Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Síða 33
GÖNGULEIÐIN TÆKNIVÆDD
Nettenging í skýjunum
Í fyrra klifu 285 þúsund manns fjallið Fuji í Japan án nettengingar.
árið 2014. „Við vonum að fólkið
noti þessa þjónustu. Ekki aðeins til
þess að deila upplifuninni með um-
heiminum heldur einnig til þess að
athuga með veður og aðra þætti til
þess að auka öryggið,“ sagði ferða-
málafrömuður við japanska fjöl-
miðla.
Einstaklingar geta verið tengdir
netinu ókeypis í 72 klukkustundir,
eða þrjá sólarhringa eftir að þeir
tengjast netinu en einnig hyggjast
ferðaþjónustuaðilar á svæðinu
bjóða upp á búnað sem gerir
göngugörpum kleift að vera net-
tengdir allan tímann meðan á göng-
unni stendur.
Göngugarpar sem ganga upp fjallið
Fuji í Japan geta nú tengst netinu
meðan á göngunni stendur, en fjar-
skiptafyrirtæki þar í landi hefur
boðið upp á nettengingu síðan 10.
júlí sl. í samstarfi við sveitarstjórnir
Yamanashi og Shizuoka, þar sem
fjallið stendur.
Settir hafa verið upp átta heitir
reitir (e. hot spots) á jafn mörgum
stöðum í fjallinu og vonast ferða-
málayfirvöld á svæðinu til þess að
með þessu uppátæki muni ferða-
mönnum sem klífa fjallið fjölga en
samkvæmt því sem Dailydot hefur
eftir umhverfisráðuneyti Japans
klifu um 285 þúsund manns fjallið
Það þykir ljóst að
Facebook ætlar að
freista þess að fá
hluta af þeirri risa-
stóru köku sem
myndbandssíðan
YouTube situr nú
nánast ein að. Fyrr á
árinu hóf Facebook
að bjóða notendum
sínum upp á að „em-
bedda“ myndbönd frá
Facebook yfir á aðrar
síður, rétt eins og
YouTube hefur gert.
Nú hefur Facebook
tilkynnt að þeim
tekjum sem verða til
vegna myndbanda
sem sett eru inn á samfélagsmiðilinn verður deilt með rétthöfum myndband-
anna, en það hefur YouTube einnig gert.
Wall Street Journal greindi frá þessu en þar segir ennfremur að til að
byrja með yrði hluta tekna Facebook vegna myndbandanna deilt með nokkr-
um útvöldum aðilum, m.a. Funny Or Die, NBA, College Humor og fleirum
sem hafa notið mikilla vinsælda á meðal notenda YouTube.
Samkvæmt því sem fram kemur í frétt Wall Street Journal mun Facebook
greiða þeim rétthöfum sem verða í samstarfinu 55 prósent þeirra auglýs-
ingatekna sem verða til vegna myndbandanna, líkt og YouTube gerir, og fá
rétthafar greitt í samræmi við það hversu margir Facebook-notendur horfa á
myndböndin frá þeim.
Tæplega einn og hálfur milljarður manna notaði Facebook reglulega á
fyrsta fjórðungi þessa árs og því ekki ósennilegt að stjórnendur YouTube og
móðurfélagsins, Google, súpi hveljar yfir þessum tíðindum.
TEKJUM DEILT MEÐ MYNDBANDSRÉTTHÖFUM
Facebook vill sneið
af köku YouTube
26.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
* Þú ert álitinn furðulegur ef þú lifir án síma.Samt er öllum sama þótt þú lifir án til-gangs. Eitthvað rangt við þá heildarmynd?
Ray N. Kuili
Ef þér líkar ekki við að segja frá því hvar þú hefur verið
með því að „stimpla þig inn“ á samfélagsmiðlum en þig
langar samt til þess að muna eftir þeim stöðum sem þú
heimsækir, þá er ný uppfærsla í smáforritinu Google
Maps eitthvað sem þú ættir að kíkja á.
Google greindi frá því í vikunni sem leið að með
nýrri uppfærslu ættu notendur þess kost að fylgjast
með ferðum sínum með svokallaðri tímalínu.
Þar geta notendur fylgst með ferðum sínum eftir
dögum, mánuðum og jafnvel árum en tímalínan gerir
notendum kleift að skoða hvaða leið þeir fóru að
ákveðnum stöðum og hvar þeir stoppuðu, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Augljóslega hefur þetta ýmsa kosti í för með sér.
Hvort sem það þarf að rifja upp hvernig sunnudags-
bíltúr síðustu viku hafi verið, eða hvar góði pitsustað-
urinn í Toscana hafi verið, þegar á að rifja það upp
nokkrum árum síðar. Eins verður hægt að keyra þessa
nýjung saman við Google Photos, fyrir þá sem nýta sér
myndaþjónustuna, með því að para saman myndir og
daga en Google lítur á það sem leið fyrir notendur til
að eiga auðveldara með að rifja upp minningar.
Þrátt fyrir þægindin sem þessi nýjung kann að hafa í
för með sér, er óneitanlega óþægilegt að hugsa til þess
að tæknirisinn sem gerir út á það að fylgjast með þér á
netinu og selur auglýsingar sem sérstaklega eru mið-
aðar að þér, ætli að fylgjast með ferðum þínum utan
internetsins. Blaðamaður Wired hefur nokkrar áhyggj-
ur af þessu og segist ekki viss um það hvort þetta sé
aukinn lúxus, eða hvort þetta sé nær því að vera
óþægilegt.
Uppfærslunni mun þó fylgja sá möguleiki að „eyða
ferðum þínum“ yfir ákveðið tímabil eða fyrir fullt og
allt, rétt eins og hægt er að gera á netinu.
NÝ UPPFÆRSLA Í SMÁFORRITINU GOOGLE MAPS
Fylgst með ferðum þínum
Skjáskot af Google Maps sem sýnir Ísland. Nú geta snjallsímaeigendur keyrt hringinn og látið símann muna leiðina.
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
Rannsakendur á vegum Which
komust yfir kortaupplýsingar
tíu snertilausra korta með
ódýrum búnaði. Þó að vantað
hafi CVV númerið tókst þeim
t.d. að kaupa dýrt sjónvarp.
Snertilaust óöryggi