Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Page 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
Ég ætla að fara upp í sumarbústað með
fjölskyldunni.
Sara Mjöll Stefánsdóttir
Örugglega fara í útilegu með mömmu og
pabba og tengdó þar sem sólin verður.
Erla Rán Jóhannsdóttir og Sóley Oscarsdóttir.
Ég verð bara að vinna í Gullkúnst Helgu.
Hallgrímur Th. Sveinsson
Ég ætla að fara til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð.
Ég fór í fyrra en þá hafði ég ekki farið síðan
árið 2000. En það var mjög ánægjulegt í fyrra
og ég ákvað að fara aftur.
Sturla Sighvatsson
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM VERSLUNARMANNAHELGINA?
Hjörtur Pálsson, þýðandi
og skáld, hlýtur heiðursvið-
urkenningu fyrir norrænar
þýðingar. Hann segir þýð-
ingar oft ekki vera metnar
að verðleikum og vera lægra
skrifaðar en nýjan skáldskap
en spyr hvar við værum
hefði ekkert nokkurn tíma
verið þýtt. Menning 46
Í BLAÐINU
Morgunblaðið/Eggert
KATRÍNA MOGENSEN
SITUR FYRIR SVÖRUM
Eins og ein
stór flétta
Hvernig kom hljómsveitin Mammút sam-
an?
Við vorum svona stelputríó til að byrja með og kölluðum
okkur þá ROK, en urðum fljótlega Mammút út frá því.
Við vorum þrettán ára og allar saman í skóla þegar við
byrjuðum. Síðan vissum við af Arnari og Andra sem
voru hálfgert strákadúó og við sameinuðumst í þessa
fimm manna hljómsveit. Þeir vissu af okkur og við
vissum af þeim og það var ekki mikið skapandi að
eiga sér stað í Laugardalnum á þessum tíma, þannig
að þetta lá einhvern veginn beinast við.
Hvernig völduð þið nafnið Mammút?
Mamma valdi það eiginlega. Okkur var eiginlega alveg
sama, ég bar þetta undir hljómsveitina og einhvern
veginn festist það.
Hvernig myndirðu lýsa tónlistinni ykkar?
Þetta er tilviljunarkennd samsuða af okkur fimm. Við
höfum aldrei rætt hvernig tónlist við viljum spila.
Stundum er skrýtið hvað við eigum erfitt með að slíta
okkur hvert frá öðru, við erum eins og ein stór flétta að
því leyti. Við erum bara búin að alast upp við að spila hvert
með öðru og maður kann einhvern veginn ekkert annað en
að vera í Mammút. Þetta er eins og fjölskylda. Ég hefði ekki
sagt þegar ég var þrettán ára að ég myndi vera í tólf ár í
þessari hljómsveit.
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Við spilum í druslugöngunni á laugardaginn. Síðan erum við á
fullu að undirbúa nýja plötu, sem kemur næsta vor. Svo ætlum
við að túra mikið í haust.
Er málstaður druslugöngunnar ykkur sér-
staklega hugfólginn?
Já, algjörlega. Þetta er mjög áríðandi málefni og algjör sprengja
sem er í gangi. Allar þessar ólíku hreyfingar eins og á Beauty
Tips-síðunni, druslugangan, „free the nipple“ og allt þetta. Þessi
kynslóð er rosalega óhrædd og hugrökk, ég man ekki eftir svona
berskjölduðum og beinskeyttum umræðum um þessi mál þegar ég
var yngri.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Ungar konur og
stúlkur sem æfa
mjög mikið þurfa
að hlusta á líkam-
ann og sinna þörf-
um hans, annars
getur hvimleiðra
ofþjálfunar-
einkenna gætt.
Heilsa og
hreyfing 14
Meðganga er ekki
alltaf tekin út með
sældinni og margt
getur komið upp á.
Má kvarta á með-
göngunni eða eiga
konur bara að bíta
á jaxlinn?
Fjölskyldan 30
Farartæki eru mörg hver orðin tölvuvædd og því
fylgja viss öryggisvandamál og það getur skapað
verulega hættu, til dæmis þegar einhver hakkar sig
inn í stjórnkerfi bifreiða. Græjur og tækni 32
Katrína Mogensen, oft kölluð Kata, er söngvarinn í hljómsveitinni Mammút,
sem er meðal þeirra hljómsveita sem spila í druslugöngunni í dag, laugardag.
Gengið er frá Hallgrímskirkju klukkan tvö og verða tónleikar og ræðuhöld á
Austurvelli. Kata segir málefni druslugöngunnar áríðandi og fagnar bein-
skeyttri umræðu um kynferðisofbeldi.