Peningamál - 01.12.2005, Page 95
L ÍFEYRISS JÓÐIR – FRAMTÍÐARHORFUR
OG ÓVISSUÞÆTTIR
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
95
Tafl a 3 sýnir nokkur dæmi um framreikning með ofangreindu
líkani. Verðlag er fast þannig að allar upphæðir eru á verðlagi ársins
2004. Gert er ráð fyrir að framleiðni og laun hækki um 1% á ári um-
fram verðlag. Reiknað er með að iðgjöld séu 11% af launum árið 2005.
Eftir það er iðgjald reiknað þannig að réttindaöfl un frá og með 2005
sé 1,4% af launum og sjóðurinn og framtíðariðgjöld dugi nákvæmlega
fyrir núverandi réttindum þeirra sem eru í sjóðnum og réttindum sem
þeir eiga eftir að vinna sér inn, en án nýrra félaga. Í framreikningunum,
sem sýndir verða hér, eru nýir félagsmenn hins vegar teknir með.
Í núverandi sjóðum er réttindaöfl un ýmist föst, eins og hér er
reiknað með, eða aldurstengd. Bæði kerfi n hafa fast iðgjaldahlutfall
fyrir alla aldurshópa og verða að uppfylla lagaákvæði um lágmarkstrygg-
ingu. Það ætti því ekki að skipta máli fyrir stærð sjóða og end an legan
lífeyri þó að hér sé reiknað með fastri réttindaöfl un sem er einfaldara.
Iðgjaldið í grunndæminu þarf að vera 12,0% eftir árið 2005. Þar
sem reiknað er með lægstu leyfi legu réttindum er þetta líklega ívið
lakari afkoma en hjá raunverulegu sjóðunum. Á því geta verið ýmsar
skýringar, m.a. er aldurs- og kynjasamsetning þeirra heldur hagstæðari
en í okkar tilbúna sjóði þar sem fl eiri konur eru í sjóðum opinberra
starfsmanna en almennum sjóðum og starfsmenn hefja síðar störf þar.
Hér er reiknað með fjölda af hverjum aldri og kyni samkvæmt heild-
artölum yfi r alla landsmenn. Þróun sjóðsins á verðlagi 2004 er sýnd í
töfl u 3. Hann vex úr 740 milljörðum árið 2004 í 1400 milljarða næstu
10 árin. Meðalréttindi þeirra sem eru að fara á eftirlaun í ár eru um
22% af launum starfandi fólks á aldrinum 40-60 ára. Árið 2015 verða
þau komin upp í 32%, tæp 40% árið 2025 og stefna á 46%.
Auk grunndæmisins eru sýnd þrjú dæmi þar sem einum þætti er
breytt frá grunndæmi, en allir aðrir eru eins. Í einu breytast raunvextir
og lækka línulega frá 3,5% í 2,5% árin 2010-2029 og haldast síðan
2,5%. Í öðru er reiknað með 2% framleiðniaukningu og að lokum er
lífslíkum breytt þannig að sjóðfélagar lifi að meðaltali ári lengur en
samkvæmt dánartíðni grunnlíkansins. Eins og fram kemur í töfl u 3
leiðir vaxtalækkun um eina prósentu til þess að iðgjald þarf að hækka
um 3,3% af launum og sjóðirnir verða talsvert stærri. Framleiðnibreyt-
ingar og samsvarandi launahækkanir hafa lítil áhrif á iðgjald miðað við
þá túlkun á lagaákvæði um lágmarkstryggingavernd sem hér er miðað
við. Þær hafa hins vegar mikil áhrif á hlutfallið milli tekna lífeyrisþega
og starfandi fólks
Tafla III Iðgjald, heildareign og hlutfall ellilífeyris af launum1
Almennir sjóðir Séreignarsjóðir
Iðgjald, Heildar- Heildar- Hlutfall Hlutfall Heildar- Heildar-
% af eign eign ellilífeyris af ellilífeyris af eign eign
launum ma.kr. ma.kr. launum launum ma.kr. ma.kr.
Ár 2015 2025 2015 2025 2015 2025
Grunndæmi 12,0 1477 2213 0,322 0,396 399 684
Vextir lækka frá 3,5% í 2,5% 15,3 1653 2549 0,322 0,396 396 652
2% framleiðniaukning 12,3 1534 2429 0,295 0,343 415 750
Meðalævi lengist um 1 ár 12,7 1516 2305 0,322 0,396 399 686
1. Í grunndæmi eru raunvextir 3,5%, framleiðniaukning 1% og ævilíkur eins og í grunndæmi á mynd 7. Í öðrum dæmum er einum þessara þátta breytt en hinir eins og í grunn-
dæmi.