Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2015 Kammerhópurinn Stilla heldur stofutónleika á Gljúfrasteini á morgun, sunnudag. Hefjast þeir klukkan 16 og standa í um 30 mínútur. Tónleikarnir eru þeir síðustu í sumar hjá hópnum, en Stilla heimsótti Austurland í lið- inni viku og hélt þrenna tónleika. Á Gljúfrasteini flytur hópurinn hið dramat- íska verk Il tramonto, eða Sólsetrið, eftir Ottorino Respighi ásamt þremur léttum lög- um eftir sama tónskáld. Hópurinn mun kynna verkið og gefa gest- um tóndæmi áður en flutningurinn hefst, í stofu skáldsins. TÓNLEIKAR Á GLJÚFRASTEINI STILLA SYNGUR Kammerhópurinn Stilla kemur fram á stofu- tónleikum og flytur verk eftir Respighi. Steef van Oosterhout slagverksleikari og Her- dís Anna Jónsdóttir víóluleikari koma fram. Dúó Stemma kemur fram á Sumartónleikum við Mývatn í Reykjahlíðarkirkju í kvöld, laug- ardag, og hefjast þeir klukkan 21. Dúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slag- verksleikari. Þau flytja efnisskrá sem sam- anstendur af þjóðlögum, þulum og vísum, og lögum sem samin hafa verið fyrir þau, eða þau sjálf útsett. Þau leika á víólu, marimbu, ís- lenskt steinaspil, allskonar hefðbundin og heimatilbúin hljóðfæri og skapa stemningu í tali, tónum og hljóðum. Á dagskrá eru meðal annars þjóðlög sem Hólmfríður Pétursdóttir söng inn á segulband 1969, lög frá Gautlönd- um, og lög eftir Snorra Sigfús Birgisson og Hjálmar H. Ragnarsson. TÓNLEIKAR VIÐ MÝVATN DÚÓ STEMMA Kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar held- ur þrenna tónleika í Hömrum, í menningarhús- inu Hofi á Akureyri nú um helgina; klukkan 14 á laug- ardag og klukkan 14 og 20 á sunnudag. Sigurður er mikilvirkt tónskáld og hljóðfæraleikari og auk hans skipa kvartettinn þeir Kjartan Valdemarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Sérstakur gestur verður söngkonan Andrea Gylfadóttir. Fluttir verða þekktir djassstandardar í bland við tónlist eftir Sigurð, sem er á mörk- um djass og blús-tónlistar. Veitingastaður hússins, 1862 Nordic Bistro, verður með opið bæði í mat og drykk meðan á tónleikum stendur. KVARTETT SIGURÐAR LEIKA ÞRISVAR Sigurður Flosason Menning H in metnaðarfulla fjölþjóðlega myndlistarsýning Rúllandi snjóbolti/6, Djúpivogur, verð- ur opnuð í dag, laugardag, klukkan 15 í Bræðslunni á Djúpavogi, að viðstöddum mennta- og menn- ingarmálaráðherra, Illuga Gunnarssyni, og sendiherra Kína, Zhang Weidong. Sýning í sömu viðburðaröð var í fyrsta skipti á Djúpavogi í fyrrasumar og munu yfir 3.000 manns hafa skoðað verk þeirra íslensku og erlendu listamanna sem þar áttu hlut að máli. Eins og í fyrra er sýningin skipulögð af Chinese European Art Center (CEAC), stofnun í Xiamen í Kína sem stýrt er af Ineke Guðmundsson, eiginkonu Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns og rithöf- undar. Sýningin er samvinnuverkefni Djúpa- vogshrepps og CEAC, en þessi kínversk- evrópska menningarmiðstöð hefur staðið fyrir mörgum stórum sýningum í Kína, þar á meðal fyrstu fjórum sýningunum undir heit- inu Rúllandi snjóbolti, en Ísland er fyrsta landið þar fyrir utan þar sem stofnunin setur upp sýningar. CEAC er sjálfseignarstofnun sem var hleypt af stokkunum árið 1999 af Ineke með stuðningi Sigurðar. Þau hjón eiga hús á Djúpavogi, þar sem þau dvelja iðulega á sumrin, og þar er að finna vísi að þessum metnaðarfullu sýningum sem þau standa nú fyrir á staðnum, í gömlu fiskimjölsverksmiðj- unni. Þar var í fyrra settur upp vandaður sýningarsalur sem aftur er nýttur í ár. Listinn yfir listamennina sem sýna í ár er óneitanlega glæsilegur. Auk tíu þekktra ís- lenskra listamanna eiga verk á sýningunni mjög merkir listamenn frá Kína, Bandaríkj- unum og Evrópu; þar á meðal nokkrir sem fyllilega óhætt er að kalla heimsþekkta þátt- takendur í samtímalistinni. Íslensku lista- mennirnir eru þau Árni Páll Jóhannsson, Finnbogi Pétursson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristján Guðmunds- son, Ólöf Nordal, Ragnar Kjartansson, Rúna Þorkelsdóttir, Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon. Þeir erlendu eru Aernout Mik, Bård Breivik, Bjørn Nørgaard, Guido van der Werve, Josie Jenkins, Kan Xuan, Libin Chen, Marike Schuurman, Sarah Mei Her- man, Stevens Vaughn, Tim Chen Chuanxi, Voebe de Gruyter, Zhang Ya og Zhifei Yang, Scarlett Hooft Graafl og Marjan Laaper. Þær tvær síðastnefndu voru gestalistamenn sýningarinnar í fyrra og sýna nú verk sem þær unnu á staðnum í fyrra, ljósmynda- og myndbandsverk. Gekk framar vonum Alfa Freysdóttir, verkefnastjóri sýningar- innar, er fædd og uppalin á Djúpavogi en var nýflutt aftur heim í fyrra þegar hún tók við starfinu. „Þetta tókst mjög vel í fyrra,“ segir hún. „Við renndum þá í raun öll blint í sjóinn, með húsnæði og hvernig svona fram- kvæmd myndi ganga hér, en það gekk fram- ar öllum vonum.“ Að þessu sinni stendur sýningin í vel á annan mánuð, til 22. ágúst. „Sýningin er að- eins viðameiri nú en í fyrra, við erum að teygja okkur yfir í næstu skemmu við hlið- ina. Þá er Hrafnkell, sem er annar gesta- listamanna CEAC í ár, að byggja afar spennandi verk fyrir utan. Hann hefur líka unnið með handverksmanni hér á staðnum og steinaverk hans munu koma við sögu,“ segir Alfa. Hin gestalistamaðurinn er Kan 26 LISTAMENN EIGA VERK Á SÝNINGUNNI RÚLLANDI SNJÓBOLTI/6 Á DJÚPAVOGI „Gæðin eru mikil og fagmennskan að sama skapi“ „ÞETTA ER MIKIÐ ÆVINTÝRI,“ SEGIR EINN AÐSTANDENDA ALÞJÓÐLEGRAR SÝNINGAR, RÚLLANDI SNJÓBOLTI/6, SEM VERÐUR OPNUÐ Á DJÚPAVOGI Í DAG OG ER SKIPULÖGÐ AF KÍNVERSK-EVRÓPSKA MENNINGARSETRINU. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hópur listamanna og skipuleggjenda Rúllandi snjóbolta/6 í sýningarsalnum á Djúpavogi. Frá vinstri: Ineke Guðmundsson, Hrafnkell Sigurðsson, Annelie Musters, Ágúst Guðjónsson og May Lee. Hrafnkell Sigurðsson er gestalistamaður CEAC á Djúpavogi í ár. Hann vinnur hér að stórum skúlptúr utan við gömlu fiskimjölsbræðsluna þar sem sýningin hefur verið sett upp. Hluti sýningarinnar, með ljósmyndaverkum eftir Scarlett Hooft Graafland, sem var gestalistamaður í fyrrasumar, og teikningu eftir Voebe de Gruyter. Verkin eru fjölbreytileg og í ýmsum miðlum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.