Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 10
8
GLOÐAFEYKIR
formlega öllum umráðum þar í júní 1972, enda var þá lokið öllum
flutningi þaðan í nýja húsið.
Um áramótin 1969—1970 var svo fyrsti hlutinn tekinn í notkun og
bókasafnið opnað í hinum nýju húsakynnum. Þá var heildar kostnaður
orðinn rúmlega 5 milljónir króna og efri hæðin vel á veg komin, stigahús
frágengið, einnig komið gler og miðstöð í norður hluta neðri hæðar, en
suðursalur og kjallari einungis uppsteypmr og húsið ófrágengið að utan.
Árið 1972 var skjalasafnið opnað fyrir almenning og 1973 er gengið frá
fundarsal á neðri hæð. Lagt var parkett gólf á sýningarsalinn 1974 og
lestrarsalur bókasafnsins opnaður um áramótin 1975—1976. Nú, árið
1977, er eftir að búa geymslu á neðri hæð og kjallarinn er allur
ófrágenginn og lítt nothæfur. Ber nauðsyn til að Ijúka þessum verkefnum
hið fyrsta til að húsið nýtist að fullu.
í árslok 1975 var búið að ganga frá og innrétta húsið nokkurn veginn
eins og það er í dag (1977), þótt síðan hafi bætzt við nokkur húsbúnaður.
Þá var heildar byggingarverð hússins orðið 10.912.318.42 kr., en fram-
lög eignaraðila sem hér segir:
Skagafjarðarsýsla kr. 3.810.000,00
Sauðárkróksbær — 4.225.749,00
Ríkissjóður — 2.197.500,00
Samtals kr. 10.233.249,00
Margir aðilar unnu að þessari byggingu, sem enginn kosmr er að telja,
en svo nefndir séu þeir, er umsjón höfðu með helztu verkefnum, þá
er þegar getið Björns Guðnasonar og Hlyns h.f., sem sáu um að koma
húsinu upp og inmértingar flestar. Eyjólfur Finnbogason ánnaðist pípu-
lagningar og Jón Dagsson múrverkið. Þórður P. Sighvats hafði með
höndum raflagnir og Haukur Stefánsson og Jónas Þór máluðu húsið.
Að síðusm er við hæfi að lýsa húsinu í fáum orðum. Byggingin er
tæpir 380 m2 að flatarmáli, tvær hæðir og kjallari undir suður hlutanum.
Aðalinngangur er á austur hlið og anddyri og stigagangur norðan við
miðju hússins. Kjallarinn er nálægt 230 rrr, þar er fyrst og fremst gert
ráð fyrir geymslum fyrir söfnin. A neðri hæð að sunnan er 195 m? salur,
búinn Ijóskösmrum, ætlaður fyrir listsýningar, hljómleika, kvöldvökur eða
aðrar samkomur. I norður hluta er u.þ.b. 60 nr’ fundarsalur austan megin,
en að vestan geymslur og snyrting. A efri hæð hefur bókasafnið syðri
hlutann, 195 ml Skiptist sá salur eftir miðju, þannig að ausmr hlutinn
er útlánasalur, en lestrarsalur og barnabókadeild eru vestan megin.