Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 51

Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 51
GLOÐAFEYKIR 49 hans Kristínar Þorsteinsdóttur. Þau eignuðust þrjá sonu: Svein, Rafn og fóhann Konráð, og dveljast allir í foreldrahúsum. Sveinn var meðalmaður á vöxt, þrekvaxinn og karlmannlegur. Glað- lyndur var hann og gamansamur, en gat verið hrjúfur í svörum, ef honum bauð svo við að horfa, fór sínar eigin gömr og hirti lítt um troðnar slóðir. „Hann var greiðamaður og ómælt er það og óvegið, sem hann gaf af veiði sinni. Sveinn var hreinskilinn, sóma- og dugnaðarmaður og vel látinn af öllum, sem honum kynntust". (Heimildarm. Jóh. Olafsson). MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR, verkak. á Sauðárkr. lézt 10. marz 1972. Hún var fædd á Sauðárkr. 23. júlí 1923, dóttir Jóhanns bónda á Hóli á Skaga Jónatanssonar og Hólmfríðar Sveinsdóttur bónda í Kem Magnússonar. Var hún alsystir Sveins útvegsbónda í Hofsósi, sjá næsta þátt hér undan. Fjögutra ára gömul fór Margrét í fósmr til Þorkels bónda á Ingveldarstöðum á Reykja- strönd Jónssonar og konu hans Onnu Sigurðar- dóttur. Þorkell lézt 1929, en Anna fóstra hennar bjó áfram á jörðinni um sinn og síðan synir hennar unz þau fluttu til Sauðárkróks árið 1944. Fylgdi Margrét þeim eftir og ann- aðist heimilishald fyrir uppeldisbræður sína, þá Sigmund og Hauk, eftir að Anna fóstra hennar lézt 1959. Skömmu eftir að fjölskyldan settist að á Sauðárkróki réðst Margrét til starfa hjá Mjólkursamlagi Skagfirðinga og vann þar fram undir það síðasta, er heilsan brast. Kröfðust störf hennar í Samlaginu mikils þreks og dugn- aðar, enda var hún búin hvom tveggja í ríkum mæli. Margrét Jóhannsdóttir var meira en meðalkvenmaður að hæð, þrekvaxin og holdug nokkuð, vel farin og fríð í andliti. „Hún var ekki mikið í sviðsljósi hins daglega lífs, en vann öll sín störf af trúmennsku og dugnaði. Hún var ein af þessum hljóðlám manneskjum, sem fáir þekkm til hlítar aðrir en helzt þeir, sem verka hennar num. En þeir vom að vísu margir, því að loknum þreytandi vinnudegi og heimilisstörfum var hún ávallt reiðubúin til hjálpar þeim, sem í erfiðleikum átm. Alla ævi fórnaði hún sér fyrir aðra." (St. Magn.). Margrét giftist hvorki né átti börn. Tilargrét Jóhannsdóttir

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.