Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Blaðsíða 62
1 62 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Siðast en ekki síst DV
VIKUNNAR
Handknattleikslið Vals fær fjórar
stjörnur fyrir að leggja hið firnasterka
lið Celje Lasko að velli (vikunni. Með
sigrinum sýndi liðið enn og aftur hvað
hægt er að afreka með góðri baráttu,
dugnaði og trú. Celje Lasko varð
Evrópumeistari fyrir þremur árum en (
liðinu eru sumir af fremstu handbolta-
mönnum (Evrópu. Það segir meira en
mörg orð að
þjálfara liðsins
var sagt upp
störfum (kjölfar
ósigursinsgegn
íslensku
víkingunum.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, fær þrjár
stjörnur fyrir eftirlit með ofþeldisefni og
klámi á skjánum. Samtökin hafa
reglulega kvartað yfirtilefnislausum
myndbirtingum af þeim toga með
sjónvarpsfréttum. Fréttastjórar RÚV og
Stöðvar 2 voru kallaðir á fund
útvarpsréttar-
nefndar í vikunni
fyriraðsýna
óhugnanlegar
eða dónalegar
fréttamyndir án
viðvörunar.
★ ★★
GuSný Halldórsdóttir leikstjóri fær
tvær stjörnur fyrir að taka því með
jafnaðargeði að kvikmynd hennar,
Veðramót, fékk aðeins ein Edduverð-
laun af þeim ellefu sem hún var nefnd
til. Daginn eftir Edduhátíðina hlaut
Guðný (slensku bjartsýnisverðlaunin. Af
þvf tilefni lét hún
þau orðfalla að
hún héldi sig við
þá skoðun að
áhorfendur kunni
að meta verkin
þó bransinngeri
það ekki.
Björn Swlft verkfræöinami fær
eina stjörnu fyrir að gefa Birni
Bjarnasyni dómsmálaráðherra lénið
björn.is (afmælisgjöf. Ráðherrann
varð 63 ára á dögunum og færði
hann hinum gjafmilda nafna slnum
miklar þakkir fyrir lénið. Verkfræði-
neminn setti vefsfðuna upp á eigin
afmælisdegi í ágúst og olli hún miklu
fjaðrafoki en sem kunnugt er heldur
Bjarnason úti sfðunni bjorn.is
TEFLIRIÐULEGAÁ
TVÆR HÆTTUR
Hrafn Jökulsson
rithöfundur hefur nú gefið út
sína fyrstu bók í langan tíma.
Hver er maðurinn?
„Þetta er spuming sem ég hef tekist
á við allt mitt líf. Maðurinn er búsettur
í fallegasta og afskekktasta sveitarfé-
lagi landsins, hamingjusamlega giftur
og að fást við draumaverkefnið. Mað-
urinn er því nokkuð kátur."
Átt þú stóra fjölskyidu?
„Já, ég á undursamlega konu og
stórkostleg börn. Svo á ég skara af syst-
kinum, ein íimm síðast þegar ég taldi.
Ég á bestu mömmu í heimi og stóran,
öflugan og andríkan frændgarð."
Hver eru þín áhugamál?
„Þau eru af ýmsum toga og breyti-
leg en gegnumgangandi er áhugi á
fólki, sögunni og auðvitað á skákinni.
Stundum fæ ég dellur þar sem ég tek
eitthvað fyrir og reyni að verða sér-
fræðingur í því. Það er sem sagt eitt og
annað ehf."
Hvaða bók vildir þú hafa skrifað?
„Ég hefði viljað skrifa Egils sögu.
Hún er heilsteyptasta listaverk sem til
er á íslensku. Bæði afskaplega djúp og
fer svo hátt að því eru engin takmörk
sett. Hún lýsir stórbrotnum mann-
legum breyskleika betur en nokkur
önnur bók."
Á hvernig tónlist hlustar þú?
„Þar yrði ég líklega skilgreindur
fullkomlega schizophren. Fer alfarið
eftir skapinu hverju sinni, hvort það
er Abba, Beethoven, Megas eða Eivör.
Það er engin lína í mínum tónlistar-
smekk, heldur bara það sem best
hæfir hverju sinni."
Kunna Grænlendingar eitthvað
að tefla?
„Já, núna. Sérstaklega nágrann-
ar okkar á austurströndinni, þar eru
mörg hundruð börn sem eru orðin
æði slungin."
Hvað teflir þú oft?
„Ég bý svo vel að hér í Ámeshreppi
eru líklega flestir skákmenn miðað við
fólksfjölda á íslandi. Ég hef lítið teflt
sfðustu mánuði nema ég fór og tefldi
með vinum mínum í Skákfélagi Snæ-
fellsbæjar á íslandsmóti skákfélaga
fyrir mánuði eða svo. Síðan hef ég ekki
snert á mönnunum þó skömm sé frá
að segja."
Teflir þú einhvern tímann á tvær
hættur?
„Iðulega. Eftir á að hyggja kannski
oftar en skynsamlegt hefði verið. Líf-
ið og skákin eru þannig að maður þarf
stundum að taka áhættur. Stundum er
áhættan skemmtileg en stundum sit-
ur maður eftir með sárt ennið og stillir
upp á nýtt."
Hvað kom til að þú ákvaðst að
gefa út bók núna?
„Þessi bók hafði þörf fyrir að líta
dagsins ljós núna. Eg réð engu um
það. Mig hafði lengi langað að gera
Árneshreppi skil og ýmsum minning-
um þaðan þannig að bókin réð þessu
sjálf."
Hvernig útgáfustjóri er bróðir
þinn?
„Ómetanlegur. Hann var drifkraft-
urinn á bak við þessa útgáfu. Hann
var stoð mín og stytta í þessu. Hann
þekldr allar hliðar útgáfuheimsins og
er réttur maður á réttum stað, hann
bróðir minn."
Ætlar þú að feta í fótspor föður
þíns og skrifa leikrit?
„Aldrei hef ég fundið leikskáldið
bærast innra með mér. Sjálfur fer ég
sjaldan í leikhús og hef aldrei stúder-
að það ágæta hstform. Mér lætur bet-
ur að segja sögur og ég hugsa að ég
haldi mig þar."
Hvar endar vegurinn?
„Þeirri spurningu er svarað skil-
merkilega í bókinni."
Hvað er fram undan hjá þér?
„Hefðbundin kosningabarátta sem
fylgir jólabókavertíð. Óhefðbundin
þar sem hún verður í mínu tílviki rek-
in frá Trékyllisvík."
SWDKOHX
■ Vegfarendur sem áttu leið
um Hafnarstrætið í Reykjavík
á þriðjudagsmorgun tóku eftir
ungu og ástföngnu pari sem þar
var á ferð. Mikla athygli vakti
faUegur
blómvöndur
sem
stúlkan bar,
greinilega
nýbúin að
fá hann í
hendur. Fram
til þessa
hafa ungir,
íslenskir herrar verið frekar
feimnir við að gefa ástinni sinni
blómvönd að morgni dags og
slflct þykir oft frekar eiga heima
í rómantískum, bandarískum
bíómyndum. Rómanti'ski
maðurinn reyndist vera Aron
Pálmi Ágústsson sem ekki
aðeins hefur fundið frelsið á
íslandi heldur líka ástina.
■ Leikarar landsins eru allir
á tánum um þessar mundir.
Væntanlegur til lands er
dularfullur leikstjóri beint úr
Hollywood sem hefur áhuga
á því að sjá sýnishom af
íslenskum leikurum. Það er
framleiðslufyrirtækið Tmenorth
sem hefur leikstjórann á snæmm
sínum, en
gríðarleg
leynd ríkir
yfir málinu.
Fram-
kvæmda-
stjóri Tme-
north, Helga
Margrét
Reyk-
dal, staðfesti í samtali við
blaðamann DV að sagan sé rétt,
en vildi ekkert gefa upp um hver
leikstjórinn væri. Eitt staðfesti
hún þó, að maðurinn er ekki J.J.
Abrams, leikstjóri væntanlegrar
Star Trek-myndar sem verður
tekin upp á landinu.
■ Brúðkaup JónsÁsgeirs
og Ingibjargar er mörgum
hugleikið þessa dagana enda ekki
á hverjum
degi sem svo
frægir og ríkir
gifta sig hér
á landi og á
svo áberandi
stað. DV
barst það
til eyma að
maturinn
sem turtildúfumar ætli að bjóða
upp á verði heimsendur - alla
leið frá London. Það er flottasti
og besti veitingastaður Lundúna,
Nobu, sem hlýtur heiðurinn af
því að matreiða fyrir fi'na fóUdð.
Þjónarnir í boðinu verða allir
karlkyns og í sérhönnuðum
fötum af tilefni dagsins. Þá em
raddir háværar um að George
Michael þenji raddböndin. -akm
HflWitcHifl
Afleit akstursskilyrði nyrðra
„Það er ekki hægt að segja annað en hægt
hafi á lægðaganginum undanfarið, en enn
eru þær nú til staðar blessaðar," segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur.„Um helgina
mun ein dýpka fyrir norðan land. Mun hún
fyrst hafa í för með sér vætu á föstudag um
nær um allt land, en líka mikil hlýindi,
sérstaklega fyrir austan eða þetta 10-15”C. Á
laugardag mun hún hins vegar venda kvæði
sínu í kross og senda til okkar loft úr norði og
kólnar þá vitanlega á landlnu. Veðrið verður
ekki verið sérlega skemmtilegt á Norður- og
Austurlandi, en Vestfirðingar sleppa betur að
þessu sinni. Gera má ráð fyrir hvössum vindi
og ofanhríð með afleitum akstursskilyrðum.
Syðra verður hins vegar allt annað uppi á
teningnum, urkomulaust og um síðir frystir.
Á sunnudag verða síðan enn ein umskiptin.
Veðrið kyrrist, verður bjart og fallegt, en SV-
átt að byggja sig upp vestur af landinu, klár í
næstugusuafhlýju, enekki ..
endilega svo röku lofti." f'.
Einat Sveinbjörnsson,
vedurfrædingur