Morgunblaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 164. tölublað 103. árgangur
ÞÖGLI ÞRJÓTURINN
DRES KOMINN TIL
LANDSINS ÚR SÓFANUM Í 35 KM
BÖRN AÐ NÝJU Í
FLESTUM GÖRÐUM
Á BÍLDUDAL
HLUPU SAMAN Á AFMÆLINU 10 ÍBÚUM FJÖLGAR 12JÓHANN G. JÓHANNSSON 30
Ferðafólk sem lagði leið sína að Jökulsárlóni um helgina lét
rigningu lítt á sig fá, heldur klæddi sig eftir veðri, spennti upp
regnhlífar og naut lífsins. Þeim sem fara að lóninu hefur
fjölgað mikið undanfarin ár og telur Einar Björn Einarsson
hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Glacier Lagoon að þangað komi
vel á annað þúsund ferðamenn daglega yfir háannatímann.
Nutu náttúrunnar undir regnhlífum í rigningarúða
Morgunblaðið/RAX
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskatt-
stjóri, segir að með auknum
mannafla frá embætti ríkisskatt-
stjóra í eftirlitsstörfum með rekstr-
araðilum í ferðaþjónustu hverskon-
ar hafi náðst góður árangur í
baráttunni gegn svartri atvinnu-
starfsemi í ferðaþjónustu.
Skúli Eggert segir að starfsmenn
ríkisskattstjóra hafi farið í heim-
sóknir í fyrirtæki og gengið úr
skugga um það hvernig skatta-
skilum er háttað og slíkum heim-
sóknum hafi fjölgað.
Skúli segir að margir nýir rekstr-
araðilar séu að taka til starfa. „Mjög
margir af þeim tengjast ferðaiðn-
aðinum eða þjónustu við ferðamenn.
Það eru gististaðir, ýmiskonar önn-
ur þjónusta og svo auðvitað veit-
ingarekstur. Þetta er í misjöfnu
ástandi og talsverður hluti af tíma
eftirlitsmanna okkar fer í það að
leiðbeina fólki um það hvernig það
eigi að haga sér,“ sagði Skúli Egg-
ert.
Hann segir að svo virðist sem
menn leggi fremur kapp á það til að
byrja með að koma húsum, her-
bergjum og gistirými hvers konar í
útleigu sem fyrst, fremur en að
huga að reglum, m.a. um skattaskil,
sem tengist slíkum rekstri.
Þá séu menn að teygja sig lengra
nú en áður í að leigja hluta heimila
sinna til ferðmanna, og með þeirri
hlið þurfi einnig að auka eftirlit.
„Við förum ekki inn á heimili
fólks, til þess að ganga úr skugga
um það. Þær athuganir eru gerðar
öðruvísi. Við fáum upplýsingar um
greiðslur sem fara í gegnum þær
vefsíður, sem sjá um slíka útleigu. Í
kjölfar þess að fá slíkar upplýsingar,
göngum við úr skugga um að skatta-
skilin séu í lagi,“ sagði Skúli Eggert.
MHafa þurft að hóta … »4
Fá upplýsingar um út-
leigu í gegnum vefsíður
Embætti ríkisskattstjóra fjölgar vettvangsheimsóknum
Morgunblaðið/Golli
Fjölgun Þeim fjölgar stöðugt sem vilja leigja ferðamönnum gistirými.
Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
sem lekið var í gærkvöldi, og
fréttastofa Reuters hefur undir
höndum, kemur fram að Grikkland
þurfi miklu meiri fjárhagsaðstoð en
evrubandalagið hefur viljað láta
uppi fram að þessu.
Forsætisráðherra Grikklands,
Alexis Tsipras, segist munu bera
ábyrgðina á samkomulaginu sem
náðist við lánardrottna landsins.
„Ég axla ábyrgðina á þessu sam-
komulagi sem ég hef ekki trú á, en
skrifaði samt undir til að koma í
veg fyrir hörmungar í landinu og
hrun bankanna,“ sagði hann í gær-
kvöldi.
Gríska þingið greiðir í dag at-
kvæði um samkomulagið. Óljóst er
hvenær grískir bankar verða opn-
aðir. Það gæti dregist í nokkrar
vikur. sh@mbl.is
Axlar
ábyrgðina
AFP
Tsipras Segist bera ábyrgðina.
Borið hefur á því að ungmenni
fari í óleyfi í sundlaugina á Gljúfra-
steini í Mosfellsbæ og haldi þar
gleðskap. Umgengni hefur verið
slæm og hafa fundist bjórdollur,
sígarettupakkar og alls kyns rusl á
lóð hússins. Á staðnum er rekið
safn til minningar um nóbelsskáldið
Halldór Laxness. Guðný Dóra
Gestsdóttir safnvörður leggur
áherslu á að sýna beri staðnum
virðingu. »2
Í óleyfi í sundlaug-
ina við Gljúfrastein
2
Við drögum eftir
daga
í áskriftarleik
Morgunblaðsins
VÍKKAÐU
HRINGINN