Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 87
Sú hugmynd að blanda saman brugghúsi og
bistrói er þekkt um allan heim en Bryggjan
brugghús er fyrsti slíki staðurinn á íslandi á þessari
stærðargráðu.
Bergur Gunnarsson
„Þetta var einstakt tækifæri sem
ég stökk á,“ segir Bergur Gunn-
arsson, bruggmeistari á Bryggj-
unni Brugghúsi, glænýjum og
skemmtilega hönnuðum veit-
ingastað að Grandagarði 8.
Eftir að Bergur kláraði gráðu í
efnafræði við Háskóla Íslands
ákvað hann að prófa öðruvísi
og skemmtilegt nám. „Ég fór til
Edin borgar í mastersnám í brugg-
un og eimun við Heriot Watts-há-
skólann. Þegar því lauk starfaði
ég á Micro bar í nokkra mánuði
þar til Elvar Ingimarsson, hug-
myndasmiður Bryggjunnar, kom
að máli við mig síðasta sumar og
bauð mér að gerast bruggmeist-
ari,“ segir Bergur sem veit fátt
skemmtilegra en starfið sitt.
Bjórar hússins
„Sú hugmynd að blanda saman
brugghúsi og bistrói er þekkt um
allan heim en Bryggjan brugghús
er fyrsti slíki staðurinn á Íslandi
af þessari stærðargráðu,“ upplýs-
ir Bergur sem er sífellt að þróa og
brugga nýja bjóra sem eru á boð-
stólum á veitingastaðnum. „Það
eru nokkrir bjórstílar sem ég
fíla en þegar maður er að brugga
verður maður að hugsa um fleiri
en sjálfan sig,“ segir hann glett-
inn. „Við erum yfirleitt með einn
lager á krana enda er hann vin-
sælastur hjá Íslendingum. Svo
er ég líka með Pale Ale og IPA-
bjóra en þeir eru síbreytilegir,“
segir Bergur en á Bryggjunni eru
þrír heimatilbúnir bjórar í boði á
krana en þeim mun fjölga á næstu
mánuðum.
Árstíðabundinn bjór
„Við verðum líka með ólíka bjóra
eftir árstíðum. Þannig brugg-
uðum við belgískan jólabjór um
jólin og súran bjór í takt við þorr-
ann. Ég get í raun gert allt það
sem hugurinn girnist enda hef ég
mjög góðar græjur til taks,“ segir
Bergur glaðlega.
Auk bjórsins sem bruggaður er
á staðnum verður einnig hægt að
kaupa bjór af öðrum tegundum,
til dæmis frá Borg og Mikkeler.
Bjórskóli Bryggjunnar
Bryggjan Brugghús starfræk-
ir bjórskóla í samstarfi við Bjór-
akademíuna. „Þetta eru nokkrir
strákar sem hafa verið með fyrir-
lestra í veislum og boðum undan-
farin ár og munu vera með tvö
námskeið á viku hjá okkur. Þar
verður gefin góð innsýn í fram-
leiðsluferlið, farið yfir mismun-
andi bjórstíl og sögu bjórsins,“
segir Bergur, en fólk getur skráð
sig í bjórskólann án matar, eða
með sérstökum matseðli sem
hefur verið settur saman fyrir
tilefnið. Vitanlega fá nemendur
einnig að bragða á hinum ólíku
bjórum til að víkka sjóndeildar-
hringinn.
Við erum bjartsýnir á að þetta
verði mjög vinsælt enda hefur
áhugi Íslendinga á bjór stórauk-
ist undanfarin ár,“ segir Bergur.
Flott hönnun
Brugghúsið sjálft leikur stórt
hlutverk í útliti Bryggjunnar.
„Staðnum er skipt upp í tvö rými.
Annars vegar er það bistróstaður-
inn með frábæru útsýni yfir höfn-
ina og síðan er brugghússalurinn
hinum megin í húsinu. Meðfram
öllu brugghúsinu er glerveggur
svo fólk sér inn í framleiðslusal-
inn sem þykir mjög skemmtilegt.“
Nánari upplýsingar á www.
bryggjanbrugghus.is.
Blanda af brugghúsi og bistrói
Bryggjan Brugghús er sjálfstætt brugghús, veitingastaður og bar við höfnina í Reykjavík. Þar er lögð áhersla á ferskt hráefni og gæðabjór
sem dælt er beint úr brugghúsinu. Þar ræður bruggmeistarinn Bergur Gunnarsson ríkjum og sinnir sínu draumastarfi.
Bergur Gunnarsson ræður ríkjum í brugghúsi Bryggjunnar þar sem bruggaðir eru
girnilegir bjórar sem standa gestum veitingastaðarins til boða. MyNdir/ANtoN BriNk
Hægt er að leigja dælur á Bryggjunni Brugghúsi fyrir veislur og stærri viðburði.Bryggjan Brugghús starfrækir bjórskóla í samstarfi við Bjórakademíuna.
Að blanda saman brugghúsi og bistrói er þekkt út um allan heim.
Brugghúsið sjálft leikur stórt hlutverk í útliti Bryggjunnar.
kynningarblað GrANdiNN
23. apríl 2016 11
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-C
7
3
4
1
9
3
1
-C
5
F
8
1
9
3
1
-C
4
B
C
1
9
3
1
-C
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K