Peningamál - 01.12.2005, Page 56
ERLEND SKULDABRÉFAÚTGÁFA
Í KRÓNUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
56
við mikinn verðbólguvanda og peningalegt aðhald jókst víða. Erlendir
fjár festar litu þessa háu vexti öfundaraugum og voru snöggir að grípa
tækifærið þegar lönd í Eyjaálfu og Norðurlöndin (fyrir utan Ísland) riðu
á vaðið og gerðu skuldabréfaútgáfu erlendra aðila í gjaldmiðlum þess-
ara landa mögulega.
Á síðustu tuttugu árum hafa fl eiri lönd bæst í hóp ríkja sem hafa
gert erlendum aðilum kleift að gefa út skuldabréf í gjaldmiðli sínum, sjá
töfl u 1. Spánn, Portúgal og Grikkland voru fyrst til að fylgja fordæmi
Norðurlandanna enda stefndu þau að inngöngu í Evrópusambandið þar
sem fullt frelsi fjármagnsfl utninga átti að taka gildi árið 1993. Nokk ur
ríki í Austur-Evrópu, sem losnuðu undan oki áætlunarbúskapar í upp hafi
tíunda áratugarins, og Suður-Afríka voru í næsta hópi ríkja sem opnaði
markaði sína fyrir erlendri skuldabréfaútgáfu í eigin gjaldmiðli í kringum
1995. Á allra síðustu árum hafa nokkur ríki í Asíu og Suður-Ameríku
auk Tyrklands fylgt í kjölfarið. Ísland er nýjasta nafnið á þess um lista.
Alþjóðlegar fjármálastofnanir hafa leikið lykilhlutverk í opnun
nýrra markaða fyrir útgáfu erlendra skuldabréfa í smærri gjaldmiðlum.
Alþjóðabankinn hefur verið brautryðjandi á þessu sviði en bankinn hef-
ur tæplega sextíu ára reynslu af útgáfu skuldabréfa til að fjármagna
Um 1985 og til 1989 1990-1994 1995-1999 2000-2003 2004-2005
Ástralía
Nýja-Sjáland
Danmörk
Írland
Noregur
Svíþjóð
Finnland
Ísland
Spánn
Portúgal
Grikkland
Ungverjaland
Tékkland
Slóvakía
Pólland
Tyrkland
Hong Kong
Taívan
Filippseyjar
Suður-Kórea
Singapúr
Indland
Taíland
Kína
Malasía
Suður-Afríka
Mexíkó
Chíle
Kólumbía
Perú
Heimildir: Herrera-Pol (2004), Görmez og Yilmaz (2005), Seðlabanki Íslands.
Tafla I Yfirlit um upphaf skuldabréfaútgáfu erlendra aðila í gjaldmiðlum
viðkomandi landa 1985-2005
Heimildir: Reuters, Seðlabanki Íslands.
Ma.kr. Ma.kr.
Mynd 2
Útgáfa erlendra skuldabréfa í krónum
ágúst-nóvember 2005
Umfang eftir mánuðum og uppsafnað
0
10
20
30
40
50
60
70
0
20
40
60
80
100
120
140
Uppsöfnuð útgáfa erlendra skuldabréfa (hægri ás)
Útgáfa erlendra skuldabréfa (vinstri ás)
NóvemberOktóberSeptemberÁgúst