Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Page 11
26.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11
Hjónin eiga soninn Jakob, nafna
langafa Sonju, bróður Rannveigar
sem gerði skautbúninginn. „Jakob
þessi byggði gamla bæinn þar sem
við búum núna, 1929. Jörðin hefur
verið ættinni í að minnsta kosti 200
ár. Það má kalla þetta ættaróðal.“
Sonja er dýralæknir í Húnaþingi
og hefur sinnt starfinu í eitt ár.
„Ég er fædd og uppalin á Lækja-
móti og við erum að taka við
hrossabúskapnum þar. Friðrik er
reiðkennari og kynbótadómari jafn-
framt því að sinna bóndastörfum.
Hann á ættir að rekja í Skagafjörð
og vill gjarnan láta kenna sig við
hann, þótt hann sé úr Reykjavík,
segir eiginkonan. „Hann er svo
mikill bóndakarl...“
Tvíbýlt er á Lækjamóti og var
veislan í nýlegri, glæsilegri reiðhöll
sem bróðir Sonju, Ísólfur Líndal
Þórisson og kona hans, Vigdís
Gunnarsdóttir, tóku í gagnið í
fyrra.
„Við urðum í þrígang að fara yf-
ir ána til að komast leiðar okkar en
það var bara gaman að því; ég var
í reiðbuxum og reiðstígvélum inn-
anundir pilsinu þannig að ég blotn-
aði ekki neitt.“
Yndislegur dagur
Sonja segir brúðkaupsdaginn hafa
verið yndislegan. „Það er okkar
bragur að gera þetta svona og
gaman að fá gestina með okkur í
það sem við elskum; að fara ríð-
andi um sveitina. Þetta var full-
kominn dagur og brúðkaupsveislan
breyttist síðan í hálfgert réttarball
þegar á leið!“
Hjónin fluttu heim í janúar 2014
eftir að Sonja nam dýralækningar í
Kaupmannahöfn. „Ég skrifaði loka-
verkefnið mitt hér heima, kláraði
síðasta sumar og hef verið sjálf-
stætt starfandi dýralæknir hér á
svæðinu síðan.“
Prjónakjóllinn er einstakt hand-
verk í sjálfu sér, segir Sonja, sér-
staklega pilsið. „Við vorum ekki
með neina uppskrift heldur skáld-
uðum þetta og ég var ekkert smá-
ræðis fegin þegar ég mátaði kjól-
inn þegar styttast fór í brúðkaupið
og hann passaði. Það var nefnilega
mikið að gera hjá mér á þessum
tíma við að aðstoða bændur í sauð-
burðinum!“ Sonja, Friðrik Már Sigurðsson og sonurinn Jakob, sem er fjögurra ára.
Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir
Fríður flokkur, með Sonju og Friðrik Má í broddi fylkingar, ríður meðfram bökkum Víðidalsár á leið heim í Lækjarmót.
Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir
Á næstu árum veður hægt að afla
23.400 rúmmetra af timbri úr skóg-
um bænda á Fljótsdalshéraði. Þetta
kemur fram í spá sérfræðinga á
rannsóknarstöð Skógræktarinnar að
Mógilsá í Kollafirði sem birt er á vef-
setrinu skogur.is.
Á tímabilinu 2035-2044 er útlit
fyrir að magnið verði ríflega 120
þúsund rúmmetrar. Nýtanlegt magn
viðar margfaldast því næstu þrjátíu
árin. Lagt var mat á það viðarmagn
sem mögulegt er að grisja næstu
þrjátíu ár í nytjaskógum á Héraði.
Við greininguna á viðarmagni voru
notaðar skógmælingar og þær svo
framreiknaðar, en til þess nota skóg-
ræktarmenn sérstök tölvuforrit sem
reynst hafa vel.
Einungis voru teknar með mæl-
ingar úr skógum þar sem tegund-
irnar lerki, stafafura, sitkagreni,
hvítgreni og alaskaösp uxu og þar
sem meðalhæð trjáa var komin yfir
1,3 metra hæð. Það svæði sem tekið
var til greiningar er 40% þess svæð-
is sem klætt hefur verið skógi á Hér-
aði á síðustu áratugum. Fyrir tíma-
bilið 2025 til 2034 verður
grisjunarmagn komið upp í rösklega
100 rúmmetra og fyrir tímabilið
2035 til 2044 verður magnið, með öll-
um fyrirvörum sagt, orðið 120 þús-
und rúmmetrum meira.
FLJÓTSDALSHÉRAÐ
Viðarstaflar við gróðrarstöð Skógræktarinnar austur á Hallormsstað.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mikils viðar er að vænta
Unnið er að því að þróa Austurland sem búsetukost
og því að móta „Áfangastaðinn Austurland“. Er fólk
hvatt til að taka þátt í könnun vegna þess á síðunni
https://www.surveymonkey.com/r/MR8SGJ2.
Framtíð Austurlands mótuð
Ekki er leyfilegt að reka hross á Grímstungu- og Hauka-
gilsheiði í Húnavatnssýslu í sumar skv. ákvörðun fjall-
skilanefndar. Hrossasmölun fer fram í Víðidalsfjalli 25.
september og réttað verður í Undirfellsrétt.
Af hrossum í Húnaþingi
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk framleiðsla
eftir máli
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
MYRKVAGLUGGATJÖLD
Láttu sólina ekki
trufla þig í sumar
og þú sefur vært