Bændablaðið - 19.06.2014, Síða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
*Vatnsmagn í miðlunarlónum er mælt í gígalítrum
(milljörðum lítra).
Krókslón
Hágöngulón
Blöndulón
Þórisvatn
Hálslón
Sultartangalón 109 Gl. • Kelduárlón 60 Gl. • Hrauneyjalón 33 Gl. • Gilsárlón 20 Gl. • Sporðöldulón 25 Gl. • Bjarnarlón 5 Gl. • Ufsar– og Vatnfellslón 3 Gl.
„Það verður geysilegt fjör og
mikil gleði á landsmóti Sambands
íslenskra harmonikuunnenda
dagana 3.-6. júlí næstkomandi
sem haldið verður á Laugum í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu,“
segir Sigurður Ólafsson á Sandi í
Aðaldal, en hann er formaður
undirbúningsnefndar og á von á
mörgum gestum víðs vegar að af
landinu.
Það eru Harmonikufélag Þing-
eyinga og Félag harmonikuunnenda
við Eyja fjörð sem eru gestgjafar á
þessu 12. landsmóti SÍHU. Unnið
hefur verið að undirbúningi þessa
móts í nær tvö ár. Fjöldi tónleika
verður á mótinu og koma þar fram
harmonikuleikarar frá hinum ýmsu
héruðum landsins og félögunum
öllum sem taka þátt í mótinu. Þarna
munu ungir sem aldnir munda
hljóðfærin og skal þar sérstaklega
taka fram að yngsta kynslóð landsins
mun sýna listir sínar í harmonikuleik
ásamt hinum fjölmörgu listamönnum
sem margir munu eflaust bíða eftir
að heyra og sjá á Laugum þessa
sumardaga fyrst í júlí.
Haldið á Laugum í Reykjadal
Mótið fer að mestu fram í íþrótta-
húsinu á Laugum, enda er þar nægi-
legt pláss fyrir mörg hundruð manns.
Fagmenn munu vinna með hljóð og
myndatökur á tónleikum og felst starf
undirbúningsnefndar innar aðallega í
því að allt gangi upp í íþróttahúsinu
og öllu því sem varðar mótsgesti.
Tjaldstæði verða bæði við
íþróttavallarhúsið og sunnan við
Reykjadalsána þar sem hægt verður
að hafa bæði tjöld og húsbíla, enda
þar nægt pláss og stutt í rafmagn. Þá
verður reist stórt tjald á mótssvæðinu,
en þar mun Kvenfélag Reykdæla
selja veitingar handa gestum.
Meðal gistimöguleika má nefna
Fosshótel Laugar, Hótel Narfastaði,
Einishús á Einarsstöðum og
svefnpokapláss í Litlulaugaskóla.
Á Laugum er verslunin Dalakofinn
og er þar hægt að fá allar nauðsynjar.
Dansleikir á hverju kvöldi
Sigurður segir að að þetta verði
fjölskylduhátíð sem eigi eftir að
skilja eftir sig góðar minningar,
enda hefur nefndin fyrir löngu
pantað gott veður sem allir kunna
vel að meta, ekki síst í góðra
vina hópi harmonikuunnenda.
Gestur landsmótsins verður
norski harmonikuleikarinn
Håvard Svendsrud, sem er einn
atkvæðamesti harmonikuleikari
sinnar kynslóðar og hefur leikið í
leikhúsum og á veitingastöðum auk
þess sem hann hefur unnið mikið
við upptökur í sjónvarpi og útvarpi.
Þetta er í annað sinn sem landsmót
Sambands íslenskra harmoniku-
unnenda er haldið á Laugum og
býður nefndin alla velkomna á
þetta glæsilega mót í júlíbyrjun.
Mynd og texti: Atli Vigfússon
Landsmót Sambands íslenskra harmonikuunnenda hefst 3. júlí
Undirbúningsnefndin á Laugum í
Reykjadal.
Sterkar, léttbyggðar, endingagóðar, einfaldar,
traustar og tilbúnar til afgreiðslu strax.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri 700 - Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Vantar þig vélarnar í verkið?