Peningamál - 01.12.2005, Blaðsíða 69
ERLEND SKULDABRÉFAÚTGÁFA
Í KRÓNUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
69
Áhrif á vexti og viðskiptahalla
Starfsmenn Seðlabanka Nýja-Sjálands leggja áherslu á að hentugt sé
að skoða útgáfu erlendra skuldabréfa sem lið í aukinni samþættingu
alþjóðlegra fjármálamarkaða. Við aðstæður þar sem mikil innlend eft-
irspurn eftir lánsfé hefur skapað ójafnvægi á milli innlends sparnaðar
og fjármunamyndunar, hækki vextir umfram almennt heimsmarkaðs-
vaxtastig sem gerir hagkerfi nu kleift að halda áfram fjárfestingum sín-
um með erlendri lántöku. Viðskiptahallinn, þ.e. mismunurinn á inn lend-
um sparnaði og fjárfestingum, sé því fjármagnaður með innstreymi
erlends sparnaðar sem er laðaður inn til landsins með hærri vöxtum en
bjóðast erlendis.
Útgáfa erlendra skuldabréfa í nýsjálenskum dölum eykur framboð
á lánsfé innanlands16 en það leiðir til lækkunar vaxta þar sem framboð
og eftirspurn eftir lánsfé geta mæst við lægra vaxtastig en ella, sjá
mynd 5. Þessi þrýstingur á lækkun innlendra vaxta hvetur til aukinnar
fjármunamyndunar sem aftur eykur viðskiptahallann við útlönd þar
sem bilið á milli innlends sparnaðar og fjárfestingar eykst enn frekar.
Í fjarveru útgáfunnar yrði að mæta aukinni eftirspurn eftir lánsfé
innanlands með auknum sparnaði landsmanna en slíkt kallar á hærri
vexti. Slík hækkun vaxta myndi auka sparnað innanlands og draga úr
viðskiptahallanum.
Áhrif útgáfunnar eru því lækkun vaxta sem gerir innlendri út lána-
aukningu og fjármunamyndun kleift að vaxa í lengri tíma en ella. Til
lengri tíma er hins vegar líklegt að hægi á í efnahagslífi nu og viðskipta-
jöfnuður leiti jafnvægis. Þrýstingur útgáfunnar til lækkunar vaxta getur
ekki, fremur en peningastefna, stuðlað að stöðugum hagvexti umfram
framleiðslugetu til langs tíma.17
Áhrif á gengi
Við fyrstu sýn má ætla að útgáfa af þessu tagi styrki gengi innlenda
gjaldmiðilsins við útgáfu og veiki það þegar nær dregur enda líftímans.
Engu að síðar hefur víðtækum rannsóknum hagfræðinga Seðlabanka
Nýja-Sjálands ekki tekist að sýna fram á veruleg áhrif, hvorki við út-
gáfu né gjalddaga. Þeir telja því að slík áhrif hljóti að vera ýmist smá,
skammvinn eða verðlögð inni í ferlinu löngu áður en kemur að gjald-
daga, í takt við kenningar um framsýnar væntingar.
Tafla 3 Samanburður á erlendri skuldabréfaútgáfu í gjaldmiðlum
Nýja-Sjálands og Íslands
Nýja-Sjáland Ísland
Útistandandi erlend skuldabréf í 1958,5 ma.kr. eða 114,75 ma.kr. eða
nóvember 2005 um 30% af VLF um 13% af VLF
Meðallíftími bréfa1 tæp 4 ár 1,7 ár
Útgáfa hófst árið 1985 2005
1. Líftími bréfanna hefur lengst á milli bylgnanna þriggja og er líftími Eurokiwi-bréfanna í nýjustu bylgjunni að
meðaltali tæp fimm ár. Uridashi-bréfin eru hins vegar nær öll með tveggja til þriggja ára líftíma.
Heimildir: Drage o.fl. (2005), Reserve Bank of New Zealand (2005b).
16. Erlend skuldabréfaútgáfa kemur þó ekki fram sem aukið innstreymi fjármagns í þjóðhags-
reikningum heldur sem vörn. Færslurnar, sem koma fram þar, eru í fl estum tilvikum erlend
lántaka nýsjálensks banka. Það breytir ekki því að tiltækt framboð fjármagns eykst.
17. Í grein Þórarins G. Péturssonar (2001a) er gerð grein fyrir áhrifaleysi peningastefnu á raun-
stærðir til langs tíma.
Mynd 5
Framboð og eftirspurn eftir fjármagni
í nýsjálenskum dölum
Verð fjármagns í Nýja-Sjálandsdölum
Innlent fjármagnQ0 Q1 Q2
E1
E2
F1
F2
E1 til E2: Aukin eftirspurn eftir fjármagni í Nýja-Sjálandsdölum
t.d. vegna húsnæðisverðsþróunar.
F1 til F2: Framboð fjármagns eykst þegar erlendir fjárfestar fá
aðgang að fjármagnsmarkaði í Nýja-Sjálandsdölum.
Heimild: Drage, o.fl. (2005).