Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 17

Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 17
GLOÐAFEYKIR 15 þeirrar gerðar, sem enn er til, er frá því laust fyrir 1600. Frá 17. öld hafa varðveitzt nokkrar dóma- og þingabækur, svo sem úr Skagafjarðar- sýslu (1673—1680). Frá 18. öld eru til dóma- og þingabækur úr nálega öllum sýslum landsins, en víða vantar í. A 18. öld fara sýslumenn almennt að halda bréfabækur, manntals- og skiptabækur. Bréfadagbækur voru og sums staðar teknar upp seint á öldinni. Elzta skagfirzka bréfadagbókin er frá 1803. Oft bar við, að embættis- og sýslumenn litu á skjalagögn embætta sinna sem einkaeign sína, og ekki ótítt, að erfingjar tækju til sín slík gögn, sem síðan fóru á tvístring. Víst var þeim nokkur vorkunn, því að algengt var, að embættismenn færðu einkabréf sín inn í bréfabækur embættisins. Enn í dag er ekki trútt um, að sýslunarmenn, sem kallaðir hafa verið til ýmissa opinberra starfa, líti svo á, að þeir eigi skjöl og gjörðabækur stofnananna. Slík sjónarmið torvelda innheimtu gagna til safna. Alkunnugt er, að eigendur bændakirkna töldu sig eiga skjöl kirkna sinna, þótt s\o væri ekki að lögum. Skjöl Reykjakirkju í Skagafirði — á skinni, hið elzta frá 1311 — voru t.a.m. seld þýzkum verkfræðingi laust fyrir aldamót, síðan komust þau til Bandaríkjanna með syni kaup- andans, og þaðan heimtust þau til Þjóðskjalasafns 1951. Héraðsskjala- safn Skagfirðinga hefur heimt inn opinber gögn frá 18. og 19- öld, sem lengi höfðu verið í fórum einstaklinga, svo sem ættargersemar, um önnur er kunnugt, hvar nið.ir eru komin, jafnvel hefur spurzt til slíkra gagna í öðrum landsfjórðungum. Ymsar gjörðabækur frá 18. og 19- öld hafa verið seldar á uppboðum í Skagafirði endur fyrir löngu með bóka- og blaðarusli. Tilgangur skjalasafna er margþættur, svo sem almennt fræðilegt gildi varðandi sögu og skyldar greinar svo og hagnýtt gildi fyrir samtíðina eins og i hagfræðilegum og læknisfræðilegum efnum og í dómsmálum. Þau spegla þúsund ára reynslu fólksins af landinu og landsins af fólkinu. II. Söfn, sem geyma rituð gögn, er ekki varða opinbera stjórnsýslu — nema þá óbeinlínis — eru nefnd handritasöfn. Þar kennir að vonum margra grasa: sýnishorn af öllu því, sem kynslóðirnar töldu rétt að festa á blað. Þar má líta vísnasöfn, sagnaþætti, rímur og ræðusöfn, ættfræðirit, stað- hátta- og þjóðháttalýsingar, annála, bænir, þulur, þjóðkvæði, sendibréfa- söfn og dagbækur o. s. frv. Handritasöfnin spegla andlega menningararf- leifð þjóðarinnar, líf hennar í blíðu og stríðu, hugðarefni kynslóðanna; sorg og gleði. Allt þetta hefur verið ritað vegna ástar á viðfangsefninu,

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.