, búin með
menntaskóla og er í sagnfræði í Há-
skólanum."
Hvernig kom það til að þú fórst að
skrifa bókina?
„Það er nú engin sérstök ástæða íyrir
því svo sem. Þetta er bara að sumu
leyti bara safn þess sem ég hef verið
að gera síðustu ár."
Fyrir hverja er þessi bók?
„Hún er bara fyrir hvem sem við
henni vill taka."
Getur þú sagt okkur aðeins frá
henni?
„Þetta er svo sem ekki skrifað með því
markmiði að verða bók en það eru
náttúrulega alltaf einhver þemu sem
skjóta alltaf upp kollinum. Eins og til
dæmis það að vera strákur og stelpa
í heiminum í dag. Ekkert samið í
kringum neitt konsept beint."
Ætlaðirðu alltaf að verða Ijóð-
skáld?
„Nei ég ætlaði að verða steinasafnari
en svo var ég einhvern veginn ekki
nógu mikill fjallgöngugaipur í það."
Hvað varst þú lengi að skrifa hana?
„Þetta er svona nokkurra ára prósess.
Elsta ljóðið er svona þriggja fjögurra
ára. Ætli ég hafi ekki byrjað að skrifa
á unglingsaldri en það er nú alls ekki
allt bókarhæft."
Hefur þú skrifað mikið sem ekki
hefur komið út?
„Já, maður getur ekki fleygt öllu fram
eða notað allt sem maður skrifar það
er bara þannig. Maður verður að
vinsa úr."
Ertu sátt við útkomuna?
„Já, enn sem komið er. Það væri reynd-
ar örugglega skemmtilegra að heyra
svarið mitt eftir tuttugu ár samt."
Ætlar þú að skrifa fleiri bækur?
„Það er ekkert í farvatninu en það
kemur nú að því einn daginn. Ég veit
ekki hvað það þá yrði sem ég myndi
skrifa. Bara það sem mér dettur í hug
en kannski fer ég bara að safna stein-
um eftir allt saman."
Hvemig leið þér þegar bókin var
komin út?
„Það var mjög skrítið en á sama
tíma mjög gaman. Það er eiginlega
skrímara að sjá fólk lesa hana í búðum
og reyna að láta það ekki sjást þegar
maður labbar ffamhjá viðkomandi.
Það er mjög skemmtilegt."
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Ég á nú enga svona uppáhalds, held
ég geti í rauninni eldd valið neina
uppáhaldsbók. Það ervoðalegaleiðin-
legt svar en það er bara ekki hægt.
Ætli það sé eldci alltaf bara góða bókin
sem maður er nýbúinn að lesa."
Hver er uppáhaldsrithöfúndurinn
þinn eða skáld?
„Helgi Jónsson bamabókahöfundur
er mér ofarlega í huga þessa dagana
sökum feminískrar áherslu í bólcum
hans."
Hvað er fram undan?
„Jólapróf og upplestrar í bili að
minnsta kosti. Og að halda svo upp
á afmælið mitt. Það er það sem ber
hæst á dagskránni í bili."
fyrstu ljóðabók
gefur út sína
10ARA LJOÐASKALD
„Ég skrifaði bókina í vor," segir
Jölcull Máni Kjartansson, 10 ára
rithöfundur sem gaf nýlega frá
sér ljóðbókina Vafi - stutt ljóð.
„Ég hef skxifað ljóð síðan ég var
svona átta ára," en eins og segir í
formála bókarinnar skrifar Máni
ljóð og gefur þau út því honum
þykir gaman að skapa. Máni seg-
ir að þegar hann hafi ekki þurft
að læra heima eða hafi stund-
um gleymt því hafi hann gripið í
ljóðabók.
„Þegar maður er að skrifa ljóð
finnur maður ekkert endilega
upphafið strax. Þá þarf maður
að liugsa smá og horfa kannski
út um gluggann og svona," segir
Máni um þá tækni sem hann beit-
ir við ljóðaskrifin. Máni sér sjálfur
um að selja bóldna og gengur hús
í hús á milli þess sem hann æfir
break-dans. Máni fær svo hjálp
frá pabba sínum við dreifa bók-
inni í búðir.
Máni myndskreytir einnig bókina
sjálfur með hinum ýmsu orðum
sem eru á síðunni gegnt hverju
ljóði. Aðspurður segir Máni enga
sérstaka hugmyndafræði að baki
orðavalinu. „Stundum langaði
mig bara skirfa þessi orð. Ég var
bara að leika mér," segir Máni að
lokum. asgeir@dv.is
CULINA dagar í nóvember í BOHEMIA
Sérsmíðaðar eldhús- og baðinnréttingar frá Culina í Danmörku.
20-30% afsláttur af öllum Culina
eldhús- og baðinnréttingum í nóvember.
.....1 !1!I"!-Iy.„»'J
é
Komdu og fáðu ráðgjöf um allt
er varðar eldhúsið og baðherbergið
þitt.
13?
10 fyrstu sem staðfesta pöntun
nréttingu
fá Haier vínkæli í kaupbæti
aBWrmipimÉli'
CULINK
\ Bohemia - Akralind 4 - www.bohemai.is - bohemia@bohemia.is
HvTl ifrlVllA. Afgreiðslutími virka daga 10-18 og laugardaga 11-15
...-----