Morgunblaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 ✝ SveinbjörgÞóra Brynjólfs- dóttir fæddist á Sel- fossi 19. janúar 1950. Hún andaðist á Landspítalanum 5. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Sveinsdóttir hús- freyja og Brynjólfur Björnsson mjólk- urbifreiðastjóri. Sveinbjörg átti þrjú systkini, þau voru Kristín Lilja, f. 1945, maki Lahbib Mekrami, látinn, Björn, f. 1951, látinn, maki Sigríður Jóns- dóttir, Hulda, f. 1953, látin, maki Fróði Larsen, látinn. Sveinbjörg giftist Alfreð Guð- mundssyni hinn 29.8. 1981 og eiga þau einn son, Pálma Al- freðsson, f. 1976, unnusta hans er Tinna Björnsdóttir. Pálmi á tvo syni, Jó- hann, f. 1997, og Jökul Má, f. 2005, einnig á Tinna einn son, Gabríel Dag, f. 2003. Alfreð átti eina dóttur úr fyrra sambandi, Ásthildi Grétu, og á hún tvo syni, Þröst Marel, f. 1989, og Alex, f. 2009. Lengst af vann Þóra á skrif- stofu Rannsóknastofnana at- vinnuveganna, eða nærri 30 ár. Þar á undan vann Þóra hjá Glob- us og Stálveri við skrifstofustörf. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. júlí 2015, kl. 13. Ég er ekki alveg búinn að átta mig á þessu ennþá, get ekki trúað því að mamma sé farin frá okkur. Þessi sterka kona sem er búin að vera kletturinn minn alla ævi. Alltaf gat ég leitað til hennar, sama hversu stórt eða lítið það var og alltaf hafði hún svör á reiðum höndum. Betri ömmu var heldur ekki að finna og ástin og umhyggj- an sem hún sýndi strákunum sín- um var óendanleg. Það eru ómet- anlegar stundir sem þeir fengu með ömmu sinni og þær stundir munu aldrei gleymast. Ég elska þig, mamma. Pálmi Alfreðsson. Þegar ég hugsa um elsku tengdamóður mína þá hugsa ég mikið um þakklæti. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari sterku og frá- bæru konu. Þakklát fyrir hvað hún tók mér og syni mínum með opnum örmum í fjölskyldu sína. Þakklát fyrir hversu góðan strák hún ól upp með Alla sínum. Á ekki svo mörgum árum tókst Þóru að skapa sér stóran sess í hjarta mínu og Gabríels og þær minningar sem við eigum með henni eru varðveittar um ókomna tíð. Takk Þóra fyrir hlýjuna og kærleikann sem þú sýndir okkur Gabríel frá upphafi. Takk fyrir gleðistundirnar allar, hvort sem það var í vöfflukaffi eða mat, leik- húsi eða Skálmaldartónleikum. Takk fyrir að hafa verið eins yndisleg og þú varst í raun og veru. Miðgarður kveður, magnlaus þá mókaður um ég svamla. Núna ég horfi niður á nautin við bæinn minn gamla. Bærist þar líf við Bæjartjörn, balinn er umvafinn lyngi. Leika sér þarna lítil börn, lífið það gengur í hringi. (Snæbjörn Ragnarsson) Tinna Björnsdóttir. Á fallegum sumardegi kveður góð vinkona lífið. Okkar fyrstu kynni voru fyrir 48 árum við sum- arvinnu. Það var áður en tölvur komu við sögu, vinnuskýrslur voru handskrifaðar og vinnulaun- in talin í umslög í krónum og aur- um. Ungar stúlkur í blóma lífsins að vinna sér inn sín fyrstu laun. Þessi kynni urðu til þess að við urðum vinkonur og síðar á ævinni einnig mágkonur. Ungdómsárin eru sveipuð dýrðarljóma sakleysis og stöðugrar gleði. Við vorum lukkunnar dísir. Fal- legir hlutir voru keyptir fyrir launin. Hlutir sem enn eru til og minna á þessa góðu tíma. Það kom fljótt í ljós að trú- mennska og nákvæmni var ungu stúlkunni Þóru í blóð borið. Hún fékk gott veganesti frá sínum góðu foreldrum Guggu og Brynj- ólfi í Ártúni 6, á Selfossi. Eitthvað sem átti eftir að fylgja henni um ókomin ár. Sveinbjörg Þóra Brynjólfsdóttir Leiðir okkar Ólafs Hannibalsson- ar lágu oft saman. Við áttum báðir ræt- ur fyrir vestan og ræktuðum þá taug á ýmsum vett- vangi, meðal annars með samstarfi við að búa til prentunar Djúp- mannatal, sem tók mikinn tíma Ólafs síðustu árin. Nafni minn var líka helsti ráðgjafi og viðmælandi okkar Kára Schram við gerð heim- ildarmyndar um Samúel í Selárdal sem tekin var upp að mestu 1995 og frumsýnd 1999. Ólafur var haf- sjór af fróðleik um ábúendur fyrr á tíð í dalnum afskekkta við ysta haf og var afburða sögumaður. Við þrír stofnuðum síðan ásamt fleir- um Félag um listasafn Samúels vorið 1998. Nafni var formaður fé- lagsins frá upphafi til dauðadags og leiddi þannig endurreisnina á listaverkum og byggingum Sam- úels í Selárdal. Það var ómetanlegt að eiga hann að þegar kom að því að greiða úr málum varðandi um- ráðarétt á svæðinu. Þær voru ófá- ar ferðirnar hjá honum í hin ýmsu ráðuneyti til að fá úr því skorið hvort „Sambafélagið“ eins og hann kallaði það sjálfur, mætti sjá um endurreisn listasafnsins. Þau voru skemmtileg símtölin frá honum þegar loks fór að skýrast hvernig í málunum lægi. Loks tókst að klára samning fyrir tveimur árum. Ólaf- ur bauð upp á leiðsögn þegar við héldum „Sambahátíðir“ að Braut- arholti í Selárdal sumrin 2011 og 2012. Þau Guðrún voru svo meðal hvatamanna að stofnun Baska- vinafélagsins 2012 og við nafnarnir sátum saman í fyrstu stjórn þess félags, sem er nú í óðaönn að vinna að þeim verkum sem við lögðum upp með að hrinda í framkvæmd á þessu ári, að minnast þess að 400 ár eru frá Spánverjavígunum. Ég vil að leiðarlokum þakka nafna mínum fyrir samfylgdina og við Gyða sendum innilegar samúðar- kveðjur til Guðrúnar, fjölskyldu þeirra og annarra aðstandenda. Ólafur J. Engilbertsson. Það koma upp í hugann hlýjar minningar þegar frænda míns Ólafs Hannibalssonar er minnst. Hann kom stundum í Ögur í upp- Ólafur Kristján Hannibalsson ✝ Ólafur KristjánHannibalsson fæddist 6. nóv- ember 1935. Hann lést 30. júní 2015. Útför Ólafs fór fram 10. júlí 2015. vexti mínum og hafði þann eiginleika að tala við börn eins og við fullorðna. Í því er fólgin virðing sem börnum líkar vel. Meiri samgangur varð milli Ólafs og foreldra minna í Ögri eftir að Ólafur brá búi í Selárdal eftir 10 ára búskap og flutti í höfuðborg- ina. Það var ekki auðvelt að kom- ast frá búskapnum eins og geng- ur. Ég minnist margra gleðistunda þegar Ólafur og Guð- rún kona hans komu vestur og fóru yfir málin með foreldrum mínum. Þar var ekkert undanskil- ið en léttleikinn í fyrirrúmi, mér fannst þau hjónin einstaklega skemmtileg og samrýnd. Alltaf skynjaði maður hversu nátengdur Ólafur var svæðinu enda sýndi hann það í verki með þátttöku sinni í hinum fjölbreyttustu sam- félagsmálum í þágu þess. Hann var hafsjór af fróðleik um Ísafjarðardjúp og gaman var að heyra þá frændurna, hann og föð- ur minn, ræða sögu svæðisins og staðhætti. Það var svo sannarlega kennslustund í þjóðháttafræði. Ég minnist líka ferðalags okkar til Taívan þar sem við heimsóttum háskóla og ýmsa áhugaverða staði. Ekki fór hjá því að þótt fyrir augu bæri þéttbyggðar borgir og mjög áhugaverða staði reikaði hugurinn vestur í Ísafjarðardjúp hjá okkur báðum. Fórum við að skiptast á sögum ættuðum þaðan og endaði með því að Guðrún kona Ólafs gaf okkur sæmdarheitið Mollufrændur með tilvísun í sam- eiginlegan sögulegan forföður. Þegar gestabók í sumarbú- staðnum okkar í Ögri er flett má sjá að Ólafur hefur verið að hugsa um margt þegar hann dvaldi þar. Sumt er af alvarlegum toga, eins og afstaða hans gagnvart stuðn- ingi Íslands við innrás í Írak, sem hann var mjög mótfallinn og tjáði afstöðu sína skýrt í því. En líka má lesa úr gestabókinni hve stutt var í kímnina og hversu næmur hann var á það jákvæða og skemmtilega í umhverfinu. Við andlát Ólafs fletti ég upp í gestabókinni góðu og fannst ég komast í nánara sam- band við þennan góða frænda minn sem var svo tengdur Ísa- fjarðardjúpinu, sögu þess og menningu. Ég sakna hans og færi hans nánustu aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Halldór Halldórsson. Yfirvegaður, kurteis og kom fram af virðingu við nær- stadda. Vel gefinn og skarpur en laus við allt yfirlæti. Einlægur og hreinskiptinn. Það stafaði frá hon- um hlýja sem bræddi þá sem fengu að kynnast honum. Snorri Sigtryggsson var okkur í Litlagerði 2 mjög kær. Okkur hjónum þótti mjög vænt um hann og vináttu hans við syni okkar, Hafliða og Hafstein. Þeir bræður, Snorri og Eyþór, eiga sérstakan stað í hjörtum okkar og þó Snorri hafi kvatt þennan heim þá lifir minningin um traustan og afar kæran vin. Snorri hagaði sér aldr- ei eins og leiðtogi, en var það á sinn hógværa hátt án þess að menn fyndu fyrir því. Honum voru stundirnar með félögunum mikil- Snorri Sigtryggsson ✝ Snorri Sig-tryggsson fæddist 9. desem- ber 1983. Hann lést 29. júní 2015. Útför Snorra fór fram 7. júlí 2015. vægar og honum virtist mjög ljúft að leggja sitt af mörkum til að þeir gætu átt sem flestar og bestar stundir saman. Öll spilakvöldin með spjalli og góðum stund- um og ekki má gleyma bústaðaferðunum. Þessi þétti vinahópur eru allir eðaldrengir sem hafa nú misst mik- ið. Við fundum sárin og harminn í hjörtum sona okkar þegar Eyþór sagði þeim af fráfalli Snorra. Vinirnir halda nú hópinn sem aldrei fyrr og leita styrks hver hjá öðrum. Snorri er enn miðpunkturinn og mun verða um ókomna tíð. Eyþór minn! Við viljum votta þér og fjölskyldu þinni allri okkar dýpstu samúð. Dóttir Snorra, sambýliskona, foreldrar og systk- in. Guð græði sár ykkar og gefi sálarró og frið. Hugur okkar er einnig hjá ykkur í vinahópnum. Við biðjum Guð að styrkja ykkur og hugga. Guðjón Hafliðason og Líney Kristinsdóttir. Eiginmaður minn, KRISTJÁN HJÖRTUR GÍSLASON frá Fossi í Staðarsveit, Fannborg 8, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. . Rannveig Margrét Jónsdóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við andlát og útför sonar okkar, bróður, mágs og frænda, EINARS ATLASONAR, blikksmíðameistara, Vallarási 3, Reykjavík. . Atli Pálsson, Margrét S. Einarsdóttir, Hallgrímur Atlason, Guðbjörg Jónsdóttir, Guðjón Atlason, Ana Isorena Atlason, Atli Atlason, Elín Svarrer Wang og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og alla aðstoð vegna andláts og útfarar bróður, mágs og frænda, EIÐS HELGA EINARSSONAR, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjartadeild LSH. . Herdís Einarsdóttir, Birgir Ásgeirsson, Einar Þór Óttarsson, Heiður Óttarsdóttir, Þórunn Birgisdóttir, Guðberg K. Jónsson, Hákon B. Óttarsson, Þórdís Harpa Lárusdóttir, Þórgunnur Óttarsdóttir, Óskar Gíslason, Eiður Páll Birgisson, Laufey Einarsdóttir, Inga Hrönn Óttarsdóttir, Kristinn Jóhann Hjartarson, Einar Birgisson, Elín Soffía Pilkington. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, MARTA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR, Jörundarholti 110, Akranesi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 9. júlí. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð krabbameinslækningadeildar Landspítalans. Sjá landspitali.is/minningarkort. . Gylfi Þórðarson, Ása Björg Gylfadóttir, Garðar Axelsson, Þórður Már Gylfason Birkir Örn Gylfason, Margrét Magnúsdóttir, Harpa Lind Gylfadóttir, Jóhann Guðmundsson, Aðalbjörg Guðmundsdóttir og ömmustrákarnir fjórir. Okkar áskæra systir, mágkona og frænka, SIGRÍÐUR AXELSDÓTTIR NASH, Strikinu 8, Garðabæ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ísafold föstudaginn 10. júlí 2015. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju Garðabæ fimmtudaginn 16. júlí kl. 15. . Sverrir Axelsson, Ása Þorsteinsdóttir, Sigurður Axelsson, Hrafnhildur Kristinsdóttir, Ester Vilhjálmsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar og frænku okkar, BJARKAR JÓNSDÓTTUR HALLGRÍMSSON, Lindargötu 26, Siglufirði. Fyrir hönd aðstandenda, . Hrönn Jónsdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, kveðjur og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu, ÁSU SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR, Sauðármýri 3, Sauðárkróki. . Elín H. Sæmundsdóttir, Jón Ö. Berndsen, Herdís Sæmundsdóttir, Guðmundur Ragnarsson, Hafsteinn Sæmundsson, Sigríður Ó. Sigurðardóttir, Gunnhildur M. Sæmundsd., Ragnar Sveinsson, Margrét Sæmundsdóttir, Árni Kristinsson, Hermann Sæmundsson, Guðrún S. Grímsdóttir, Anna E. Sæmundsdóttir, Arnar Sigurðsson og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.