Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 23

Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 23
GLOÐAFEYKIR 21 Hins vegar er svo til ætlazt, að prestþjónustubækur og dóma- og þinga- bækur, svo að eitthvað sé nefnt, verði fengið Þjóðskjalasafni til varð- veizlu. Ef ágreiningur verður um geymsluskyldu, sker þjóðskjalavörður úr. Mikið vantaði á, að Héraðsskjalasafn Skagfirðinga gæti fullnægt þeim skyldum, sem því var ætlað að rækja skv. lögum og reglugjörð. Framan af hafði safnið aðeins einn skáp í bókasafninu til afnota. Séra Helgi Konráðsson, sem var lífið og sálin í safnamálunum, hafði sett sér það markmið að hefja bókasafnið til vegs. Þegar hann kom að safninu, var bókaeign þess eftir áratuga starfrækslu naumast meiri en nú gengur og gerist um einkabókasöfn. Honum tókst að margfalda bóka- eign þess. Það var því skiljanlegt, að Héraðsskjalasafnið yrði hálfgert olnbogabarn fyrstu árin, þótt ýmsir mætir menn stæðu vörð um það, ásamt séra Helga og Jóni á Reynistað. Almenningur bar það ekki svo mjög fyrir brjóstinu, en kunni að vonum betur að meta gengi bókasafnsins. Gekk því greiðar að afla fjár til þess. Þó var ekki setið auðum höndum: Öll handrit Sögufélags Skagfirðinga runnu til héraðsskjalasafnsins, og kapp var lagt á afritun skagfirzkra hand- rita sem fyrr. Hins vegar gekk innheimta skiljanlega stirt. Sá, sem þetta ritar, var fenginn til að skrifa öllum sýslunarmönnum í héraðinu og krefjast skila á gjörðabókum, en árangur varð sáralítill; og var við það látið sitja að sinni. Ekki var þess kostur, að safnið hefði auglýstan afgreiðslutíma, svo sem lög mæltu fyrir um. Vegna þess fékk almenningur ekki þau kynni af safninu, sem æskileg hefðu verið. Var það bagalegt, því að alltaf bættist því í búið. Um 1960 fékk héraðsskjalasafnið lítið herbergi til afnota í bókhlöð- unni, en söfnin höfðu þá fyrir nokkrum árum eignazt allt húsið. Litlu fyrr var í svo mikið ráðizt að kaupa lesfilmusafn það, sem löngum hefur verið kennt við Mormona frá Utah, þar eð þeir hófu hér fyrstir að festa handrit á filmu. Safn þetta geymir kirkjubækur landsins frá fyrstu tíð fram um 1950, dóma- og þingabækur, aðalmanntöl, skiptabækur, fermingarskýrslur, öll helztu ættfræðirit, prenmð sem óprentuð; má þar nefna Æfi lærðra manna eftir dr. Hannes Þorsteinsson (66 bindi), Prestaævi Sighvats Borgfirðings o. fl. Um leið var keypt ágæt lesvél á þeirrar tíðar mælikvarða. Fljótt þrengdist um handritasafnið í nýju vistarverunni, og var vinnu- aðstaða aldrei góð. Sögufélag Skagfirðinga hafði þar bækistöð sína, og þar var unnið að undirbúningi bóka félagsins. Það hafði á þessum árum komið sér upp miklu mannamyndasafnL Enn sem fyrr voru almenn handrit í miklum meirihluta. Þó bættust safninu í bú ýmis gögn frá Þjóðskjalasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.