Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 60
58
GLOÐAFEYKIR
árið 1926 tóku þau til fósturs sex mánaða stúlkubarn, Gunnhildi Abelínu
Magnúsdóttur. Þessari litlu stúlku gengu þau í foreldrastað og ólu upp sem
væri þeirra eigið barn, gáfu henni alla ástúð sína og umhyggju". (Sr.
G. G.).
Gunnh.ildur Andrésdóttir var naumlega meðalkona á hæð, en þrekvaxin
og holdug nokkuð, er á leið ævi. Hún var dökk á brún og brá, væn kona
í sjón og raun, trygg í lund og vinföst. Eigi var hún umsvifakona, en
helgaði heimilinu krafta sína, vann störf sín öll í kyrrþey og anda hinnar
góðu og skylduræknu húsfreyju.
GUÐJÓN JÓHANNSON, f. bóndi að Nýlendi á Höfðaströnd, lézt þ.
27. júní 1972.
Hann var fæddur að Þorsteinsstaðakoti í Tungusveit 10. ágúst 1887,
sonur Jóhanns bónda í Saurbæ á Neðribyggð
Jóhannssonar og konu hans Þuríðar Símonar-
dótrnr bónda á Bjarnastöðum í Unadal, Krist-
jánssonar. Var Guðjón albróðir Jóhönnu, konu
Jóhanr.esar Sigvaldasonar, sjá Glóðaf. 1968, 8.
h. bls. 39-
Guðjón var hinn 4. í röð 8 alsystkina, er á
legg komust. Ungum var honum komið í fóst-
ur til móðursystur sinnar, Guðbjargar Símonar-
dóttur og eiginmanns hennar, Guðjóns Vigfús-
sonar, er þá og lengi síðan bjuggu á Grund-
arlandi í Unadal; hjá þessum fósmrforeldrmu
sínum ólst hann upp til fullorðinsára. „Gmnd-
arlandsheimilið var talið til fyrimyndar að snyrtimennsku og reglusemi og
mótaðist Guðjón mjög í þeim anda, vildi hafa reglu á öllum hlumm,
enda sjálfur snyrtilegur í hvívetna". (Björn í Bæ).
Arið 1914 kvæntist Guðjón Ingibjörgu Sveinsdóttur bónda í Háagerði
á Höfðaströnd, Stefánssonar síðast bónda á Bjarnastöðum í Unadal, Her-
mannssonar, og konu hans Onnu Símonardóttur bónda á Bjarnastöðum,
Kristjánssonar, en kona Símonar og móðir Onnu var Guðbjörg Sigmunds-
dóttir. Var Ingibjörg alsystir Rósmundar í Efra-Asi (sjá Glóðaf. 1972,
13. h. bls. 60). Hermanns á Miklahóli og þeirra systkina.
Þau Guðjón og kona hans reistu bú á Nýlendi og bjuggu þar óslitið
í 40 ár, eða allt til þess er Ingibjörg andaðist árið 1954. Bú þeirra hjóna
var aldrei stórt, en snomrt og gagnsamt í bezta lagi. Eftir að Guðjón
missti konu sína og hvarf frá búsýslu, dvaldis hann lengstum hjá dætrum
sínum til skiptis, en þó lengst hjá Svanhildi.
Guðión frá Nýlendi