Peningamál - 01.12.2005, Page 33

Peningamál - 01.12.2005, Page 33
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 5 • 4 33 VIII Verðlagsþróun og verðbólguhorfur Verðlagsþróun Verðbólga hjaðnar á ný eftir að hafa náð hámarki í september Verðbólga jókst sl. sumar og varð mest 4,8% í september. Síðan hef ur hún hjaðnað nokkuð á ný og var komin niður í 4,2% í nóv- ember. Aukna verðbólgu á haustmánuðum má einkum rekja til þess að lækkun dagvöruverðs mánuðina á undan gekk til baka auk þess sem húsnæðisverðbólgan hélt áfram að aukast allt þar til í október. Nóv ember markaði hins vegar þáttaskil að því leyti að nokkuð dró úr húsnæðisverðbólgunni og er líklegt að sú þróun muni halda áfram næstu mánuði. Þótt dregið hafi úr húsnæðisverðbólgu í nóvember einkennist hús næðismarkaðurinn enn af mikilli eftirspurn. Verðhækkun innlendr- ar þjónustu og umtalsverð hækkun á gengi krónunnar sem hefur ekki skilað sér í samsvarandi lækkun vöruverðs eru einnig til vitnis um mikla eftirspurn. Kjarnavísitölurnar sýna nokkru meiri undirliggjandi verðbólgu en vísitala neysluverðs. Á tólf mánuðum til byrjunar nóvember hafði kjarna vísitala 1 hækkað um 4,6% og kjarnavísitala 2 um 4,4%. Hjöðn- un verðbólgunnar undanfarna mánuði má því að nokkru leyti rekja til sveiflukenndra liða. Verðbólga á þriðja fjórðungi ársins var 4,2%, eins og Seðlabankinn spáði í september, enda var langt liðið á fjórðunginn þegar spáin var gerð. Verðbólga á fjórða ársfjórðungi verður líklega nokkru minni en spáð var í september, eða um 4%. Nokkuð dró úr húsnæðisverðbólgu í nóvember... Hækkun húsnæðisverðs hefur verið meginuppspretta verðbólgu hér á landi undanfarið ár. Í nóvember var húsnæðisliður vísitölu neysluverðs 17,8% hærri en fyrir ári. Áhrif hans til hækkunar vísitölu neysluverðs námu 3,4 prósentum. Hækkun húsnæðisliðarins skýrist að mestu leyti af hækk un markaðsverðs íbúðarhúsnæðis, sem í nóvember hafði hækk að um 33% á tólf mánuðum. Töluvert hefur dregið úr mánaðar- legri verð hækkun íbúð arhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Í október hækk aði verð fjöl býlis á höfuðborgarsvæðinu um 1½% milli mánaða, sam kvæmt Fast eignamati ríkisins, en verð einbýlis lækkaði um 1%. Und anfarna tólf mánuði hefur verð fjölbýlis og einbýlis á höfuðborg ar- svæðinu hækk að um 34,9% og 45,9% samkvæmt upplýsingum Hag- stofu Íslands. Verð íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni hefur hækkað öllu minna, eða um 20,6%, en öfugt við höfuðborgarsvæðið hefur verðhækkunin und anfarna mánuði verið meiri en áður, eða að meðal- tali um tæplega 3% milli mánaða undanfarna fjóra mánuði. ... en verð á þjónustu hækkar hraðar Verð opinberrar þjónustu hafði í byrjun nóvember hækkað um 6,7% á tólf mánuðum. Áhrif á vísitölu neysluverðs námu 0,5 prósentum. Á sama tíma hækkaði verð þjónustu einkaaðila um 4,2% og áhrif til hækkunar vísitölunnar námu tæplega prósentu. Mynd VIII-1 Verðbólga janúar 2001 - nóvember 20051 0 2 4 6 8 10 12 20052004200320022001 12 mánaða breyting vísitölu (%) Vísitala neysluverðs Kjarnavísitala 1 Kjarnavísitala 2 Verðbólgumarkmið Seðlabankans 1. Kjarnavísitölur mæla undirliggjandi verðbólgu, kjarnavísitala 1 er vísitala neysluverðs án búvöru, grænmetis, ávaxta og bensíns. Í kjarnavísitölu 2 er að auki verðlag opinberrar þjónustu undanskilið. Heimild: Hagstofa Íslands. -10 0 10 20 30 40 50 60 Landið allt Landsbyggðin Höfuðborgarsvæði: Einbýli Höfuðborgarsvæði: Fjölbýli 20052004200320022001 Heimild: Hagstofa Íslands. 12 mánaða breyting vísitölu (%) Mynd VIII-2 Markaðsverð íbúðarhúsnæðis mars 2001 - nóvember 2005 0 5 10 15 20 Þjónusta á almennum markaði Opinber þjónusta Húsnæði 2005200420032002 12 mánaða breyting vísitölu (%) Heimild: Hagstofa Íslands. Mynd VIII-3 Verðlagsþróun: húsnæði og þjónusta janúar 2002 - nóvember 2005
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.