Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 13
GLOÐAFEYKIR
11
C'r lestrarsal safnsins.
eign safnsins var þá tæp 1100 bindi, flest góðar bækur, en í slæmu
ástandi vegna lélegra geymsluskilyxða fram að því. Sr. Helgi Konráðs-
son tók þá að sér að skrásetja safnið fyrir væga þóknun. Gerði hann
tvöfalda spjaldskrá yfir bækur safnsins, hina vönduðusm í alla staði,
þótt hún sé eðlilega úrelt nú 40 árum síðar. Allt til ársins 1956 sá sr.
Helgi um bókakaup og skrásetningu nýrra bóka, og vann allan þann tíma
óþreytandi að vexti og viðgangi safnsins. Bókakostur þess jókst því
mjög næsru árin, og í árslok 1949, þegar safnið gaf út prentaða bóka-
skrá, voru 5500 bindi á skrá. Hafði safnið m.a. fengið rausnarlegar
bókagjafir á þessu tímabili, einkum þó frá Jósef J. Björnssyni og sr.
Hallgrími Thorlacius, en þær tvær gjafir einar námu hátt á 11. htmdrað
bindum.
Arið 1956 tók Björn Daníelsson, skólastjóri, við bókakaupum og
skráningu, svo og afgreiðslu á útlánstímum. Jókst bókaeign safnsins jafnt
og þétt í tíð hans, svo og útlán. Þar kom, að allt of þröngt varð um
safnið í Bókhlöðunni við Suðurgöm, og hömluðu þau þrengsli frekari
aukningu á starfsemi safnsins. En um áramótin 1969—1970 var bóka-
safnið flutt í hið nýja Safnahús, sem reist hafði verið við Faxatorg. Hefur
það til umráða meginhluta efri hæðar hússins. Skiptist húsnæðið í stóran