Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 59

Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 59
GLOÐAFEYKIR 57 Kálfsstöðum í Hjaltadal og konu hans Margrétar Þorfinnsdóttur, og hjá þeim hjónum ólst hún upp. Er Björn bróðir hennar hóf búskap á Fram- nesi í Blönduhlíð árið 1909 gerðist hún bústýra hans ásamt með Hólm- fríði systur sinni. Arið 1915 fluttust þau syst- kynin yfir að Vík í Staðarhreppi og voru þar næstu 4. árin. Arið 1919 gekk Margrét að eiga Arna Rögn- valdsson og Sigurlaugar Þorláksdótmr, sjá þátt um Árna í Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 75. Bjuggu þau í Hólkoti (nú Birkihlíð) í Staðarhreppi, á Hafragiii og Selnesi í Skefilsstaðahreppi til 1923, svo sem greinir í Árnaþætti, er þau fóru byggðum til Sauðárkróks og átm þar heima æ síðan. Margrét missti mann sinn þ. 5. apríl 1968. Þau eignuðust eina dótmr barna, Aðal- beiði, húsfr. á Sauðárkr. Margrét Jónasdóttir var í minna lagi á vöxt, hvik í hreyfingum, bráð- skörp til allrar vinnu. Hún var sviphrein, glaðleg ávallt og hress í máli, ágætlega greind sem þau systkini öll og kunni á mörgu skil. Hún var mæt kona, auðug af reynslu langrar ævi, þótt eigi væri umbrotasöm hið ytra. (Heimildir frá St. Magn.). Margrét Jónasdóttir GUNNHILDUR ANDRÉSDÓTTIR, f. húsfr. á Sauðárkr., lézt 11. júlí 1972. Hún var fædd að Tyrfingsstöðum á Kjálka 22. ágúst 1887, dóttir Andrésar Péturssonar bónda þar o. v. og konu hans Kristjönu Jónsdótmr. Var hún alsystir Hjörleifs, sjá Glóðaf. 1973, 14. h. bls. 73. Gunnhildur var næstelzt átta systkina. Á fyrsta ári fluttist hún með foreldrum sínum út á Skaga og ólst þar upp með þeim við mikla fátækt og sífellda flutninga milli býla, m.a. á Oldubakka, nýbýli, er þau komu upp í landi Borgarlækjar; á smndum voru þau og í hús- mennsku. Gunnhildur reyndist snemma dug- mikil og foreldrum sínum mikil hjálparhella. Hún var talin búandi á Þorbjargarstöðum á Laxárdal ytra 1916—1919, en hvarf þá til Sauðárkr. og átti þar heima lengsmm eftir það. Árið 1923 gekk Gunnhildur að eiga Abel Jónsson, verkam. á Sauðár- króki, sjá Glóðaf. 1967, 7. h. bls. 35. Þeim varð ekki barna auðið, „en Gunnhildur Andrésd.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.