Morgunblaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 Guðmundur Bjarna- son, fyrrverandi bæj- arstjóri Fjarðabyggð- ar, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað að morgni laugardagsins 11. júlí. Guðmundur fæddist 17. júlí árið 1949 í Nes- kaupstað, yngstur þriggja barna þeirra Láru Halldórsdóttur verkakonu og Bjarna Guðmundssonar verka- manns. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Laug- arvatni 1969 og lauk BA-prófi í al- mennum þjóðfélagsfræðum frá HÍ 1975. Hann starfaði sem kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1973-1977, var skólafulltrúi í Nes- kaupstað 1973-1975 og starfs- mannastjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað árin 1977-1991. Guðmundur var bæjarstjóri í Nes- kaupstað 1991-1998 og síðan fyrsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar 1998 og gegndi því starfi til 2006. Síðustu árin starfaði hann hjá Alcoa Fjarðaáli við stjórnun og stefnumótun og hafði m.a. yfirumsjón með verkefnum sem sneru að samskiptum við ríki og sveitarfélög. Guðmundur sat í fjölda stjórna og ráða, m.a. í stjórnum Síldar- vinnslunnar, Eignar- haldsfélags Brunabóta- félags Íslands, Sambands sveitarfé- laga í Austurlands- kjördæmi og Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem hann var vara- formaður 1998-2002. Þá sat Guðmundur um nokkurra ára skeið í stjórn Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og var formaður stjórn- ar sjóðsins til loka síðasta árs. Hann var formaður Íþróttafélagsins Þrótt- ar í Neskaupstað og knattspyrnu- deildar sama félags. Hann var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands 1978- 1991 og fékk fjölda viðurkenninga fyrir félagsstörf sín, meðal annars Gullmerki ÍSÍ og KSÍ. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Klara Ívarsdóttir, fyrrverandi að- albókari hjá Fjarðarbyggð. Stjúp- börn hans eru þau Ívar Sæmundsson og Sigurborg Sæmundsdóttir. Útför Guðmundar mun fara fram frá Norðfjarðarkirkju næstkomandi laugardag, 18. júlí, kl. 14. Andlát Guðmundur Bjarnason Ágúst Ingi Jónssonaij@mbl.is Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum tek- ur við uppsjávarskipinu Ingunni AK af HB Granda í vikunni og hefur skip- ið þegar fengið nafnið Ísleifur og ein- kennisstafina VE 63. Skipið hefur verið málað í grænum lit með gulri rönd, en samkvæmt hefðinni hafa all- ir bátar með þessu nafni, sem gerðir hafa verið út frá Eyjum verið málaðir í þessum litum. Önnur skip Vinnslu- stöðvarinnar eru hins vegar venju samkvæmt blá á skrokkinn. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, segir að næstu daga verði skip- ið útbúið til veiða í Reykjavík, en það sé síðan væntanlegt heim til Eyja í lok næstu viku. Fyrsti Ísleifur sem kom til Vestmannaeyja var 30 tonna eikarskip sem smíðað var í Reykjavík 1916 og skráð Ísleifur ÍS 390. Hann var seldur Ársæli Sveinssyni, útgerðarmanni í Eyjum, árið 1928. Sigurgeir Brynjar segir að þegar Ársæll keypti fyrsta Ísleif frá Ísafirði hafi seljandinn sagt við hann þegar kaupin voru handsöluð að þess skyldi hann gæta að láta skipið heita Ísleif og vera grænt með gulri rönd, þá mundi vel farnast. „Ísleifur hefur allt- af verið grænn með gulum röndum og hefur farnast sérstaklega vel, við breytum þessu ekki,“ segir Sigurgeir. Nafnið Kap frá Kapítólu Vinnslustöðin keypti einnig Faxa RE af HB Granda og fær það skip í lok ársins þegar HB Grandi fær nýj- an Víking afhentan í Tyrklandi. Skip- ið mun þá fá nafnið Kap öðru sinni en HB Grandi keypti Faxa, sem þá hét Kap, af Vinnslustöðinni árið 1996. Upphaflega bar skipið nafnið Jón Finnsson. Skipsnafnið Kap á sér um 90 ára sögu í Vestmannaeyjum og er sótt í kvenmannsnafnið Kapítólu. Skipstjórar á Ísleifi VE verða Helgi Geir Valdimarsson og Eyjólfur Guðjónsson. Yfirvélstjóri verður Guðjón Gunnsteinsson. Skipstjórar á Kap VE verða Gísli Þór Garðarsson og Jón Atli Gunnarsson. Yfirvélstjóri verður Örn Friðriksson. Sighvatur Bjarnason VE verður áfram gerður út frá Vinnslustöðinni. Verður hann gerður út á svokallaðar partrolls- veiðar og á loðnuvertíðum eins og þurfa þykir og skipstjóri verður Jón Atli Gunnarsson. Þegar þessi skipakaup verða um garð gengin er ráðgert að leggja eldri skipum með nöfnunum Ísleifur og Kap. Morgunblaðið/RAX Til Eyja Réttu litirnir komnir á Ísleif, áður Ingunni. Hann er væntanlegur til nýrrar heimahafnar í lok næstu viku. Ísleifur VE 63 verður grænn venju samkvæmt  Skip Vinnslustöðvarinnar blá með þessari undantekningu Tveir ungir fangar, 19 og 21 árs að aldri, struku af fangelsinu á Kvía- bryggju á mánudagskvöld. Mennirn- ir voru handteknir á Þingvöllum um hádegisbilið í gær eftir að tilkynning hafði borist lögreglu um grunsam- legar mannaferðir við Þingvallavatn. Mennirnir höfðu dvalið stuttan tíma á Kvíabryggju og voru meðal yngstu fanga þar, en nú er búist við að þeir ljúki afplánun á Litla-Hrauni. Páll Winkel fangelsismálastjóri gerir fastlega ráð fyrir því að menn- irnir verði úrskurðaðir í einangrun um skeið. „Við þurfum að skoða mál- in og fá frekari upplýsingar um hvernig þetta gerðist,“ segir Páll. Opið fangelsi úr myndinni Ljóst er að flóttinn gæti orðið föngunum dýrkeyptur og afleiðing- arnar með ýmsu móti. „Ein afleiðing þessa er að þeir verða ekki aftur í opnu fangelsi,“ segir Páll. Það komi ekki lengur til greina. Auk þess mun flóttinn hafa áhrif á reynslulausnir, dagsleyfi, vistun á áfangaheimili og fleira að sögn Páls. „Það er verulega mikið undir og þess vegna er ákaf- lega sjaldgæft að menn reyni að strjúka úr opnum fangelsum.“ Upp komst um fjarveru fanganna innan klukkustundar frá því þeir höfðu yfirgefið svæðið. Má þakka það nán- um samskiptum starfsmanna og vistmanna, að því er segir á vef Af- stöðu, félags fanga. Flúðu Kvíabryggju og fóru á Þingvelli  Flótti gæti orðið föngum dýrkeyptur Morgunblaðið/Ómar Litla-Hraun Búist er við að menn- irnir ljúki afplánun á Litla-Hrauni. Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566 Ný sending af vinsælu næturljósunum frá Pabobo... facebook.com/biumbiumstore | Instagram: @biumbiumstore Barbapapa ljós verð 12.990,- stk. Barbapapa sería verð 9.990,- stk. Engjateigi 5 • Sími 581 2141 40% afsláttur af öllum fatnaði og skóm!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.