Peningamál - 01.08.2002, Qupperneq 50

Peningamál - 01.08.2002, Qupperneq 50
PENINGAMÁL 2002/3 49 Peningastefnan og stjórntæki hennar Markmið peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verð- lag. Hinn 27. mars sl. var tekið upp formlegt verðbólgu- markmið sem hér segir: • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem árleg hækkun vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en ±1½% frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmiðinu verði náð að nýju. Greinargerðin verður birt opinberlega. • Seðlabankinn skal stefna að því að ná markmiðinu um 2½% verðbólgu ekki síðar en í árslok 2003. • Til ársloka 2003 gilda rýmri efri mörk sem hér seg- ir: Árið 2001 má verðbólga í mesta lagi verða 3½% umfram verðbólgumarkmiðið og 2% á árinu 2002. • Ársfjórðungslega birtir Seðlabankinn verðbólguspá tvö ár fram í tímann og gerir grein fyrir henni í Peningamálum. Með peningastefnunni er miðað að því að halda verð- lagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. Helstu stjórntæki peningastefnunnar Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun ávöxtunar í endurhverfum viðskiptum sínum við lánastofnanir. Ávöxtun á peningamarkaði hefur sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskipt- um við lánastofnanir má í grófum dráttum skipta í föst viðskiptaform annars vegar og markaðsaðgerðir hins vegar. Föst viðskiptaform: • Viðskiptareikningar geyma óráðstafað fé lánastofn- ana. Þeir eru uppgjörsreikningar vegna greiðslujöfn- unar milli innlánsstofnana og millibankaviðskipta, þar á meðal viðskipta við Seðlabankann. Vextir þess- ara reikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á milli- bankamarkaði. • Daglán eru veitt að ósk lánastofnana og tryggð með sömu verðbréfum og hæf eru í endurhverfum við- skiptum (sjá síðar). Vextir daglána mynda þak yfir daglánavexti á millibankamarkaði. • Innstæðubréf eru veitt til 90 daga, að ósk lánastofn- ana. Þau eru ekki skráð en þó hæf í endurhverfum viðskiptum. Hlutverk þeirra er að setja gólf undir ávöxtun þriggja mánaða vaxta á peningamarkaði. • Bindiskylda er lögð á lánastofnanir sem ekki eru háð- ar fjárlögum í rekstri sínum. Hún miðast við bindi- grunn sem er niðurstöðutala efnahags að frádregnu eigin fé og millibankaskuldum í lok fyrri mánaðar. Bindihlutföll eru 1,5% fyrir þann hluta bindigrunns sem bundinn er til eins árs eða lengur, en 4% fyrir þann hluta sem bundinn er til skemmri tíma. Bindi- tímabil miðast við 21. dag hvers mánaðar til 20. dags næsta mánaðar og skal innstæða á bindireikningi ná tilskildu hlutfalli að meðaltali á binditímabilinu. Markaðsaðgerðir: • Endurhverf viðskipti eru helsta stjórntæki Seðla- bankans. Vikulega eru haldin uppboð á 14 daga samningum. Lánastofnanir þurfa að leggja fram hæf verðbréf, þ.e.a.s. ríkistryggð bréf með virkri við- skiptavakt á Verðbréfaþingi Íslands. Uppboðin geta verið ýmist fastverðsuppboð eða uppboð þar sem heildarfjárhæð framboðinna samninga er tilkynnt. Fastverðsuppboð hafa verið reglan til þessa. • Viðskipti á verðbréfamarkaði takmarkast við ríkis- tryggð verðbréf. • Inngripum á gjaldeyrismarkaði er einungis beitt telji Seðlabankinn það nauðsynlegt til þess að stuðla að verðbólgumarkmiði sínu eða ef hann telur að gengis- sveiflur geti ógnað stöðugleika fjármálakerfisins. Yfirlit vaxta Seðlabankans Breyting Vextir Viðskiptaform Vextir Síðast (prósentu- fyrir 31. júlí 2002 nú (%) breytt stig) ári (%) Viðskiptareikningar ..... 5,7 21/5/02 -0,2 6,7 Daglán ......................... 10,9 21/6/02 -0,3 12,4 Innstæðubréf................ 8,0 21/6/02 -0,3 10,7 Bindiskylda.................. 7,1 21/6/02 -0,3 9,5 Endurhverf viðskipti.... 8,5 25/6/02 -0,3 10,9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.