Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 31

Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 31
GLOÐAFEYKIR 29 ... Sannleikurinn er sá, að félagsmenn skortir lifandi áhuga, allt of marga, bæði hér og annars staðar. Ljóst dæmi um það er hve deildarfundir eru illa sóttir, þótt mjög sé misjafnt eftir deildum. Við skulum gera okkur fullkomlega Ijóst, að fjöldi manna á starfssvæði K. S., einkum hin yngri kynslóð, er næsta ófróð um eðli og starfsemi félagsins, að ég ekki tali um tilgang þess. Þarna er háski búinn. Hversu margir ungir menn — og raunar eldri líka — gera sér ljósa grein fyrir höfuðþýðingu þeirrar staðreyndar, að óskiptilegar eignir K. S. verða aldrei fluttar brott úr þessu héraði? Skildu þeir allir sk'lja eðli og tilgang stofnsjóðs? Mundi þeim öllum vera kunnugt, að kaupfélagið hefur um langt skeið varið á ári hverju vænum fúlgum til margvíslegra, menningarmála? Svona mætti lengi spyrja, jafvel um hin einföldusm atriði. Eftir því sem ég hugsa lengur um þessi mál, að sama skapi verður mér æ betur ljóst, að hér verður trauðla úr bætt með öðru móti en góðri og markvissri fræðslustarfsemi, sem áður var raunar betur miklu rækt en nú. Á engu ríður K. S. meir, á engu ríður kaupfélögunum meir en að almenningur þekki og skilji tilgang þeirra, efnahagslegan og eigi síður félagslegan, skilji, að félögin eru ekki einhver óviðkomandi aðili, finni og skilji, að kaupfélögin eru til fyrir fólkið en ekki öfugt, að félögin eru fólkið sjálft.. I skýrslu kaupfélagsstjóra, sem var löng og um margt mjög eftirtektar- verð, kom m.a. þetta fram: Á árinu 1976 fjölgaði félagsmönnum K. S. um 70 og voru þeir í árslok 1.397. Fastráðnir starfsmenn félagsins og fyrirtækja þess voru um áramót 182 auk 15 hjá Sængur- og svefnpokagerðinni, eða alls 197. Utgefnir launa- miðar voru 1.030, greidd laun og launatengd gjöld 431,6 millj. kr., og opinber gjöld, þar með talinn söluskattur, 181,3 millj. Fjárfestingar á árinu 103,3 millj. kr. Lógað var á vegum félagsins 63 þús. fjár og 1.700 nautgr. og hrossum. Félagið greiddi bændum 1.056 millj. kr. fyrir búvöru á árinu, en alls nam sala á innl. afurðum 1.275 millj. kr. Heildarvelta félagsins varð 3-265 millj. króna á árinu 1976. Framkvæmdastj. Fiskiðjunnar h.f. las og skýrði reikninga fyrirtækisins fyrir s.l. ár. Gekk reksturinn vel og skilaði tæpl. 8,3 millj. kr. hagnaði. Umræður urðu að vanda miklar á fundinum, fluttar alls 143 ræður, margar smttar að vísu — og þó eigi nærri allar, margar tillögur bornar fram; verður hér á eftir getið þeirra, er samþykktar vora. Stjórn félagsins skipa: Gísli Magnússon form., Jóh. Salb. Guðmundsson varaform., Þorsteinn Hjálmarsson ritari, Gunnar Oddsson, Jónas Haralds-

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.