Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 45

Glóðafeykir - 01.11.1977, Side 45
GLOÐAFEYKIR 43 Þetta sögðu þeir Svetnbjörn Egilsson rektor: „... því án dygðar og ráðvendni er 511 þekking hégómi og maðurinn ekki einu sinni hálfur maður". Dr. Sigmbjöm Einarsson bisknp: „Gleyminn hugur og þakkarlaus gagnvart hinu liðna sér aldrei annað í kringum sig né framundan en skugga eða hillingar". Snorri Sigfússon: „Fjöldi hinna beztu og vitrustu manna hafa játað og boðað þá trú, að kristindómurinn sé leiðin til farsældar, siðmenningin haldi ekki velli án hans, og heilbrigt mannlíf blómgist ekki án trúar á eilíft líf. Björn Þorsteinsson sagnfrceðingur: „Eg veit ekki betur en að við Islendingar höfum þegið siðmenninguna af heilagri kirkju, og flest það, sem við teljum okkur til gildis, sé frá þeirri stofnun komið. Eg veit ekki betur en að drengskaparhugsjónir íslenzkra fornbókmennta hafi orðið fyrir kristnum áhrifum, eins og flest annað, sem okkur þykir til um í fornum fræðum. Vér Islendingar erum engir menn til þess að lítilsvirða fornhelgar stofnanir". Asgeir Bjarnþórsson málari: „Tízkulist er eins og hrímið sem myndast á einni nóttu eða degi en hjaðnar síðan fyrir þeirri sól, sem eilíflega skín". Jón Asge 'trsson tónskáld: „Maðurinn hefur ekki enn, og mun ekki þrátt fyrir þekkingu og vits- muni, geta leyst þá galdragátu, hvað sé list, eða hvað ekki list."

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.