Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 66
64
GLÓÐAFEYKIR
Þórarni Jóhannssyni og konu hans Ólöfu Guðmundsdóttur, eftir að þau
rókn við búsforráðum 1918, allt þar til hún stofnaði eigið heimili.
Árið 1933 gekk Guðleif að eiga Björn bifreiðastj. Bjömsson, síðast
bónda í Hvammkoti á Skaga, Benónýssonar, og konu hans Ingibjargar
Stefánsdóttur bónda í Geitagerði, Sigurðssonar,
og konu hans Ragnheiðar Sölvadóttur. Skömmu
síðar fluttu þau Guðleif og Björn til Sauðár-
króks og stóð þar heimili þeirra upp þaðan.
Þau eignuðust ekki börn.
Guðleif Guðmundsdóttir var há og ímr-
vaxin, grannleit, dökkhærð, fölleit ásýndum
og skipti vel litum. Hún var afburða dugleg
meðan heilsu naut og kunni aldrei að hlífa
sjálfri sér; húsbændum sínum á Ríp vann hún
af svo frábærri trúmennsku og hollustu, að
lengra verður eigi komizt, enda var hún alla
stund sem ein af fjölskyldunni og tók þvílíku
ástfóstri við börnin, sem eigin móðir væri. Að eðli var hún geðrík nokkuð
en stillti vel skapi sínu, var fámælt og fáskiptin, trygg sem bjarg og
felldi aldrei niður velvild sína til nokkurs manns, er hún á annað borð
hafði bundið tryggðir við.
ELÍ HÓLM KRISTJÁNSSON, bóndi á Hafgrímsstöðum í Tungusveit,
lézt þ. 14. ágúst 1972.
Hann var fæddur á Hafgrímsstöðum 1. júní 1895. Voru foreldrar hans
Kristján bóndi þar Kristjánsson, bónda á
Kimbastöðum í Borgarsveit Jónssonar, og bú-
stýra hans Elín Arnljótsdóttir bónda á Syðri
Löngumýri í Blöndudal, Guðmundssonar alþm.
og bónda á Guðlaugsstöðum, Arnljótssonar, og
konu hans Gróu Sölvadóttur. Var Elí albróðir
Hannesar á Brenniborg og Jóhannesar á Reykj-
um, sjá Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 61 og 17. h.
1976, bls. 57.
EIí missti föður sinn fárra vikna gamali.
Olst upp með móður sinni á Hafgrímsstöðum
til 1906 og síðan 1 Hvammkoti í sömu sveit.
Árið 1923 kvæntist hann Snjólaugu GuS-
mundsdóttur bónda í Bjarnastaðahlíð Sveinssonar og konu hans Ingibjargar
Friðfinnsdóttur, sjá Glóðaf. 5. h. bls. 31 og 13. h. 1972, bls. 47. Fyrsm
EIí Hólm
Guðleif Guðmundsdóttir