Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 30
28
GLOÐAFEYKIR
Fyrsta mjólkurtaka í tankbil í Skagafirði. Myndin er tekin í
Útv’ík 29. apríl 1977.
samvinnuhreyfingunni af stokkum, gæddu hana lífi, báru hana fram til
sigurs — til ómetanlegrar blessunar fyrir þjóðina alla, einnig þá, sem
andvígir eru samvinnustefnunni, skilja hana hvorki né vilja skilja. Sam-
eiginlegir erfiðleikar tengja menn saman, glæða félagslega ábyrgðarkennd.
Þegar bemr blæs losnar um tengslin. Þá vill stundum fara svo, að hver
oti sínum tota meir en hófi gegnir, meir en hollt er fyrir heildina, reki
inn fleyg, þar sem ef til vill vottar fyrir sprungu. Samvinnufélögin áttu
þegar í öndverðu og eiga enn hatramma andstæðinga. Við því er ekkert
að segja. Allar félagsmálastefnur, jafnvel allar mannbótastefnur, eiga
sína andstæðinga. Opinber andstaða, jafnvel beinn fjandskapur, vinnur
samvinnufélögunum trauðla varanlegan geig. Innri sundrung, skortur á
félagslegri ábyrgðarkennd, er mesmr háskinn. Það höfuðmein hefur
smndum valdið því, að félög hafa riðað til falls. Engimt má skilja orð mín
svo, að ég sé að hafa á móti gagnrýni. Heilbrigð gagnrýni sprottin af
góðum hug, borin fram til að benda á það, sem bemr mætti fara, en
ekki af illkvittni, er holl og góð og raunar hrein nauðsyn hverju félagi.