Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 36

Glóðafeykir - 01.11.1977, Blaðsíða 36
34 GLOÐAFEYKIR blaðaviðtöl eru misjöfn og geta jafnvel verið varasöm. En úr því að þetta er nú fyrir Glóðafeyki er annað mál og við getum svo sem reynt þetta. Og við reyndum. Eg spyr Kristin fyrst að því hvar og hvenær hann sé fæddur — Eg er fæddur í Gröf á Höfðarströnd 27. maí 1897, og voru foreldrar mínir Sigurlaug Margrét Hólmfríður Jónsdóttir frá Hrepps- endaá í Ólafsfirði og Gunnlaugur Guðmundur Einarsson, bónda á Nauta- búi í Hjaltadal. Kona hans var Kristín dónir Gísla konrektors á Hólum, Jónssonar, Teitssonar biskups og Margrétar Einarsdótmr biskups í Skál- holti. Afi móður minnar hét Þorkell og bjó á Hreppsendaá en móðurfaðir minn var Jón Skarðdal í Siglufirði. Faðir minn var 9 ára þegar hann missti föður sinn. Eftir það ólst hann upp í Haganesvík og var þar til 24 ára aldurs. Þá hóf hann búskap, fyrst 2 ár á Stóra-Grindli,, síðan 13 ár í Minna-Holti. Ur Fljótunum fluttist hann að Gröf, þar sem hann bjó í 5 ár. Loks bjó hann að Stafns- hóli í Deildardal í 10 ár. Hann var þannig við búskap í 30 ár og bjó á 4 jörðum. — Nám í barnaskóla? — Eg naut ekki annarar kennslu í bernsku en þá var títt. Pabbi tók raunar alltaf heimiliskennara hluta úr vetri .m.k. Sá, sem kenndi mér, hét Sæmundur Jóhannsson. Fermingarvemrinn minn var ég svo í barnaskóla Óslandshlíðar og var Rannveig Líndal kennari. Og eina fermingarkortið mitt fékk ég frá henni og á það enn, ásamt mynd af gefandanum. Svo tók ég mig til einn vemr frá áramótum til vors og las íslenzka málfræði og reikningsbók og hafði af því mikið gagn þótt sjálfsnám væri. Það brann alltaf í mér löngun til að læra. — Olstu upp hjá foreldmm þínum? — Já, ég ólst upp hjá þeim til 14 ára aldurs, lengur var það nú ekki. Þá fór ég í Kolkuós til Hartmanns og var hjá þeim hjónum í tvö ár. Að þeim enduðum lá leiðin að Saurbæ í Kolbeinsdal, þar sem ég var árlangt hjá Birni Hafliðasyni og Ragnheiði Þorleifsdótmr, frænku minni. Foreldrar mínir voru þá einnig í Saurbæ í húsmennsku. Eg taldi þessi vistaskipti heppilegri vegna slæms fótbrots, sem ég varð fyrir er ég var 14 ára og átti því erfitt um gang. Bar fótbrotið þannig að, að við vorum að rífa fjárhústóft, en veggurinn hmndi ofan á mig og var ég víst heppinn að ekki hlaust verra af. En þetta var slæmt brot og opið á öðrum fætinum. Magnús heitinn Jóhannsson, sem þá var læknir í Hofsósi, var sótmr til mín og tókst honum af mikilli snilld að gera við brotin. Aldrei hef ég samt náð mér til fulls eftir þetta slys. Fann lengi til máttleysis er ég var á gangi og sinardráttur sótti á fæmrna og fór ákaflega illa með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.