Glóðafeykir - 01.11.1977, Page 33
GLOÐAFEYKIR
31
Mjólkurpökkun
b. Frá nefndum, deildum og fulltrúum:
Till. fræðslun. um „að ráðinn verði fræðslufulltrúi sem fasmr starfs-
maður félagsins og hafi hann fræðslu- og félagsmál sem forgangsverkefni.
Verkefni verði m.a. a) að gangast fyrir fræðslufundum og námskeiðum
fyrir félagsmenn og starfsfólk um samvinnuhreyfinguna, stefnu hennar og
störf, b) kynna samvinnuhreyfinguna í skólum og félögum, c) aS vinna að
því að nýta krafta deildarstjóra félagsdeilda og stjórnarmanna í þágu félags-
starfsins og veita þeim þá aðstoð, sem honum er tiltæk til þess að ná
sem be2tum tengslum við félagsmenn, d) að smðla að samstarfi við önnur
frjáls félagssamtök á félagssvæðinu, e) að vera tengiliður félagsins við
Fræðsludeild Sambandsins." Þá leggur nefndin til „að aðalfundur feli
stjórninni að láta gera þátt í máli og myndum um starf og þróun K. S.
frá upphafi. Þátturinn sé við það miðaður, að hann sé traust heimild á
þessu sviði".
Till. fjárhagsn. „um laun stjórnar fyrir yfirstandandi ár".
Till. frá Þórarni Magnússyni um að aðalfundur beini því „til stjórnar
K. S., að hún vinni ömllega að því að fá S. í. S. til að halda áfram á
þeirri braut, að dreifa verksmiðjurekstri sínum um landið". Ennfr. að