Fréttablaðið - 23.04.2016, Qupperneq 37
„Þegar við ákváðum að láta til
skarar skríða fyrir tíu árum
og stofna fatamerkið Farmers
Market varð Grandinn fyrir valinu
af praktískum ástæðum. Við höfð
um ekki úr miklum fjármunum að
moða auk þess sem nálægðin við
miðbæinn og heimili okkar var
hentug,“ segir Bergþóra Guðna
dóttir, hönnuður Farmers Market.
„Þó grunaði okkur einnig hver
þróunin yrði á þessu svæði, að
hún yrði eitthvað í ætt við það sem
gerst hefur í öðrum borgum. Þar
hafa iðnaðarhverfi gengið í endur
nýjun lífdaga, og skapandi grein
ar, gallerí og veitingastaðir hafa
sprottið upp,“ segir hún og bendir á
Meat Packing District í New York
og Kødbyen í Kaupmannahöfn.
Þessi þróun virðist vera að ganga
eftir á Grandasvæði sem Berg
þóru þykir afar ánægjulegt. „Hér
eru komnir frábærir veitingastað
ir og gallerí auk þess sem margir
af helstu tónlistarmönnum lands
ins hafa hér vinnuaðstöðu og stúd
íó. Þetta blandast svo skemmtilega
við höfnina og iðnaðarstarfsemina
sem henni tengist.“
Stúdíóið breyttist í verslun
Upphaflega ætluðu Bergþóra og
maður hennar, Jóel Pálsson, að
eins að opna hönnunarstúdíó á
Hólmaslóðinni. „En smám saman
jókst traffíkin þannig að við opn
uðum verslun líka,“ lýsir Berg
þóra. Þó Farmers Market sé í góðu
samstarfi við nokkra aðra söluað
ila á landinu um ýmsar vörur þá
er verslunin á Hólmaslóð sú eina
sem þau hjónin eiga og reka sjálf
og býður upp á alla vörulínu merk
isins.
„Auk Farmers Market erum við
með til sölu úrval af íslenskri tón
list, bókum og ýmsu fallegu sem
við handveljum sjálf og okkur
þykir ríma vel við okkar vörulínu
og konsept. Þar má nefna frönsku
Aigle stígvélin, skart frá Aurum,
Orra Finn og Chan Luu, heimilis
vörur og ýmislegt fleira. Því ákváð
um við að kalla verslunina Farmers
& Friends, enda eru margir þess
ir aðilar, eins og tónlistarmenn og
hönnuðir, góðvinir okkar.“
List á veggjum
Í versluninni er einn veggur
sem lagður er undir sýningar af
ýmsu tagi. „Hér hafa ýmsir lista
menn sýnt verk sín á undanförn
um árum. Í augnablikinu erum við
reyndar sjálf með sýningu á aug
lýsingamyndum Ara Magg sem
hann hefur gert með Farmers
Market undanfarin ár og hafa hlot
ið mikla athygli.“
John Galliano í heimsókn
Bergþóra segir að þau hafi stund
um orðið hissa þegar í verslunina
kemur fólk sem hefur keypt sér
ferð til Íslands eftir að hafa lesið
umfjöllun um búðina í tímariti, en
fjallað hefur verið um Farmers &
Friends í ýmsum þekktum erlend
um blöðum á borð við Monocle,
Vogue og fjölda ferðatímarita.
„Eins urðum við hissa þegar við
sáum einn daginn ritstjóra amer
íska Vogue spóka sig í versluninni.
Hann var geysilega forvitinn, mát
aði helling af fötum og vildi fá að
vita allt um fyrirtækið og hönnun
ina. Hann kom svo aftur daginn
eftir og þá með sjálfan John Galli
ano með sér. Það var dálítið súr
realískt.“
Alltaf eitthvað nýtt
Ávallt bætist í úrvalið hjá Farmers
Market. „Undanfarið hafa verið
að bætast við nýjungar í flesta
flokka vörulínunnar okkar. Til
dæmis undirföt, peysur, skyrtur
o.fl. Fyrir sumarið er svo væntan
leg lítil sumarlína fyrir dömur sem
ég hef verið að vinna að undanfar
ið og er mjög spennt yfir.“
Suðupottur skapandi greina á Granda
Fatamerkið Farmers Market byggir á sjálfbærni og nútímalegri útfærslu á norrænum rótum í hönnun. Eina verslun Farmers Market, sem
hefur alla línu merkisins til sölu, er Farmers & Friends að Hólmaslóð 2. Þar má einnig finna úrval af annarri áhugaverðri hönnunarvöru.
Verslunin er skemmtilega upp sett.
Ávallt bætist í úrvalið hjá Farmers Market.
Í versluninni er einn veggur sem lagður er undir sýningar af ýmsu tagi. Um þessar
mundir prýða vegginn auglýsingamyndir Ara Magg fyrir Farmers Market.
Falleg hönnun frá Farmers Market.
Verslunin Farmers & Friends er afar falleg og þangað er skemmtilegt að koma enda gaman að skoða þá fjölbreyttu hönnunarvöru sem þar er að finna. Myndir/Ari MAGG
Kynningarblað GrAndinn
23. apríl 2016 5
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
1
-E
9
C
4
1
9
3
1
-E
8
8
8
1
9
3
1
-E
7
4
C
1
9
3
1
-E
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K